15.03.1974
Neðri deild: 84. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2945 í B-deild Alþingistíðinda. (2607)
85. mál, vísindaleg verndun fiskimiða landgrunnsins
Frsm. (Garðar Sigurðsson):
Herra forseti. Á þskj. 459 er nál. frá sjútvn. þessarar hv. d., þar sem segir, að n. hafi rætt þetta frv. um breyt. á l. frá 1948 á nokkrum fundum. Þetta mál kom fram í haust, og hefur dregist allmikið að afgreiða það. Til þess liggja ýmsar ástæður. En nú eftir áramótin hafa komið fram ítrekuð tilmæli um það að draga afgreiðsluna, menn vildu skoða þetta betur og þar fram eftir götunum. Og til þess að halda þeim sama góða anda og verið hefur í þessari hv. n, hef ég fallist á að gera það. Nú er frv. komið úr n. með þessari afgreiðslu hennar: samþ. að leggja til, að frv. verði afgr. óbreytt. Hins vegar er rétt að geta þess, að nm. hafa verið sammála um meginatriðið í þessu frv., en jafnframt verið opnir fyrir því að setja við frv. einhverja viðbót, ef menn leggja mjög mikla áherslu á, að það sé nauðsynlegt.
Þetta mál er vissulega talsvert mikið stórmál fyrir okkur Íslendinga. Á þessum l. frá 1948 höfum við byggt alla útfærslu fiskveiðilögsögu okkar hingað til. Það er að mínum dómi mjög mikilvægt, að við getum staðið saman um afgreiðslu á þessu frv., þar sem um er að ræða breyt. á svo mikilvægum lögum.
Við 1. umr. málsins, sem fór fram hér í hv. d. um miðjan nóv. komu fram ýmsar aths. við frv. og vangaveltur um það, hvert orðalag færi till. best, en hins vegar sýnist mér, að allir hv. þm. í þessari d. hafi lýst samþykki sínu við meginatriði málsins. Aths. beindust fyrst og fremst að því, hvort ekki þyrfti að koma viðbót, eins og ég sagði áðan, við frv., þess efnis, að semja skyldi við nágrannaþjóðirnar, þar sem minna væri en 400 mílur á milli landa. Þar er að sjálfsögðu um að ræða fyrst og fremst Færeyjar og Grænland, því að eins og kunnugt er eru ekki nálægt því 400 mílur á milli landa þar, liðlega 200 mílur til Færeyja, bar sem styst er, og langt innan við 200 mílur til Grænlands, þar sem styst er.
Ég hef hérna hjá mér það eintak Alþingistíðinda, sem hefur að geyma umr, frá 1. umr. um málið, og þær umr, hafa nm. að sjálfsögðu skoðað vel og vandlega. Ég held, að það sé ekki ástæða til að vitna beint til ummæla hvers manns, því að það, sem menn finna helst að frv., er einmitt, hvort ekki væri nær að bæta við þessu atriði varðandi þau tilvik, þegar minna er en 400 mílur á milli landa. Ég vil samt leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að vitna hér í lokaorð hv. þm. Benedikts Gröndals, 8. landsk., þar sem hann segir: „Ég vil því taka undir hugmyndir hv. 3. þm. Vestf. Mér kemur í hug að segja: „að 200 mílum eða samkv. samkomulagi, þegar minna en 400 mílur eru til næstu landa,“ eða eitthvað svoleiðis. Það eru þarna möguleikar á örlítilli viðbót, og ég tel æskilegt, að sú n., sem fær þetta mál, ræði það við lögfræðinga og aðra sérfræðinga ríkisstj., sem hafa veitt henni aðstoð við að semja þetta frv.“
Ég les upp þessar línur til þess að sýna dæmi um þennan málflutning frá því í haust. Þessi hv. þm. gerir það að sínum lokaorðum, að sjútvn. leiti til sérfræðinga um þetta efni, og það var einmitt það, sem nm. voru sammála um, að gert yrði, og vorn sammála um, að taka ætti mikið tillit til orða þeirra. Ég gekk þess vegna á fund þjóðréttarfræðingsins Hans G. Andersens strax og hann kom vestan frá Ameríku og ræddi nákvæmlega við hann um þetta mál og gerði honum grein fyrir aths. nokkurra hv. þm. úr þessari d., sem fram höfðu komið við 1. umr. þ.e.a.s. þeirra hv. þm. Þórarins Þórarinssonar, Benedikts Gröndals, Hannibals Valdimarssonar og Gunnars Thoroddsen. Það var skoðun Hans G. Andersens, að hann liti svo á, að ekki ætti að breyta orðalagi frv. Það væri nægjanlegt að segja: „allt að 200 sjómílum“, sem helst fór nú í taugarnar á mönnum, enda væri þar um sams konar orðalag að ræða og í till. Íslands í Hafsbotnsnefnd Sameinuðu þjóðanna. Ég ræddi þetta að vísu við fleiri aðila, en þar voru allir á einu máli, að þarna væri nóg sagt, og með þessu, ekki síst með þeim aths., sem eru við lagafrv. sjálft, kemur greinilega fram, að það er alls ekki meiningin að seilast inn á annarra rétt. Það er auk þess vafasamt, hvort við ættum að slá því föstu að setja inn í þetta frv. ákvæðið um miðlínureglu eingöngu, þar sem skiptar skoðanir eru um í heiminum, hvernig eigi að ganga frá þessum atriðum, og þá er kannske óhætt að nefna Jan Mayen, þar sem ekki er víst, hver lögsaga Norðmanna er gagnvart Jan Mayen í þessum efnum.
Það er einróma álit nm., að með samþykkt þessa frv. munum við hljóta óumdeilanlegan rétt til þess að taka okkur 200 mílna landhelgi. Ég vil samt vekja athygli á því, sem kemur fram í nái., að einstakir nm. hafa áskilið sér rétt til að flytja eða fylgja brtt, í þessu máli. Það er ekki að þeirra dómi höfuðatriðið, hvort þarna er sett örlítil viðbót eða ekki, heldur meginatriðið, að frv. nái hér með samkomulagi fram að ganga.