13.03.1974
Neðri deild: 81. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2762 í B-deild Alþingistíðinda. (2508)

259. mál, skattkerfisbreyting

Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):

Herra forseti. Ég er ekki viss um, að ég sé eins laginn við sölu á kápum og hv. 7. þm. Reykv., sem hefur miðað verðið við það, að hann geti blekkt og slegið af því síðan og talið kaupandanum trú um, að þá hafi hann fundið rétta verðið. Ég hef víst ekki þá æfingu í verslunarháttum eða aðra leikni í pólitík, að mér hæfi slíkt.

Ég vil taka það fram, hvað sem hv. 7. þm. Reykv. kann að segja um blekkingar og önnur slík vinnubrögð í sambandi við þetta mál, að unnið hefur verið fullkomlega heiðarlega að því, og ég er sannfærður um, að ríkisstj. og þeir menn, sem að því hafa unnið, geta fengið vottorð viðsemjenda sinna um það, því að fulltrúar Alþýðusambandsins fengu, alveg eins og starfsmenn ríkisstj., aðgang að öllum þeim gögnum, sem hægt var að leggja fram í þessu máli, og þeir fengu svar við sínum spurningum og þá útreikninga, sem hægt var að gera. Og það var gert af hinum færustu mönnum. Enginn af þeim mönnum hafði í frammi neinar blekkingar. Hins vegar eru þeir jafnfúsir til að tileinka sér, ef þeir fá ný sannindi, og leggja þau fram.

Ég skal ekki fara langt út í ræður hv. þm., sem hafa talað hér, en tel mér þó skylt að víkja nokkuð að því, sem um er að ræða.

Það, sem var mergur málsins í ræðu hv. 7. þm. Reykv., var það að blanda ekki saman fjármálum ríkissjóðs og þessum skattkerfisbreytingum. Þess vegna hefur það verið mat ríkisstj., að þetta mál ætti að einangra og ekki að leiða fjármál ríkissjóðs inn í það, hvort sem um var að ræða slæman eða góðan fjárhag ríkissjóðs, það skipti engu máli. Það, sem hér er um að ræða, er að skipta á sléttu samkv. því mati, sem bægt var að gera um þessa tvo valkosti. Allt dæmið og allir útreikningar eru miðaðir við það. Þess vegna er það greinilega tekið fram í grg. þessa frv. og sýnt fram á það með rökum, hvað um er að ræða í því sambandi, hvað líkur séu fyrir, að tapist í tekjuskatti, og hvað líkur séu fyrir, að vinnist í söluskatti. Ef tekjuskatturinn skilar meiru, eins og nú er álitið, að hann muni gera, samkv. því úrtaki, sem gert var og ekki kom í hendur á hagrannsóknadeildinni og fjmrn. fyrr en nú fyrir helgina, þá er líka meira látið af hendi til þegnanna, vegna þess að reglurnar, sem reiknað er út eftir, bæði persónufrádrátturinn og skattstiginn, slá auðvitað af þeim tekjum, sem umfram eru, eins og hinum. Þá verður sú upphæð, sem látin er af bendi, meiri en 2700 millj. kr., eins og reiknað er með þarna, því að þar er reiknað út frá þessum ákveðnu forsendum. Þetta gefur auga leið, og þess vegna er um það að ræða, að ef þetta reynist meira, verður þessi afsláttur líka meiri vegna þeirra skattkerfisbreytinga, sem unnt er að gera eða gerðar yrðu samkv. frv. Hins vegar segir það ekki, að söluskatturinn þurfi að aukast, þó að tekjuskatturinn yrði hærri og afslátturinn þar af leiðandi meiri.

