13.03.1974
Neðri deild: 81. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2824 í B-deild Alþingistíðinda. (2528)

259. mál, skattkerfisbreyting

Forseti (Gils Guðmundsson):

Ég verð að líta þannig á, að þær aths., sem hér hafa komið fram í sambandi við ákvæði til bráðabirgða, hefðu átt að koma fram áður en lýst var atkvgr. og áður en tekið var til að greiða atkv., þannig að ég verð að líta þannig á, að eðlilegt sé að halda áfram atkvgr. og láta fara fram það nafnakall um viðbót við þau ákvæði til bráðabirgða, sem þegar hafa verið samþykkt og lýst, hvernig atkv. hafa fallið um. (Gripið fram í.) Það er fleira, að því er virðist, ég hef tæplega haft tíma til að lesa þetta allt yfir. En nú lýk ég því nafnakalli, sem farið hefur verið fram á í sambandi við 10. brtt. á þskj. 486.