20.03.1974
Neðri deild: 87. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 2999 í B-deild Alþingistíðinda. (2680)
259. mál, skattkerfisbreyting
Gunnar Thoroddsen:
Herra forseti. Við þessa lokaumr. hér vil ég taka það fram, er nú skal greina:
Það er stefna Sjálfstfl., að almennar launatekjur landsmanna skuli skattfrjálsar og að tekjuskatti sé að öðru leyti stillt svo í hóf, að hann dragi ekki úr framtaki og vinnulöngun. Þessi stefna er mótuð í því frv. um stórfellda lækkun tekjuskatts, sem sjálfstæðismenn hafa flutt á þessu þingi.
Núverandi stjórnarflokkar hafa gengið í þveröfuga átt við þessa stefnu. Vorið 1972 fengu þeir lögfestar skattabreyt., sem lögðu stórauknar byrðar á allan almenning. Þessi skattalög vinstri stjórnarinnar hafa vakið svo magnaða andúðaröldu að stjórninni er ekki stætt lengur á skattpíningarstefnunni. Barátta stjórnarandstæðinga, almenningsálitið og nú síðast þrýstingur frá samtökum launþega hafa knúið stjórnarflokkana til undanhalds. Ber að þakka þá viðleitni verkalýðssamtakanna að fá leiðréttingu á hinum ranglátu skattalögum, þótt sú viðleitni hafi vegna framkomu stjórnarinnar ekki borið þann ávöxt, sem við teljum æskilegan.
Stjórnarfrv., sem hér liggur fyrir, felur í sér allt of litlar umbætur á tekjuskattslögunum. Skattprósentur eru of háar, bilin milli þeirra, skattþrepin, of þröng. Skattstiginn rís of ört. Þessir alvarlegu annmarkar munu valda því, að fjöldi manna með meðaltekjur mun lenda í hámarksskatti, auk þess eru ákvæði frv. um svokallað skattafsláttarkerfi gölluð og að sumu leyti ranglát. Stjórnarflokkarnir hafa hafnað sérhverri uppástungu um lagfæringu í þessum efnum.
Sjálfstfl. getur ekki fallist á áætlanir ríkisstj. um væntanlegt tekjutap ríkissjóðs af skattbreyt. á þessu ári. Það, sem gerir áætlanir stjórnarinnar um tekjutap vafasamar í meira lagi, er m.a. þetta:
1) Stjórnin miðar ekki við þá fjárhæð tekjuskatts, sem í fjárl. stendur, heldur aðra miklu hærri hugsaða upphæð, sem núgildandi skattaólög mundu skila ríkissjóði umfram fjárlög, og stjórnin heimtar allan þennan umframgróða bættan.
2) Allar líkur eru til þess, að álagður skattur í ár samkvæmt stjórnarfrv. verði töluvert hærri en stjórnin vill áætla.
3) Öruggt má telja, að innheimta tekjuskatts í ár verði miklu meiri en stjórnin áætlar.
Af þessum og fleiri ástæðum teljum við, að tekjutap ríkissjóðs af breyt. verði mun minna, svo að hundruðum millj. skiptir, en stjórnin heldur fram. Því tekjutapi, sem ríkissjóður verður fyrir, vill Sjálfstfl. fyrst og fremst mæta með því að draga úr hinum risavöxnu útgjöldum ríkisins. Þess vegna var flutt till. um 1500 millj. kr. lækkun á útgjöldum fjárl. á þessu ári. Eftir að talsmenn stjórnarflokkanna hér í d. höfðu andmælt þessari till., talið hana óframkvæmanlega með öllu, hrakti hæstv. forsrh. allar þessar fullyrðingar með atkv. sínu í Nd. og ræðu í Ed., þar sem hann lýsti þessa till. vel framkvæmanlega. Hann rak fullyrðingar talsmanna stjórnarflokkanna svo kirfilega ofan í þá, að síðan hafa þeir þagað þunnu hljóði, og þurfum við stjórnarandstæðingar engu að bæta við þá hirtingu. En samt gerist það undur, sem er raunar í samræmi við önnur furðuverk þessarar stjórnar, að þessi till. um lækkun útgjalda ríkisins, sem forsrh. greiddi atkv. með og mælti fyrir, var felld út úr frv. í Ed. Og nú hefur hæstv. forsrh. lýst því yfir, að hann mundi ekki samþykkja þessa till. hér í annað sinn. Það er víst ærið átak að fylgja rödd skynseminnar í eitt skipti í sama máli.
Samkv. frv. á að hækka launaskatt úr 21/2 í 31/2%. Launaskatturinn leggst þungt á atvinnureksturinn, m.a. á þann íslenska iðnað, sem keppir við erlendar iðnaðarvörur. Í reynd verkar launaskatturinn sem verndartollur fyrir erlendan iðnað. Sjálfstfl. vill ekki hækkun launaskattsins og flytur því till. um, að 2% renni í byggingarsjóð, og 1/2% til ríkissjóðs, m.ö.o. að hann hækki ekki frá því, sem nú er.
Ríkisstj. setti Alþ. úrslitakosti: annaðhvort 5 söluskattsstig eða ekkert tekjuskattsfrv. Hæstv. fjmrh. tók vel upp í sig. Ef 5 stigin falla, mun stjórnin sitja, en ríkissjóður fara á hausinn. Vegna hinnar ákveðnu samstöðu stjórnarandstöðunnar hefur stjórnin nú látið undan siga og lækkað sig í 4 stig. Sjálfstfl. telur heildarskattbyrðina allt of þunga fyrir og vill ekki bæta ofan á hana. Hann telur, að 5 söluskattsstig og 4 einnig muni gera töluvert meira en vega á móti tekjuskattslækkun og því þyngja heildarskattbyrðina. Ef frv. við endanlega afgreiðslu felur í sér 5% eða 4% söluskattshækkun, vill Sjálfstfl. ekki standa að slíkri skattheimtu og mun því greiða atkv. á móti frv.