Hvernig í ósköpunum ætlar hv. 7. þm. Reykv. og hv. 3. landsk., sem var að tala hér á föstudaginn, þegar hann sagði, að það væri kúnst í reikningsaðferð fjmrn. að telja ekki til tekna rn. á árinu 1974 söluskattinn, sem ekki er gjaldfallinn fyrr en í jan. 1975? — hvernig ætla þessir

hv. þm. að nota þá peninga í des., sem væru ekki gjaldfallnir þeim til handa fyrr en síðast í jan? Það þarf meira en meðalreikningsmann, — sem hv. 7. þm. Reykv. er nú, því að hann reiknar dæmið venjulega þannig, að hann byrjar á útkomunni, og dæmið er svo reiknað út frá því, — en það þarf meira en meðalfæran mann til þess að fá slíka hluti í hendurnar, að nota fjárheimtu, sem innheimtist síðast í jan., til að greiða með í des. Það kunna ekki snillingarnir í fjmrn., þó að afbragðsstarfsmenn séu. (Gripið fram í: Það er hægt að taka lán til að greiða það.) Það er hægt að taka lán, en það þýðir ekki það sama og að greiða með eigin tekjum, það veit hv. þm., og það þýðir í reikningsfærslu á ríkisreikningi, að það kemur halli á rekstrarreikninginn vegna þess arna. Þess vegna er það svo, og ég vil endurtaka það, að hv. þingheimur heyri, að það er boðið fram af hæstv. ríkisstj. að láta þessi lög gilda til næstu áramóta, svo að það séu ekki neinar vangaveltur um það, að það eigi að fara að snuða upp á framtíðina, enda gangi þá í gildi núgildandi skattalög við næstu áramót og gildi þangað til önnur lög taki gildi. Það var samið um að endurskoða þetta mál við næstu áramót, og það er einnig boðið hér hv. þingheimi, að lögin skuli aðeins gilda til áramóta, svo að það orki ekki tvímælis, hvernig með verður farið um næstu áramót, það sé ljóst, að þá gildi bara skattal. áfram, sem nú eru í gildi, ef ekki næst samkomulag um annað. Þá fellur jafnframt niður söluskatturinn frá 1. jan., á sama tíma, og það eru engar vangaveltur um það af hálfu ríkisstj., því að það hefur ekki verið hennar hugsun að hafa neitt út úr þessu, heldur krónu fyrir krónu, og þess vegna er boðið upp á það, að lagabreyting þessi falli úr gildi um næstu áramót. Það hlýtur hv. 7. þm. Reykv. að skilja. Og hann skilur það, annað dettur mér ekki í bug að halda, þó að hann sé snúningslipur í að útfæra sínar skoðanir. En að halda því fram, að maður fái söluskattshækkunina fyrir jan. og febr. og þennan hluta, sem liðinn er af mars, það er alveg ómögulegt að gera. Það er alveg ómögulegt að halda því fram, því að það er liðinn tími, sem ekki kemur aftur, svo að þess vegna er ekki um að ræða söluskatt nema frá þeim tíma, sem lögin yrðu staðfest og tækju gildi, sem yrði seint í þessum mánuði, ef allt gengi að óskum. Ég vona enn, að hv. þm. átti sig á, að hér er verið að gera kerfisbreytingu, sem er til bóta að minni hyggju og a.m.k. ástæða til að reyna þessa mánuði, sem eftir eru af árinu, þannig að það er ekki meiri áhætta tekin en þar er fólgin í. En það er ekki hægt að innheimta söluskattinn eftir á, það er vonlaust mál. Það er ekki hugsun ríkisstj. Þess vegna er það, sem sérfræðingar hennar lögðu fram í fjh: og viðskn. um breytingar á tekjum og gjöldum ríkissjóðs, sem þegar er vitað um og sem áætlað er, það er fyrst og fremst miðað við það, sem gæti orðið og menn halda, að verði. Sumt af þessu er þekkt, annað ekki. Aðalatriðið er þó þetta, að tekjuskattslækkunin með skattafslættinum og söluskattshækkunin standist á, og það hafa ekki enn komið fram þau rök, sem hafa hrakið þetta. Ef tekjuskatturinn gefur meira á árinu 1974 en reiknað er með, fær ríkissjóður þann pening að óbreyttum lögum. En hann gefur meira eftir með breytingunni heldur en gert er ráð fyrir í þessum útreikningum, vegna þess að þar er reiknað með lægri stofni, svo að það þarf ekkert um það að deila, það getur ekki orkað tvímælis, og þó að hann fái hærri tekjur af þeim söluskatti, sem nú er, þá kemur það ekki þessu máli við, því að það er bara annar þáttur, sem um er að ræða. En hærri tekjur af söluskattsviðaukanum en gert er ráð fyrir í þessu frv., það má merkilegt heita, ef það skilar sér. Í grg. frv. er gerð grein fyrir því, hvað er reiknað með hárri álagningu og hvað er reiknað með hárri innheimtu. Þess vegna er hér ekki verið að fela neitt í þessum málum. Og ég vil endurtaka það, að það var eins vel unnið að undirbúningi þessa máls og frekast var hægt. Ég tek það fram, að þegar Alþýðusambandið lagði þetta til, vissu þeir menn vel, hvað þeir voru að gera, og það þýðir ekki að halda því fram, hvorki að það hafi verið reynt að snúa á þá eða hafi verið hægt að snúa á þá. Ég kynntist þeim það mikið, að mér hefur verið ljóst, að þeir menn voru færir, að þeir vissu alveg, hvaða verk þeir voru að vinna. Enda var á engan hátt verið að gera neina tilraun til að snúa á neinn, það var verið að reyna að vinna að þessum málum samviskusamlega, eins og frekast var hægt, það var aðalatriðið.

