15.03.1974
Efri deild: 80. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2867 í B-deild Alþingistíðinda. (2576)

46. mál, jarðalög

Ragnar Arnalds:

Herra forseti. Ábending hv. þm. Björns Fr. Björnssonar á fyllsta rétt á sér, og ég get tekið undir það með honum, að breyt. af því tagi, sem ég geri hér till. um, ætti ekki síður heima í I. um framkvæmd eignarnáms. Ég tel, að eðlilegt sé, ef í ljós kemur, að till. mín um breyt. á frv., sem hér liggur fyrir til umr. um jarðalög, nær fram að ganga, og svo reynist vera, að hún eigi fylgi þingsins, og sé raunar nauðsynlegt og sjálfsagt, að flutt verði till. um breyt. á I. um framkvæmd eignarnáms, þannig að breyting af þessu tagi eigi sér stað einnig varðandi lönd, lendur og jafnvel jarðir, sem eru innan kaupstaða, í kauptúnahreppum eða á skipulagsskyldum svæðum.

Ég viðurkenni, og öllum er að sjálfsögðu ljóst, að till. mín nær ekki til nema hluta af lendum og jörðum í landinu. Hún nær aðeins til jarða utan skipulagsskyldra svæða. Ég get hins vegar ekki fallist á það, að þó að benda megi á, að gera þyrfti hliðstæða breytingu á l. um framkvæmd eignarnáms og að breytingin ætti kannske eitthvað frekar heima þar, að þá séu það nægileg rök til þess, að ekki beri að samþykkja þessa breyt. á jarðal. Þau eru hér til umr., málið snertir þau beint, og er þess vegna eðlilegast að fá hér úr því skorið, hvort meiri hl. Alþ. er því hlynntur, að farið verði út á þá braut, sem till. gerir ráð fyrir. Ef það kemur síðan í ljós, að meiri hl. er því fylgjandi, þá liggur beint við að gera breyt. á l. um framkvæmd eignarnáms.