18.03.1974
Efri deild: 82. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2952 í B-deild Alþingistíðinda. (2617)
176. mál, jarðgufuvirkjun við Kröflu eða Námafjall
Halldór Blöndal:
Herra forseti. Ég heyrði það á ræðu hv. þm. Steingríms Hermannssonar, að hann er heldur ókunnugur þeim umr. og þeim áætlunum, sem gerðar hafa verið og látnar uppi í sambandi við Kröfluvirkjun norðanlands af réttum aðilum. Það er rétt, sem þessi hv. þm. segir, að það er ástæðulaust að kvarta yfir því, þó að frv. af þessu tagi hafi sofnað í n, hér á hinu háa Alþ. Þrátt fyrir bað að það var sagt strax í frumræðu hæstv. iðnrh., að nauðsynlegt væri að afla þessarar lagaheimildar strax, til þess að hægt væri að hefja undirbúning Kröfluvirkjunar af fullum krafti, þá er það rétt hjá þessum hv. þm., sem nú er þegar búinn að fresta Kröfluvirkjun um eitt ár, þá munar kannske ekki mikið um einn mánuð hér í hinu háa Alþ.
Ég var staddur hér með orkustjóra á fundi í fjh: og viðskn. Ed. fyrir nokkrum dögum, og þá nefndi hann ártalið 1978, sagði að vísu, að það væri ákaflega óvíst. Nú var það ártal, sem þessi hv. þm. nefndi fyrst, árið 1979, og það er eins gott, að frv. fari að fara héðan fljótt, ef á að kosta eitt ár í viðbót hver mánuður, sem dregst að afgreiða frv. héðan frá hinu háa Alþ. Hins vegar vil ég segja það og vísa á bug öllu því, sem þessi hv. þm, sagði hér áðan, að það liggur fyrir, að með því að leggja áherslu á virkjunarboranir og virkjunarrannsóknir muni vera unnt, miðað við, að allt gangi að óskum, og miðað við, að nægilegur botnhiti sé í Kröflu til þess, að þar sé hægt að virkja og reisa gufuaflsstöð, þá mun vera unnt að koma virkjuninni í gagnið jafnvel í árslok 1976 eða fyrri hluta árs 1977, miðað við það, að frumhannanir virkjunarinnar væri hægt að gera í lok þessa árs. En talið er, að með því að hafa fullan hraða á, ætti að vera unnt að koma virkjuninni upp innan tveggja ára frá þeim tíma, sem frumhannanir hafa verið gerðar. En það, sem tefur núna, er það, að ekki hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að útvega jarðbor til borunar á Kröflu á árinu 1975, og það er það, sem ég er að tala um, þegar ég segi, að þetta mál og undirbúningur Kröfluvirkjunar sé ekki í fullum gangi.
Það var líka eftirtektarvert, að þessi hv. þm., sem var svo önnum kafinn við að leiðrétta mig hér áðan, minntist ekki einu orði á það atriði, sem ég hef harðast gagnrýnt, en það er það tómlæti, sem af yfirvöldum er sýnt í þessu máli. Hér á landi er ekki nema einn nægilega stór bor til þess að bora við Kröflu á sumrinu 1975, og þessi bor er upptekinn allt næsta ár. Til þess að bæta úr því verður að kaupa annan bor í staðinn eða fá lánaðan erlendis frá. Það er talin betri fjárfesting að kaupa slíkan bor, enda er gamli stóri jarðborinn, sem kallaður er gufubor, kominn mjög til ára sinna, og má raunar segja, að þar sé um eðlilega endurnýjun verkfæra að ræða.