Ég ætla nú ekki að fara lengra út í ræðu hv. 7. þm. Reykv., því að það tekur ekki, eins og hann sagði, að deila um tölur. Það, sem eftir er af þessu ári, eru engir 12 mánuðir, það vitum við öll, og þarf ekkert að deila um það. Það er ekki hægt að innheimta söluskatt af vörum, sem búið er að selja, og þess vegna skulum við bara halda okkur við staðreyndirnar.

Það hefur ýmislegt komið fram í þessum umr., sem ég skal nú lítils háttar víkja að. M.a. hefur verið talað um afgreiðslu málsins utan þings. Það er alveg rétt, að þetta samkomulag, sem gert var, var gert utan þings, og það var gert, — ég vil segja það í sambandi við það, sem 7. þm. Reykv. sagði hér áðan, — með verulegum meiri hl. atkv., þar sem 19 greiddu atkv. með málinu, 4 á móti, og einir 6 sátu hjá. Fleiri voru ekki á þessum fundi. Það er ekkert nýtt, að ýmis mál, sem hafa verið gerð með samningum, hafi verið afgreidd á Alþ., eftir að samningarnir hafi verið gerðir, og þannig verður oft og tíðum að leysa mál, ekki síst í slíkum málum eins og kjaramálum. Ég tel mig muna rétt, að grundvöllurinn að Atvinnuleysistryggingasjóði var lagður í samkomulagi stjórnvalda og verkalýðshreyfingarinnar í sambandi við kjarasamninga. Auðvitað voru lögin ekki samþykkt þá um leið, en þau voru á eftir lögð fyrir Alþ. og samþ., eins og var samið um. Sama er að segja um júní-samkomulagið um Breiðholtsframkvæmdirnar. Það var samið um þetta í samningum milli ríkisstj. og alþýðusamtakanna í sambandi við að leysa kjaramálin, og síðar meir var svo unnið að því. Þess verður hins vegar að geta, að hraðinn í framkvæmdunum var mun minni en samningarnir gerðu ráð fyrir, og mikið var ógert af þessu, þegar núv. ríkisstj. kom til valda. Var þó gert ráð fyrir því, að þetta nægði, þessu yrði lokið, ef ég man rétt, 1967. En ríkisstj. samdi þarna lengur en hennar umboð var þá til, og það verða ríkisstj. oft að gera. Ég tek nú ekki til samninga, sem verður að gera á milli þjóða. Þeir eru gerðir og það er komið með þá inn á Alþ. sem þannig skjöl, að þeim verður ekki breytt, það er annaðhvort að velja eða hafna, svo að það er ekkert nýtt í sögunni, þótt þess háttar sé gert.

