13.03.1974
Neðri deild: 81. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2810 í B-deild Alþingistíðinda. (2520)

259. mál, skattkerfisbreyting

Bjarni Guðnason:

Herra forseti. Ég talaði um þetta mál langar stundir við 1, umr., þannig að ég mun nú stytta mál mitt mjög. En mér þykir þó skylt að koma hér í ræðustólinn til þess að draga saman eitt eða tvö atríði, sem mér þykir skipta mestu máli og hafa ekki komið fyllilega fram í ræðum þm.

Mikið hefur verið deilt um útreikninga, hversu standast á tekjuskattslækkun og söluskattshækkun, og ég skal ekki blanda mér inn í það mál. En ég vil vekja athygli á einn. Það er ekki eingöngu atriði um, hvernig reikningar standast á, heldur hitt, hvaða áhrif þessi skattbreyting hefur á efnahagslíf þjóðarinnar. Það finnst mér skipta meginmáli.

Hér er um það að ræða að leggja á 5 stiga söluskattshækkun, og væri vert að gera sér grein fyrir því, hvaða áhrif það hefur á efnahagslíf þjóðarinnar. Þetta er meginatriðið. Þess vegna er meginatriðið fyrst og fremst verðlagsþróunin í landinu. Ríkisstj, þarf að fara að gera einhverjar ráðstafanir til þess að hamla gegn verðbólgunni, og ég fel einmitt, að sú breyting, sem hér um ræðir, hamli ekki gegn verðbólgu, heldur þvert á móti örvi hana enn frekar en verið hefur. Þetta finnst mér skipta í raun og veru meginmáli. Það skiptir ekki öllu, hvort einhverjir einstaklingar hagnist á þessu um 5 eða 10 þús. kr. Það er hitt, hvert stefnir í efnahagsmálum þjóðarinnar. Það er meginkjarni málsins.

Hitt verð ég að segja, að það kemur úr hörðustu átt, þegar Framsfl. og Alþb. geta staðið að skattkerfisbreytingu af þessu tagi. Ég veit ekki betur en það standi í stefnuskrá Framsfl, að fella niður söluskatt af nauðsynjum. Þetta er endurtekið í stjórnarsáttmálanum. Ástæðan er auðvitað sú að létta byrði þess fólks, sem býr úti í dreifbýlinu, því að söluskattur leggst á flutningsgjöld, og þetta leiðir auðvitað til þess, að það fólk, sem Framsfl. telur sérstaka ástæðu til þess að styðja við bakið á, fær enn meiri byrði út af þessari söluskattshækkun. Mér kemur þetta mjög á óvart, því að ég hef haldið, að ein grundvallarstefna ríkisstj, væri einmitt hin svokallaða byggðastefna. En ég fæ ekki séð, að þetta þjóni henni.

Alþb. er hér alveg sérstakur kapítuli. Mér er óljóst, hvernig þessi verkalýðsflokkur getur komið því til leiðar innan alþýðuhreyfingarinnar að taka á sig 5 stiga söluskattshækkun á móti tekjuskattslækkun. Mér er algerlega áskiljanlegt, að menn úr röðum alþýðustéttanna skuli standa hérna og verja þessa breytingu. Þetta er alveg ný stefna, og hér er alls ekki um neina tekjuskattslækkun að ræða, heldur beinlínis kerfisbreytingu, sem að mínu viti kemur harðast niður einmitt á launþegum og barnmörgum fjölskyldum, þrátt fyrir þennan jöfnunarsjóð, sem hafður er í huga. Ég vil líka benda á það, af hverju þetta mál er komið hér fyrir þingið. Það er af því, að stjórnarflokkarnir hafa staðið að hinu óvínsæla tekjuskattsfrv. sínu. Það er þeim að kenna, að málum er komið þannig, og óvinsældir tekjuskattsins vegna þess, hve hann er hár, hafa valdið því, að jafnvel verkalýðsforingjar fallast á þessa breytingu. Þá sér maður herlega, hvernig til tókst með tekjuskattsl., sem ríkisstj. setti, að þetta skuli beinlínis knýja verkalýðinn til þess að samþykkja á sig svona óhóflega mikla söluskattshækkun. M.ö.o.: Það er dálítið undarleg staða hér í þinginu. Hinir svokölluðu vinstri flokkar, sem ráða ferðinni hér í stjórnarstólum, berjast nú fyrir hækkun söluskatts, sem þeir hafa barist gegn með oddi og egg á undanförnum áratugum. Nú er málinu alveg snúið við. Og þeir tala um þessa skattkerfisbreytingu sem einhvern heilagan sannleika og ekkert sé réttara en hækka söluskattinn um 5 stig á almúganum. En að mínu viti merkir það, að 5 stiga söluskattshækkun við þær efnahagsaðstæður, sem nú eru, er hrein uppgjöf — hrein uppgjöf. Hvað svo sem menn vilja segja um þetta á annað borð, þá er þetta hrein uppgjöf.