Ég hef svo oft hér á hinu háa Alþ. talað um það ófremdarástand, sem nú ríkir í orkumálum Norðurlands, og væri raunar fróðlegt, úr því að allar þessar áætlanir liggja nú fyrir um orkuþörfina, að fá upplýsingar um það hjá þessum hv. þm., hvort gert sé ráð fyrir því í þessari orkuspá að heimila þeim, sem óskað hafa eftir því að fá að kynda hús sín upp með rafmagni, að gera það, t.d. bændum og fólki í hinum ýmsu sjávarplássum eða jafnvel kaupstöðum norðanlands, hver sé stefna Orkustofnunar í því og hvernig haldið á þeim málum í orkuspánni. Er t.d. gert ráð fyrir því, að þeir bændur, sem nú hafa sótt um rafmagn, svokölluð árskw., fái þennan taxta? Er gert ráð fyrir því, að fólkið á Þórshöfn, sem nú er að tengjast Laxárvirkjunarsvæðinu, fái að hita sín hús upp með rafmagni? Hvað segir orkuspáin um það?
Þessi hv. þm. talar um, að það sé ekki hægt að ljúka því að koma rafhitun á fyrir norðan fyrr en eftir 5–6 ár. Á þessi hv. þm. þá við það, að enginn maður fyrir norðan muni fá að hita hús sín upp með rafmagni fyrr en eftir svo og svo mörg ár? Það væri fróðlegt að fá að vita það. Það væri jafnframt fróðlegt að fá að vita, hvaða stefna verður tekin gagnvart þeim fyrirtækjum, sem vilja byggja sig upp fyrir norðan og þurfa mikið á raforku að halda. Verður t.d. reynt einhvern veginn að hamla gegn því, að slík fyrirtæki verði sett niður á Norðurlandi nú um sinn, á meðan orkuskorturinn er hvað verstur? Ég get upplýst hv. þm. um það, að nú er gufuaflsstöðin í Námafjalli úr leik í bili, og síðast þegar ég frétti af því máli var algerlega óvíst, hvenær hún kæmi í gagnið aftur, en mér skilst, að það sé borin von, að það geti orðið nú á þessum vetri, og engar aðrar sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar til þess að sporna við neyðarástandi fyrir norðan, ef til krapastíflu og truflana kemur í Laxá.
Það er augljóst af ræðu þessa hv. þm., að það er stefna orkuyfirvalda að láta Kröflu dragast. Það er tæknilega mögulegt, miðað við það, að allt gangi að óskum, að slík virkjun geti tekið til starfa í fyrsta lagi síðari hluta árs 1976 og í síðasta lagi fyrri hluta árs 1977, ef rétt er að staðið og ef það væri einhver vilji hjá orkuyfirvöldum til þess að standa rétt að þessari virkjun. Þetta veit ég með fullri vissu. En það er bara ekki vilji til þess. Núv. hæstv. ríkisstj, og þeir, sem að henni standa, hafa staðið á móti öllum virkjunarrannsóknum fyrir norðan, síðan þeir tóku við völdum. Frammistaða þeirra í Kröflumálinu hefur verið með þeim hætti, að þótt jarðhitadeild Orkustofnunar hafi sótt um það að fá fjárveitingar til virkjunarrannsókna í Kröflu árið 1972, var ekki eyrir veittur í því skyni. Sama sagan gerðist næsta ár. Og s.l. ár tókst að koma inn fjárveitingu með lánsheimild, og eftir henni verður unnið næsta sumar.
