20.03.1974
Neðri deild: 87. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2991 í B-deild Alþingistíðinda. (2674)

259. mál, skattkerfisbreyting

Frsm. 1. minni hl. (Matthías Á. Mathiesen):

Herra forseti. Þegar frv. til l. um skattkerfisbreyt. var til meðferðar í þessari hv. d., gerðum við sjálfstæðismenn mjög ítarlega grein fyrir sjónarmiðum okkar í skattamálum, sem við reyndar höfðum áður gert í hv. þd. á þessu þingi, er frv. okkar um breyt. á skattal. var til 1. umr. Við gerðum tilraun til þess að fá frv. um skattkerfisbreyt. breytt og fluttum við það brtt. í samræmi við frv. okkar, þannig að í stað aukinnar skattbyrði, sem leiðir af samþykkt þessa frv., yrði skattbyrðin létt í samræmi við stefnu og till. okkar sjálfstæðismanna í skattamálum. Við gerðum enn fremur grein fyrir, með hvaða hætti við legðum til, að ríkissjóði væri bætt tekjutap það, sem af okkar brtt. leiddi, ef samþykktar yrðu. Nokkrar af till. okkar voru samþ. í þessari hv. d., en nú liggur frv. fyrir eftir afgreiðslu Ed. svo til óbreytt frá sinni upprunalegu mynd, þó þannig, að gildistími þess er aðeins til áramóta.

Nú hefur hæstv. fjmrh. flutt brtt. um, að í stað 5% söluskattsauka komi 4% söluskattsauki, auk þess um breyt. á gildistíma l. Með þessari brtt. hæstv. fjmrh. um 4% söluskattsauka er ein meginforsendan fyrir frv. hans brostin, þ.e. sú forsenda, að það komi, eins og hann orðaði það, króna í stað krónu. Í Ed. var þessu frv. breytt þannig, að l. giltu aðeins til áramóta, þrátt fyrir það samkomulag, sem ríkisstj. taldi sig hafa gert við verkalýðshreyfinguna í sambandi við nýafstaðna kjarasamninga. Og nú duga 4% að dómi ríkisstj. til þess að mæta þeirri skattalækkun, sem þetta frv. gerir ráð fyrir.

Ég minni á till. ríkisstj. frá því fyrir jól, þegar hún taldi sig þurfa 1% söluskattsauka til þess að mæta þeim tollalækkunum, sem þá var gert ráð fyrir og lögfestar urðu án nokkurs söluskattsauka. Í ljós hefur komið það, sem stjórnarandstaðan sagði hér á Alþ. í des., að tolltekjurnar væru of lágt áætlaðar og það dugir meira að segja meira en til að mæta því tolltekjutapi, sem það frv. gerði ráð fyrir. Þannig er þessu enn varið. Þegar ríkisstj. með till. hæstv. fjmrh. staðfestir það, sem haldið var fram í upphafi, að um hærri upphæð væri að ræða til ríkissjóðs en sem nam skattalækkuninni, þá er komið fram það, sem stjórnarandstaðan sagði. Hins vegar gengur till. hæstv. fjmrh. ekki jafnlangt og við, sem höfum gagnrýnt þetta frv. og þá stefnu, sem í því felst, teljum, að þyrfti til þess að ná því, sem hæstv. fjmrh. sagði, krónu fyrir krónu. Lækkun söluskattsauka um 1% er yfirlýsing hæstv. fjmrh. um, að 700 millj. kr. hafi hann ætlað að afla ríkissjóði umfram það, sem átti að verða til þess að lækka tekjuskatta.

Við þessa umr. freistum við sjálfstæðismenn þess enn að fá þessu frv. breytt. Við flytjum þrjár brtt. Þá fyrstu við 4. gr. frv. um að breyta skattþrepunum þannig, að af fyrstu 150 þús. kr. skattgjaldstekna verði greidd 20%, af 150300 þús. kr. tekjum greiðist 30%, en af tekjum yfir 300 bús. kr. greiðist 40%. Þeir, sem gera sér grein fyrir því, hvernig skattstiginu er uppbyggður og hvernig hann kemur fram með þeim skattafslætti, sem tekinn er inn í þetta frv., gera sér grein fyrir því, að flestir skattgreiðendur verða komnir í hæsta skattþrep, áður en þeir vita af. Þess vegna freistum við þess með þessari till. að haga þessu þannig að breikka skattþrepin og gera þá ráð fyrir, að hér verði um að ræða töluverða skattalækkun fyrir þá, sem millitekjur hafa.

2. brtt. okkar er að í staðinn fyrir 5%, þ.e.a.s. 5 af 100 í 8. gr. frv., eins og það kemur frá Ed., verði 3% söluskattsauki til þess að mæta því tekjutapi, sem ríkissjóður verður fyrir með samþykkt þessa frv., sem hér liggur fyrir, svo og þeirra brtt., sem við sjálfstæðismenn flytjum. Þær áætlanir og þeir útreikningar, sem lagðir hafa verið fyrir fjh: og viðskn., sýna berlega, hversu varlega er áætlað í sambandi við tekjur ríkissjóðs af tekjuskatti. Við teljum því, að 3% söluskattsauki muni mæta því tekjutapi, sem ríkissjóður verður fyrir.

