15.03.1974
Efri deild: 80. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2866 í B-deild Alþingistíðinda. (2575)
46. mál, jarðalög
Björn Fr. Björnsson:
Herra forseti. Ég tel, að brtt. hv. þm. Ragnars Arnalds stefni að nokkru í rétta átt, og svo mikið er víst, eins og hann ræddi um, að t.d. frændur vorir Norðmenn hafa eitthvað þess háttar í sinni löggjöf. En það, sem ég vildi taka hér fram, er þetta: Ég tel, að ákvæði í ætt við þessar brtt. ætti fremur heima í löggjöf, sem nauðsynlegt er að koma á, þar sem raktar eru almennar grundvallarmatsreglur, en þær vantar mjög hér. Ættu þær að falla inn í eignarnámslöggjöf, eins og mun vera hjá Norðmönnum. En ég er mótfallinn því, að slík till. komi þarna inn einnig, vegna þess að í brtt. meiri hl. landbn. kom fram, að miða ætti við matsgerðir samkv. IX. kafla ábúðarlöggjafarinnar. Að mínu mati held ég, að ekki ólík stefna þeirri, sem er í till. hv. þm., sé þar á ferðinni. En eins og ég sagði, þá er höfuðnauðsyn að koma á löggjöf um almennar reglur við matsgerðir. Það væri mikil þörf á því, að ríkisstj. léti sem fyrst vinna að slíku frv.