Það væri nú fróðlegt í þessu sambandi að fá upplýsingar um það, hvernig stendur um virkjun Skjálfandafljóts. Mér skilst, að einn aðstoðarráðh. núv. ríkisstj., Jónas Jónsson, hv. þm. Norðurl. e., hafi mjög beitt sér fyrir því og m.a. flutt till. um það, að Orkustofnun gefi út álitsgerð og láti álit sitt í ljós um það, hvort ný virkjunartilhögun, sem þar hefur verið áætluð, sé jafnhagkvæm og þar er sagt. Mér er kunnugt um, að einhver athugun hefur farið fram á þessu í Orkustofnuninni, en ég er hræddur um, að það sé ekki mikil áhersla lögð á það að ljúka þeim athugunum eða framhaldsathugunum á virkjunarrannsóknum í Skjálfandafljóti. Mig langar jafnframt til að vekja athygli á því, að það liggur ekkert fyrir um það, svo að mér sé kunnugt, vegna þess að þessi hv. þm. minntist á Námafjall í sambandi við hugsanlega gufuaflsstöð nyrðra, — hvort slík stöð muni geta valdið mengun eða hafi slíka hættu í för með sér á þessu viðkvæma svæði, sem Mývatn er. Ég hef áður spurt um það hér í hinu háa Alþ., hvaða afstöðu heimamenn og Náttúruverndarráð hafi til gufuaflsstöðvar í Námafjalli, og ekki fengið nein svör um það. Hins vegar skilst mér, að það sé hægt að leysa það mál með mjög auðveldum hætti í sambandi við Kröflu og þess vegna sé engin mengunarhætta, þótt hún verði virkjuð.
Sannleikurinn í þessu máli er náttúrlega sá, að þegar hæstv. ríkisstj. kom til valda, mátti hún ekki heyra annað nefnt en að orkuvandi Norðurlands yrði leystur með línu að sunnan. Það lá fyrir strax við myndun þessarar ríkisstj. og eins og Laxárdeilan hafði þróast, að um stíflugerð í Laxá gat aldrei verið að ræða. Það gat enginn gengið þess gruflandi. Það lá sem sagt fyrir árið 1971, að framhaldsvirkjun í Laxá kæmi ekki til greina. Hæstv. ríkisstj, ákvað þá þegar, að um frekari virkjanir yrði ekki að ræða á Norðurlandi næstu árin. Orkuvanda Norðurlands átti að leysa með línu að sunnan. Þess vegna hélt hæstv. ríkisstj. að sér höndum í sambandi við frekari virkjunarrannsóknir, bæði á Kröflu, í sambandi við Jökulsá eystri og einnig í sambandi við Skjálfandafljót. Ekki mátti heldur heyrast minnst á virkjun Svartár, og á sumrinu 1972 kaus ríkisstj. eða hæstv. iðnrh. frekar að tengja saman orkuskortinn á Norðurl. e. og Norðurl. v. með línunni frægu, sem er orðin eins konar háðungarmerki hæstv. iðnrh. Í óveðrinu á dögunum brotnuðu nokkrir staurar á þessari línu, og væri fróðlegt að fylgjast með því, hvað viðgerðarkostnaðurinn á línunni verður orðinn mikill, þegar straumurinn kemur loksins á hana, — væri gaman að sjá, hversu margir staurar hafa þá brotnað. Það mátti ekki heldur heyrast minnst á það að virkja Skeiðsfoss.
Nú er þetta svolítið að breytast. Orkuskorturinn er orðinn svo áþreifanlegur, að hæstv. ríkisstj. treystir sér ekki lengur til þess að standa algerlega á móti frekari virkjunum norðanlands. En hún hefur þann háttinn á að reyna að tefja fyrir framgangi slíkra virkjana eftir mætti, og það kemur m.a. fram núna, þegar farið er að tala um það hér, að Kröfluvirkjun eigi ekki að koma í gagnið fyrr en eftir árið 1979. Þá fyrst eiga Norðlendingar samkv. stefnu núv. ríkisstj. að fá nýja virkjun norðanlands, og sá maður, sem flytur okkur þennan boðskap, er formaður svokallaðrar byggðanefndar. Það er skrýtin byggðastefna, sem byggist fyrst og fremst á því að hindra alla þróunarmöguleika, allan vaxtamátt byggðanna með því að loka fyrir rafmagnið.
