13.03.1974
Neðri deild: 81. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2824 í B-deild Alþingistíðinda. (2525)
259. mál, skattkerfisbreyting
Frsm. 1. minni hl. (Matthías Á. Mathiesen):
Herra forseti. Það kom fram aths. hér áðan, þegar ákvæði til bráðabirgða var borið upp, hvort þeir stafliðir, sem þar eru, I, II og III, væru ekki sjálffallnir, vegna þess að þeir grundvallast á því, að 7. gr. frv. hafi verið samþ. Ég get mjög vel skilið, þegar slík afgreiðsla fer fram eins og hér hefur átt sér stað, að forseti á augnabliki átti sig ekki á slíku, og vil þess vegna beina þeirri fsp. til forseta, hvort það er ekki rétt skilið, að ákvæði til bráðabirgða, I, II og III, séu sjálffallin, vegna þess að 7. gr. frv. var þegar fallin.