Um stefnubreytingu af hálfu núv. ríkisstj. í sambandi við þetta mál, þá vil ég endurtaka það, sem ég hef sagt hér oft og mörgum sinnum áður, að því hefur margsinnis verið lýst af þessari ríkisstj., að hún væri reiðubúin til þess að breyta frá beinum sköttum í óbeina, ef skattkerfið væri á sama grundvelli, þ.e. gengi ekki inn í vísitölu. Samningar um það hafa ekki tekist fyrr en nú, reyndar verið litið reynt um það og talið óeðlilegt að gera það af hálfu launþeganna, meðan kjara- eða samningstímabil stóð yfir. Ýmislegt er í þessu, sem gengur í rétta átt, eins og viðurkennt er af hv. stjórnarandstæðingum, og ég vona, að það reynist ekki svo, að það séu þeir, sem séu nú orðnir talsmenn beinu skattanna og vilji síður, að það sé farið inn á óbeinu skattaleiðina, þótt manni finnist umr. benda til þess. Það skyldi nú ekki verða næsti þáttur í skattamálunum, að hann yrði á þá leið? A.m.k. er miklu minna talað um það nú en oft áður, að í sambandi við óbeinu skattana hafi fólkið val og geti ráðið því, hvort það kaupir kápuna eða kaupir hana ekki, og svo er náttúrlega með fleiri hluti en kápur.

Um staðgreiðslu skatta eða opinberra gjalda, sem vikið var að hér í umr. um daginn, þá kom það fram hjá hv. 5. þm. Reykv., Gunnari Thoroddsen, að hann taldi, að þetta væri spor í þá átt og það væri ekki stigið til fulls. Ástæðan til þess er m.a. sú, að það hefur orðið samkomulag milli ríkisstj. og stjórnmálaflokkanna yfirleitt, að þeir nefndu til mann til þess að taka þátt í nefndarvinnu til þess að vinna að nýju tekjuöflunarkerfi fyrir ríkissjóð, og þessi þáttur er einn af þeim, sem slík n. mundi vinna að. Það er ekki eðlilegt, að á svona máli, sem unnið er með skyndingu, sé tekið þannig, að það sé afgreitt á þann hátt, því að það þarf mikinn undirbúning.

Svo hefur í þessum umr., eins og oft vill verða, verið rætt um sparnað og það færi lítið fyrir honum hjá núv. ríkisstj. Rétt er nú það, að fjárl. hafa hækkað, og skal ég koma að því síðar, hvaða ástæður eru þar sterkastar. En það eru fleiri fjárlög, sem hækka, heldur en hjá ríkinu. Ég hef t.d. fengið hér yfirlit yfir fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, sem er næststærsti opinberi aðilinn hér á landi um slíka hluti eins og fjármálagerðina. Þegar á það er litið, kemur á daginn, að fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar hækkar á milli áranna 1973 og 1974 um 49.5%. Hjá ríkissjóði er þetta þó ekki nema 33.3%, og þó var á þessu ári gerð kerfisbreyting, þar sem framkvæmdaáætlunin var tekin inn á fjárl. Mestur hlutinn af framkvæmdaáætlun Reykjavíkurborgar hefur hækkað verulega mikið og snöggtum meira en hjá ríkissjóði. Þess vegna er það nú svo, að þar sem aðrir ráða en þeir, sem ráða hjá ríkinu, þar geta slíkir hlutir gerst eins og þessir, að um verulega hækkun sé að ræða.