3. brtt. er svo við 18. gr. frv. um, að í staðinn fyrir það að hækka launaskatt standi launaskattur í stað, verði áfram 21/2%, en í staðinn fyrir það, að 1% hefur runnið til Byggingarsjóðs ríkisins og 11/2% í ríkissjóð, þá leggjum við til. að 2% renni í Byggingarsjóð, en 1/2% í ríkissjóð, þannig, að þau 2%, sem frv. gerir ráð fyrir til Byggingarsjóðs, standi, en það verði látið ganga út yfir þann launaskatt, sem runnið hefur til ríkissjóðs sem bráðabirgðatekjustofn frá verðstöðvuninni 1970.

Þessar till. eru fluttar á þskj. 537, en í samræmi við 2. brtt., þ.e.a.s. um lækkun söluskattsaukans úr 5 í 3%, þá leyfi ég mér að flytja hér skrifl. brtt.. ásamt með hv. þm. Ásberg Sigurðssyni við 19. gr., þannig að þar sem þar stendur 5% söluskattsauki komi 3% söluskattsauki til samræmis við 2. brtt. okkar. Leyfi ég mér að óska þess, herra forseti, að leitað verði afbrigða fyrir henni hér síðar.

Eins og fram hefur komið í ræðum stjórnarandstæðinga hér á Alþ. í sambandi við þetta frv., þá er ljóst mál, að inn á nýja braut fer ríkisstj. í þessu frv. tilknúin af verkalýðssamtökunum. Hún hverfur frá þeirri skattránsstefnu, sem hún hefur haft allt frá upphafi. Hún breytir frá beinum sköttum í óbeina skatta. Þetta er, eins og hæstv. fjmrh. sagði áðan, hér á Alþ. stutt af öllum þingflokkum. Það, að þessi breyt. eigi sér stað með þeim hætti, að skattbyrði borgaranna verði aukin, er ekki í samræmi við þá stefnu og þann málflutning, sem við sjálfstæðismenn höfum haft hér á þingi. Við höfum viljað fara úr beinum sköttum í óbeina skatta og lækka skatta á almenningi. En þessu frv. er ekki þannig varið, jafnvel þó að svo færi sem mátti heyra af ræðu hæstv. fjmrh., að till. um 4% söluskattsauka verði samþ. hér í þessari hv. d. nú.

Það á eftir að koma í ljós, að sú skattalækkun, sem ríkisstj. hefur látið í veðri vaka, að væri fylgjandi samþykkt þessa frv., er ekki raunveruleg. Þróun þessara mála s.l. hálfan annan áratug er táknræn fyrir þær ríkisstjórnir, sem setið hafa í landinu. Á tímum viðreisnarstjórnar er létt á skattbyrðinni. Þá er þessum málum þannig hagað, að það eru hátekjumenn, sem komast í efsta skattþrepið. Á árinu 1973 er þessari þróun gersamlega snúið við, en þá er komin til valda stjórn, sem nefndi sig í upphafi stjórn hinna vinnandi stétta. Op hvernig er þessu þá varið? Þá er niðurstaðan sú, að um 72% þeirra, sem greiða skatt, eru komnir í efsta skattþrep. Og hvernig skyldi svo það frv., sem hér er til meðferðar, koma til með að hafa áhrif í sambandi við þetta? Mér mætti segja, að niðurstaðan yrði sú, að á milli 65 og 70% þeirra, sem koma til með að greiða skatt 1974, komi til með að greiða skatt samkv. hæsta skattþrepi. Þetta er tala, sem út hefur verið reiknuð samkv. þeim grunni, sem hér hefur verið gefinn, og þá sjá menn, hversu mikil bragarbót er gerð á, ef það verða 65% í staðinn fyrir 72% af skattgreiðendum, sem lenda í hæsta skattþrepi.

Ég vildi ekki láta hjá líða að vekja athygli á þessu hér, þegar mál þetta er til síðustu umr. í þessari hv. deild og vonast til þess, að þær brtt., sem við sjálfstæðismenn flytjum, nái fram að ganga. Þá mundi ég vilja segja, að nokkuð nærri stæði það, sem hæstv. fjmrh. sagði í upphafi, að út úr dæminu kæmi króna fyrir krónu.

Ég sagði það áðan um breyt. úr beinum sköttum í óbeina skatta, að það væri fyrir frumkvæði sjálfstæðismanna hér á Alþ., sem farið er inn á þá braut, en að það eigi að vera með þeim hætti, að skattbyrði borgaranna sé þyngd, það er mesti misskilningur.

Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta mál. Ég vonast til þess, að þær brtt., sem við hér flytjum, verði samþykktar. Þær hafa verið lagðar fyrir ríkisstj., þar sem gerðar voru tilraunir til samkomulags, en þeim var hafnað. Ég vona engu að síður, að hér séu menn í þessari hv. d., sem muni ljá þeim lið, og þær nái fram að ganga.