05.11.1973
Efri deild: 12. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 345 í B-deild Alþingistíðinda. (266)
Umræður utan dagskrár
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :
Herra forseti. Mergur þess máls, sem hv. 3. þm. Reykn. hefur vakið hér utan dagskrár, er sá, hvort beitt verður eða ekki þeim stórfelldu fjöldatakmörkunum á tölu nema á síðari námsárum í læknadeild, sem samþ. hafa verið í deildarráði, eða ekki. Svar mitt við því atriði er hið sama og ég gaf sendinefnd læknadeildar á föstudaginn. Slík fjöldatakmörkun er óviðunandi, og afstaða mín er sú, að það, sem gera þarf til að afstýra slíkri fjöldatakmörkun, verður að framkvæma.
Þetta er meginatriði þess máls, sem nú er á döfinni, en úrræðin til að framfylgja þeirri afstöðu, sem ég nú hef lýst, eru að sjálfsögðu miklu margbrotnari og ekki gefið, að í hverju tilviki sé þar unnt að gefa tæmandi svör á þessari stundu.
Eins og hv. fyrirspyrjandi tók fram, er þetta mál ekki nýtilkomið. Það á sér langan aðdraganda. Leitað hefur verið ýmissa úrræða, en þau hafa ekki reynst viðhlítandi, eða frá úrræðum, sem ósýnt er, hvort hefðu reynst viðhlítandi, hefðu þau verið framkvæmd, hefur verið horfið.
Ég ætla ekki að fara að tefja tíma hv. d. með því að leitast við að gefa sögulegt yfirlit yfir það, hvers vegna læknadeild hefur orðið hornreka í byggingarmálum Háskólans. En ég tek undir það hjá fyrirspyrjanda, að það hefur hún orðið. En ég mun leitast við að svara spurningum hans í tvennu lagi: annars vegar gera grein fyrir þeim bráðabirgðaráðstöfunum, sem hafðar voru uppi á síðasta ári og þessu til þess að leitast við að leysa yfirvofandi vanda, hins vegar láta í ljós álit á, hver tök eru á að verða við þeim ábendingum, sem komu fram í samþykkt háskólaráðs frá 1. nóv.
Varðandi bráðabirgðaráðstafanir vegna húsnæðisskorts pre- og paraklínískra deilda er það að segja, að haustið 1971 voru með samþykki menntmrn. og fjmrn. gerðir samningar um leigu af hálfu Háskóla Íslands á umfangsmiklu húsnæði á tveimur stöðum í borginni til afnota fyrir kennslu inngangsgreina í læknadeild. Hér var um að ræða um það bil 1100 fermetra húsnæði að Ármúla 30, sem tekið var á leigu til 10 ára, og um það bil 400 fermetra húsnæði að Grensásvegi 12, tekið á leigu til ársins 1975, en í því húsi hafði Háskólinn þegar nokkurt húsnæði til afnota. Húsnæðið að Ármúla 30 var ætlað til kennslu í líffærafræði og lífefnafræði, svo og fyrirlestrakennslu í efnafræði og eðlisfræði. Einnig var ráðgert, að læknanemar á fyrri stigum náms fengju þar lestraraðstöðu. Að Grensásvegi 12 var ætlaður staður fyrir kennslu í lífeðlisfræði, en í sama húsi fer einnig fram kennsla í þeirri grein ásamt líffræði á vegum verkfræði- og raunvísindadeildar. Hvort tveggja húsnæðið var innréttað sérstaklega vegna afnota Háskólans og kostnaður við það greiddur úr byggingarsjóði hans. Þetta húsnæði var tekið í notkun á s. l. háskólaári.