Ef við lítum á fjárl. í heild, er hægt að flokka þau í nokkra meginflokka. Í fyrsta lagi eru útgjöld, þar sem er ákveðin í lögum krónutala til þess verkefnis, sem þar er greint. Þetta eru um 610 millj. kr. Þetta eru framlög til Fiskveiðasjóðs, jarðakaupasjóðs og Stofnlánadeildar landbúnaðarins og fleiri slík framlög, sem ákveðin eru í lögum upp á krónu. Í öðru lagi er svo liður, sem er um 10200 millj. kr., og þar er um að ræða útreikninga á gjöldum, sem eru ákveðin og er ekkert nema reikningsdæmi, hvað til útgjalda skuli fara á þessum gjaldaliðum. Þetta er allt samkv. lögum og ákveðið, hve miklu skuli varið til slíkra útgjalda. Þar er Tryggingastofnunin fyrirferðarmest, og er þá tekið aðeins það, sem lögbundið er. T.d. fjölskyldubæturnar eru þar 8000 með hverju barni, og ekki tekið meira inn á þennan lið en þar til segir. En hér er um allverulega fjárhæð að ræða, eins og ég áður gat um. Þriðji útgjaldaliðurinn eru markaðir tekjustofnar, sem eru líka lögákveðnir, 3.3 milljarðar. Launaútgjöld ríkissjóðs eru 6.3 milljarðar. Þá eru aðrar samningsbundnar greiðslur, sem eru tæpar 600 millj. Hér er samtals um að ræða um 21 milljarð kr. í útgjöld. Þetta er allt saman samkv. ákvörðunum Alþingis þar um, og eigum við þó eftir að fara í þann hluta útgjaldanna, sem er gjaldfærður stofnkostnaður, eða til framkvæmda eins og skóla, hafnargerða, vega og fleira því um líkt, sem hefur verið þannig, að þm. hefur yfirleitt þótt heldur of litið að gert en hið gagnstæða. Þegar búið er að fara í gegnum fjárl. á þennan hátt, kemur á daginn, að það er æðimikið af fjárlagaútgjöldunum, sem er ráðstafað af Alþ., og verður að breyta lögum, til þess að hægt sé þar um að þoka. Það er sáralítið, sem fjmrh. hefur til ráðstöfunar í sambandi við afgreiðslu fjárl. í raun og veru, þegar á allt er litið.

Í sambandi við það, sem kom fram bæði hjá hv. 1. þm. Reykn. og hv. 3. landsk. þm. fyrir helgina um hækkun á tekjuskattinum, þá sást þessum þm. báðum yfir að geta þess, að innifalið í þeirri fjárhæð, sem þeir þar nefndu, eru persónuskattarnir, sem niður voru felldir, en þeir voru samkv. fjárl. nú í vetur um 3600–3700 millj. kr. Eftir þá hækkun, sem nú verður á tryggingunum, fer þetta að nálgast um 4 milljarða kr. Þar á ég við bæði persónugjöldin til sjúkrasamlags og trygginga og framlag sveitarfélaga. Þetta er allt innifalið í tekjuskattinum. Og eftir þessar breytingar, ef gerðar yrðu, þær sem hér liggja fyrir, mundi fara svo, að tekjuskatturinn sem slíkur væri ekki orðinn fyrirferðarmikill, hann mundi tæplega nægja fyrir þessum útgjöldum. Þannig að það hefði alveg eins verið hægt að leggja tekjuskattinn niður, en láta greiða framlagið til trygginga með persónusköttum og framlögum sveitarfélaga að þeim hluta, sem það var, en ríkið greiddi sin 50%. En réttlátt væri það ekki að taka þannig til um framkvæmd á því, vegna þess að það mundi lenda á fólki alveg án tillits til tekna, og það er sú tekjuskattsaðferð eða tekjuinnheimta, sem verst er. Þess vegna er nauðsynlegt, þegar hv. þm., hver sem það annars kann að vera, ræða hækkun á tekjuskattinum, að hafa þetta hugfast, jafnhliða því að með tekjuskattslögunum og tekjustofnalögum sveitarfélaga voru útgjöld sveitarfélaga lækkuð verulega og tekjur þeirra í gegnum útsvörin einnig.