Það, sem hér átti auðvitað að gera, var að lækka tekjuskattinn þannig, að áhrifin drægju helst úr verðbólgunni, en ykju ekki verðbólguna. Þetta er grundvallarsjónarmíð, og þá hlýtur það að vera nærtækast að draga úr ríkisútgjöldunum. Það hefur verið talað um það margoft, að þá eigum við, sem höfum þessa skoðun, að koma með beinar till. Ég hef margsagt hér, að ég væri reiðubúinn að taka þátt í n. með ríkisstj., ef hún standi að þessu og komi með till. um niðurskurð. Ég hef margsagt það. En það er bara ekki vilji fyrir hendi. Og það er eitt, sem ég held, að þingheimur ætti að átta sig á, að það gilda hér mjög svipuð efnahagslögmál og á Norðurlöndum hjá frændum okkar. Stjórnir þar, bæði vinstri og hægri stjórnir, sem svo eru nefndar, hafa orðið að fara þessu erfiðu leið að draga úr ríkisútgjöldum og það hvort sem um hefur verið að ræða sósíaldemókrata, vinstri eða aðra flokka í Danmörku. Þetta er nauðsyn, sem menn hafa orðið að sætta sig við. Hér er þvert á móti haldið áfram á sömu braut og verið hefur. Það er látið reka á reiðanum, og svo til þess að sporna gegn þessum níðþunga tekjuskatti, er enn frekar anað út í fenið, þannig að það er orðið erfitt að sporna gegn verðbólgunni nema með einhverjum óhemjulega hörkulegum ráðstöfunum.

M.ö.o.: Ég legg áherslu á það, að tekjuskattsbreytingin verður ekki slitin úr tengslum við almenna þróun efnahagslífsins í landinu. Þetta eru ekki bara útreikningar. Þetta er hluti af efnahagsþróuninni í landinu, og af því að það liggur ljóst fyrir, að 5 söluskattsstig auka enn verðbólguna, gera vandamálin enn meiri, þá hlýtur þetta að vera röng stefna.

Og svo vil ég koma með smáaths. Ef svo skyldi nú fara, sem ég geri nú ekki ráð fyrir, að 5 söluskattsstigin yrðu samþ. hér á hinu háa Alþ., væri ekki með þeirri samþykkt leystur efnahagsvandi ríkisstj., því að eyðslan er svo mikil, þetta hleður allt ofan á sig. Það þarf líka nýja tekjustofna. Hvað mundi gerast á næsta ári? Þá væri farið að hækka tekjuskattinn að nýju, því að þá væri söluskatturinn orðinn svo hár, og þá væri ekki mikið unnið við þetta.

Ég skal ekki hafa þessi orð fleiri, en ég tel, að till. af þessu tagi þjóni ekki verkafólki og launþegum í landinu, og um leið er þetta uppgjöf í efnahagsmálum.