Með þessum ráðstöfunum var á sínum tíma talið, að húsnæðisþörf umræddra greina yrði að verulegu leyti leyst fyrir næstu ár, jafnvel allt þar til nýbyggingar fyrir læknadeild kæmu til skjalanna. Á þessu ári hefur hins vegar komið í ljós, að læknadeild telur þörf frekari bráðabirgðaráðstafana, m. a. vegna líffærafræðikennslunnar. Er í því sambandi þess að geta, að óvenjulegur fjöldi stúdenta innritaðist í læknadeild haustið 1972 og mun meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þessi mál eru til meðferðar hjá stjórnvöldum Háskólans. Í ályktun háskólaráðs 1. nóv. s. l. er bent á þá leið, að húsnæðisskortur hinna svonefndu pre- og paraklínísku deilda verði leystur með verksmiðjuframleiddum einingarhúsum, sem notuð verði sem rannsóknarstofur og kennsluhúsnæði, meðan undirbúningur og framkvæmdir nýbygginga standa yfir. Rn. telur sjálfsagt, að þessi leið verði könnuð á grundvelli ítarlegrar athugunar á umræddum húsnæðisþörfum.
Um klíníska kennslu á Borgarspítala og Landakotsspítala, sem um er rætt í b-lið samþykktar háskólaráðs, er þetta að segja:
Í bréfi til deildarforseta læknadeildar Háskóla Íslands 14. júní s. l. lýsti menntmrn. þeirri stefnu, að við menntun lækna beri að leitast við að nýta sem best aðstöðu í öllum sjúkrahúsum í Reykjavík og öðrum heilbrigðisstofnunum. Var talið æskilegt, að læknadeild gerði í samráði við formenn viðkomandi stofnana áætlun um, hvernig slíku samstarfi milli stofnananna og Háskólans yrði með hagkvæmum hætti á komið. Um sama leyti beitti rn. sér fyrir því, að fengin var heimild til að stofna tvær hlutastöður dósenta tengdar sérfræðingastöðum við handlækningadeild og lyflækningadeild Borgarspítalans. Eftir viðræður milli forráðamanna Borgarspítalans og læknadeildar óskuðu þessir aðilar eftir því í bréfi til menntmrn. 17. sept., s. l.,að þessar tvær dósentstöður yrðu auglýstar lausar til umsóknar, og hefur það verið gert. Í framangreindu erindi var tekið fram, að samkomulag um stöður þessar væri bundið því skilyrði, að Háskóli Íslands og menntmrn. skuldbindu sig til að sjá fyrir viðunandi kennsluaðstöðu, bæði hvað snertir húsnæði og tækjabúnað, umfram það, sem Borgarspítalinn gæti þegar látið í té. Í tilefni af því óskaði rn. eftir því með bréfi 26. sept. s. l., að forráðamenn læknadeildar Háskóla Íslands og Borgarspítalans hefðu samstarf við samantekt grg. um það, hvaða úrbætur væru taldar nauðsynlegar til þess, að kennsluaðstaðan yrði talin viðumandi.
Í fjárl. 1973 var veitt fé til að koma á fót nýjum kennarastöðum í læknadeild, sem hér segir: Prófessorsembætti í heimilislækningum, hlutastöðu dósents í stað hlutastöðu lektors í líffærameinafræði, þremur hlutastöðum dósenta í stað fullrar lektorsstöðu í lífefnafræði, fullri lektorsstöðu í lífeðlisfræði, fullri lektorsstöðu í lyfjafræði, hálfri lektorsstöðu í lífefnafræði, tveimur öðrum hlutastöðum lektora og loks aðjúnktstarfi í lyfjafræði. Hafa allar þessar stöður verið auglýstar lausar til umsóknar nema prófessorsembættið í heimilislækningum, sem læknadeild taldi ekki tímabært að stofna á þessu ári.
Í frv. til fjárl. fyrir árið 1974 er gert ráð fyrir fjárveitingum til nýrra kennslustarfa í læknadeild sem hér segir: Prófessor í taugasjúkdómum, sem kemur í stað hlutastöðu dósents í þeirri grein, fullt dósentstarf í bæklunarlækningum, fjórar hlutastöður dósenta í lyflæknis- og handlæknisfræði og aðjúnktstarf í verklegri lífeðlisfræði. Menntmrn. hafði við undirbúning fjárlagafrv. lagt til, að til viðbótar yrði veitt fé til prófessorsembættis í félagslækningum, hálfrar dósentsstöðu í lífeðlisfræði, tveggja hlutastaða dósenta í lyflæknis- og handlæknisfræði og annars aðjúnktstarf í verklegri lífeðlisfræði. Þá hafði menntmrn. gert tillögu um stöðu ritara fyrir læknadeild í skrifstofu Háskólans, en sú fjárveiting er ekki í fjárlagafrv. Hins vegar telur rn. brýna nauðsyn á, að leiðrétting verði gerð í því efni, og hefur gert ráðstafanir til þess, að það mál verði upp tekið við meðferð fjárlagafrv. á Alþingi.