Ég sagði áðan, að stefna hæstv. ríkisstj. gagnvart Norðurlandi í orkumálum hefði frá upphafi verið sú að tengja Norðurland við Suðurland og láta okkur fá rafmagnið að sunnan norður. Mér hefur skilist, að þessi lína norður muni ekki komast í gagnið fyrr en í fyrsta lagi sumarið 1976. Samkv. þeim upplýsingum, sem ég hef fengið frá Orkustofnun, er eðlilegt að gera ráð fyrir því, að slíkri línulagningu sé lokið tveim árum eftir að framkvæmd hennar hefst, og það byggist m.a. á því, að afgreiðslufrestur á margs konar hlutum, sem til slíkrar línu þarf, er mjög langur og er sífellt að lengjast. Þessar upplýsingar fékk ég frá orkumálastjóra og hef áður fengið samsvarandi viðmiðun hjá rafmagnsveitustjóra ríkisins. Það er rétt að taka það fram í þessu sambandi, að ýmsir hv. þm. úr stjórnarflokkunum, einkum úr Alþb., eru að reyna að flýta fyrir línunni með því að segja: Ætli það verði ekki á árinu 1975? Það er náttúrlega hægt að tala í þeim dúr núna. En það er nú einu sinni svo, að það er ekki byrjað að leggja línuna, frumhönnun hennar er ekki lokið, og það liggur ekki einu sinni ljóst fyrir enn þá, hvaðan hún á að liggja. Það á svo langt í land.
Þetta mál mun koma frekar til umr. í sambandi við annað mál hér í þessari hv. d., og mun ég ekki fara lengra út í það. En ég hlýt að harma það enn, að þessi stefna skyldi hafa verið tekin, og lýsi algerri ábyrgð á hæstv. ríkisstj. í þessu sambandi og minni enn einu sinni á, að á s.l. ári fór þriðja hver króna af brúttótekjum Laxárvirkjunar í olíukaup, bara í olíukaupin. Svo var nú eftir viðhaldið á öllum dísilvélunum og annað, sem til þyrfti.
Sannleikurinn í þessu máli er sá, að Norðlendingar eru afskaplega illa settir. Það var rætt um það í fúlustu alvöru og gerð um það ályktun í stjórn Rafveitu Akureyrar á s.l. vetri að fela rafveitustjóra að athuga um kaup á vararafstöðvum, dísilvélum, til heimabrúks á Akureyri til þess að hindra það, að húsin, sem þar eru, eyðilegðust, ef verulegar truflanir yrðu á rafmagnsframleiðslunni. Og það var ósköp eðlilegt, að þessi samþykkt var gerð, vegna þess að á s.l. vetri var mjög nærri því, að sum nýju húsanna þar uppi á brekkunum yrðu fyrir stórskemmdum.
Ég vil svo ljúka máli mínu með því að vona, að þrátt fyrir það, sem hv. þm. Steingrímur Hermannsson sagði hér áðan, sé þó einhver von um það, — og ég treysti í því efni á hæstv. ráðh. Björn Jónsson, sem hefur haft meiri skilning á rafmagnsmálum okkar Norðlendinga en orkumrh, og hefur að mörgu leyti staðið vel að málefnum Norðlendinga í því sambandi gagnvart orkumrh. í ríkisstj., — ég geri mér enn vonir um það, að þessi hæstv. ráðh. muni geta beitt sér fyrir því innan ríkisstj. með okkur öðrum þm. þessa kjördæmis, að Orkustofnun geri þegar ráðstafanir til þess að tryggja nægilega stóran jarðbor til gufuborana í Kröflu á árinu 1975 og að okkur takist einnig að knýja það fram, að frumhönnun Kröfluvirkjunar verði lokið í árslok 1974 og þannig verði tryggt, að Norðlendingar fái nægilega mikið og öruggt rafmagn við fyrstu hentugleika. Ef rétt er haldið á málum í sambandi við Kröfluvirkjun, mun sú virkjun verða tilbúin, áður en línan kemst norður væntanlega. Að sjálfsögðu tökum við það fram yfir annað að fá rafmagn í fjórðungnum heima við bæjardyrnar með öllu því, sem slíku fylgir.