Hv. 1. þm. Reykn. sagði frá því, að þeir vildu hafa alla fasteignaskatta hóflega, og rétt er nú það, en því er til að svara, að það var mjög fjarri lagi, að þeir væru hækkaðir í fjmrn. eins og sveitarfélögin fóru fram á í vetur, að gert yrði, því að þeirra till. var að hækka þessa skatta um meira en 100%.

Einn af þeim hv. þm., sem ég ætlaði að víkja að í sambandi við ræðu, sem hann flutti hér fyrir helgina, er nú ekki í hv. d., svo að ég ætla að láta það niður falla. En það var vegna samanburðar hans á hækkun á landbúnaðarvörum og kaupmætti launa. Ég ætla þá þess í stað á eftir að gefa honum skýrslu þar um, svo að hann geti farið rétt með þau mál, þegar hann ræðir þau næst.

En ég skal ekki vera að þreyta menn með því að lengja þessar umr. mikið frá því, sem orðið er, ég tel mig hafa vikið að því, sem mestu máli skiptir, og öðru ætlaði ég ekki að víkja að.

Ég vil að lokum segja það, að það er alrangt, að í þessu samkomulagi á milli ríkisstj. og ASÍ hafi verið gerð nokkur tilraun til blekkinga eða svika. Það er líka alrangt, að það hafi verið gerð nokkur tilraun til þess að blanda fjármálum ríkisins inn í það, því að ég er sannfærður um, að ríkið hefur á þessu ári, 1974, heldur tap en hagnað af þeim breytingum.

Það, sem hér er á ferðinni, er því skattkerfisbreyting frá beinum sköttum til óbeinna, meira en verið hefur, og það er í samræmi við það, sem hefur komið fram á hv. Alþingi áður, að hv. þm. vildu hallast að því að ganga meira til móts við þá skoðun. Ég er einnig í þeim hópi, og hef talið mig vilja gera það, ef um skatt væri að ræða, sem ekki færi inn í vísitöluna.

Ég vil í öðru lagi leggja áherslu á það, að frv. er sameiginleg vinna embættismanna ríkisins, fjmrn. og hagrannsóknadeildarinnar annars vegar og fulltrúa ASÍ hins vegar, og það er unnið á jafnréttisgrundvelli og á engan hátt gerð tilraun til þess að leyna neinu, enda samviskusamlega unnið í fyllsta máta. Samkomulagið er svo niðurstaða af því, sem þessir aðilar urðu sammála um, eftir að hafa unnið að málinu og kynnt sér það vel.

Ég endurtek, að ég tel, að ríkisstj. hafi haft ástæðu til að ætla, m.a. vegna viðræðna minna, að hún hefði þingfylgi fyrir því, að þetta næði fram að ganga, og þeirri trú mun ég ekki varpa fyrir borð, nema ég sjái annað.

Ég vil líka segja það, að það hefur á engan hátt verið undir það tekið frá okkar hendi að ganga frá þessu samkomulagi, því að það vil ég ekki gera. Það eina, sem hefur verið rætt, var þó aðeins að bæta þar um til hagsbóta fyrir ASÍ-félaga, en annað ekki.

Ég vil líka endurtaka það, að við fáum yfirlýsingu um endurskoðun á málinu að árinu 1974 liðnu, og vil undirstrika það, að ef það gæti orðið til samkomulags við hv. alþm., að gildistaka frv. væri miðuð við árslok og söluskattur ekki innheimtur, nema sem þá væri til fallinn, og þá gengu í gildi þau skattalög, sem nú eru í gildi, þar til um önnur yrði samkomulag og þau væru staðfest, þá er ríkisstj. reiðubúin til þess.