Varðandi aðra liði í till. háskólaráðs, en gerðir hafa verið að umtalsefni hér á undan, vil ég segja þetta:
Till. háskólaráðs um bráðabirgðalausn á húsnæðisskorti pre- og paraklínískra deilda eru mjög athyglisverðar og falla að hugmyndum, sem fram hafa komið hjá heilbrrn. og yfirstjórn byggingarframkvæmda á Landsspítalalóð um verksmiðjuframleidd rannsóknar- og kennsluhús á Landsspítalalóðinni. Til athugunar er að fela yfirstjórn mannvirkjagerðar á Landsspítalalóðinni að taka málið upp og gefa rn. báðum skýrslu um þessi mál. En það vil ég taka fram, að þessar till. hafa ekki komið frá Háskólanum fyrr en í þeirri samþykkt, sem gerð var 1. nóv.
Varðandi c-liðinn í till. háskólaráðs um, að gengið verði nú þegar frá byggingaráætlun og endanlegu skipulagi á sameiginlegri lóð Landsspítalans og læknadeildar og verði ákvarðanir í þessum efnum teknar í samráði við Háskóla Íslands, vil ég sérstaklega segja þetta:
Hér er gerð að nokkru leyti óraunhæf krafa, vegna þess að enn er óleystur sá skipulagslegi vandi, sem fyrirhuguð geðdeildartrygging á Landsspítalalóðinni veldur. Eins og kunnugt er, kom upp í vor alvarlegur ágreiningur innan yfirstjórnarinnar um þessi mál. Unnið er nú að kappi að því að leysa þann ágreining á grundvelli ábendingar frá Mr. Weeks, hinum breska sérfræðingi, sem fjallað hefur um byggingar í þágu læknakennslunnar á lóð Landsspítalans og verið hefur skipulagslegur ráðunautur ráðuneytanna beggja um þessi mál. Vonir standa til, að úr því fáist skorið innan tveggja til þriggja vikna, hvort um sameiginlega ákvörðun ráðuneytanna getur verið um að ræða í þessu erfiða máli.
Varðandi b-liðinn um framkvæmd á fjármögnunaráætlunum fyrir næstu 5–10 ár vil ég segja þetta:
Háskólaráð ber fram þá hugmynd, að fjárveitingar verði veittar til fyrirhugaðra bygginga á Landsspítalalóðinni í heild, þ. e. að ráðstöfun byggingarfjár á einstök ár og einstakar byggingar sé með samþykki ráðuneytanna ákvörðuð af yfirstjórninni. Þessi hugmynd er athyglisverð.
Hefur hún verið rædd hjá yfirstjórn byggingarframkvæmdanna og mundi án efa, kæmi hún til framkvæmda, bæði hafa í för með sér, að auðveldara væri að gera fjárveitingaryfirvöldum grein fyrir því, sem þyrfti við afgreiðslu hverra fjárlaga, og eins að auðvelda gerð langtímaáætlana.
Varðandi f-liðinn um ráðningu arkitekta við hönnun tiltekinna bygginga í þágu læknakennslunnar á Landsspítalalóð er þetta að segja:
Mjög er sennilegt, að rétt sé að fara þá leið, sem hér er bent á. Þó þykir ástæða til þess að benda á, að skýlausar kröfur Háskóla Íslands um forgang vissra bygginga geta komið fjárveitingaryfirvöldum og yfirstjórninni í sömu vandkvæði hvað viðkemur þessum byggingum og voru í sumar, þegar krafan um skýlausan forgang geðdeildarbyggingar var sett fram.
Þetta eru, herra forseti, þau svör, sem ég hef á þessu stigi á takteinum við fsp. hv. þm.