20.03.1974
Neðri deild: 87. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3009 í B-deild Alþingistíðinda. (2683)

259. mál, skattkerfisbreyting

Guðlaugur Gíslason:

Herra forseti. Ég mun ekki ræða þetta frv. mikið efnislega, það hafa aðrir flokksbræður mínir gert. Fyrir liggur, að allir flokkar eru sammála um lækkun beinna skatta og breytingu á tekjuskattsl. í þá átt. Hitt liggur einnig fyrir, að menn hefur greint nokkuð á um, hvað mikið þyrfti að koma í staðinn í hækkuðum söluskatti eða öðrum tekjum til ríkisins, og hefur þar ýmislegt einkennilegt komið fram, eins og t.d. hjá hv. 7. þm. Reykv., sem mér sýnist hafa komist nær heilan hring í sínum útreikningum og að lokum reiknað sig út úr kortum, eins og sagt er um skipstjóraefni, sem falla á prófi í stýrimannaskólanum, þar sem hann hefur nú reiknað sig út úr stjórnarandstöðunni og yfir í stjórnarliðið og þar með tekið ábyrgð á áframhaldandi lífi ríkisstj.

Það sem ég tel, að eðlilegt sé að ræða í sambandi við þetta mál. er ástand almennra efnahagsmála hjá þjóðfélaginu, eins og það er í dag. Það virðist vera nokkuð öruggt, að þegar vinstri stjórn sest að völdum hér á landi, taki það hana 2–21/2 ár að koma öllu efnahagskerfi þjóðarinnar úr skorðum. Þessi varð reynslan um stjórn Hermanns Jónassonar, sem mynduð var 1956, að eftir rúm tvö ár kom hann í ræðustól og tilkynnti þjóðinni, að óðaverðbólga væri þegar skollin á og fram undan væru það miklir erfiðleikar í efnahagsmálunum, að hann sæi ekki fram á, að hann hefði samstöðu hjá stjórn sinni um, hvernig ætti að leysa málið. Hann hafði þann manndóm til að bera að biðjast lausnar fyrir sig og ríkisstj. sína. Hann kunni leikreglur stjórnmálanna og hann kunni leikreglur lýðræðisins. Þegar hann sá, að hann hafði ekki lengur meiri hl. á Alþ. til að koma fram umbótum, sem hann taldi nauðsynlegar í efnahagsmálum þjóðarinnar, baðst hann lausnar fyrir síg og ríkisstj. sína.

Þessu er því miður öðruvísi farið með hæstv. núv. ríkisstj. Hæstv. núv. forsrh, virðist ekki kunna leikreglur stjórnmálanna eða leikreglur lýðræðisins, þegar hann stendur frammi fyrir því hér á Alþ. í dag, að hann hefur ekki þingmeirihl. til að koma fram málum í gegnum Nd., heldur er hann kominn í þá aðstöðu, að hann verður að leita til stjórnarandstöðunnar, ef hann ætlar að koma sínum málum fram. Þetta er því meira ábyrgðarleysi að mínum dómi, þar sem við í dag stöndum frammi fyrir enn þá geigvænlegri verðbólgu en við stóðum þó frammi fyrir árið 1956, þegar stjórn Hermanns Jónassonar baðst lausnar. Ég segi alveg hiklaust, að áframhaldandi seta núv. ríkisstj. er hreint ábyrgðarleysi.

Það liggur alveg ljóst fyrir, að það, sem er að gerast í efnahags- og peningamálum þjóðarinnar, leiðir til þess, að þjóðfélagsþegnarnir margir hverjir verða fyrir beinu fjárhagslegu tjóni, eins og málin þróast nú. Og ég spyr: Er það heimilt fyrir nokkra ríkisstj. og getur nokkur forsrh. tekið þá ábyrgð á sig, þegar hann veit, og það — liggur alveg ljóst fyrir, að þannig er málum farið, að það er verið að rýra eignir þjóðfélagsþegnanna, mjög þó misjafnlega, flestir eða mjög margir tapa, aðrir græða, — er þá leyfilegt fyrir ríkisstj. að sitja áfram og hafa ekki aðstöðu til á Alþ. að koma fram þeim umbótum, sem hún telur þó nauðsynlegar? Ég segi alveg hiklaust nei.

Hverjir eru það, sem græða á því ástandi, sem nú er að skapast í þjóðfélaginu, óðaverðbólguástandi? Það eru auðvitað þeir, sem skulda mest, og það eru þeir, sem eiga miklar eignir. Það eru þeir, sem græða. Þetta liggur alveg ljóst fyrir. Þar á móti hlýtur að koma, að einhverjir tapa. Þetta er tilfærsla eigna á milli þjóðfélagsþegnanna. Þeir, sem tapa á verðbólgu, það eru auðvitað launastéttirnar og það eru þeir, sem eiga sparifé í landinu í dag. Nú dettur kannske einhverjum í hug að halda, að það séu „fjármálaspokúlantarnir“, sem eigi spariféð í lánastofnunum landsins. Ég fullyrði, að þeir eiga þar langsamlega minnstan hlut. Spariféð, sem hefur safnast upp á undanförnum áratugum hjá peningastofnunum landsins, er eign hins almenna borgara, — manna, sem hafa lagt eitthvað til hliðar, ætla sér einhverjar framkvæmdir eða ætla sér framfæri, þegar þeir kæmust á efri ár, og trúa því, að þetta væri þeirra stoð og stytta í ellinni. Af þessu fólki er verið að taka hluta af eignum þess með áframhaldandi óðaverðbólgu, eins og nú á sér stað.

Hæstv. forsrh. hefur boðað hér aðgerðir í efnahagsmálum. Það er út af fyrir sig rétt. En ég segi: Væri það ekki meiri manndómur hjá hæstv. forsrh. að segja af sér, láta þjóðina kveða upp dóm um þá aðstöðu, sem upp hefur komið í efnahags- og peningamálum, og láta síðan þá stjórn, sem síðan tæki við og þyrfti að vera mjög sterk stjórn, glíma við vandann og lagfæra það, sem lagfæra þarf, í stað þess að sitja hér án þess að geta komið málum í gegnum Nd. og ætla sér þannig kannske, eins og nú er farið að orða það, að reyna að skáskjóta málum í gegnum þingið, annaðhvort með samningamakki við stjórnarandstöðuna eða á annan hátt.

Ég segi alveg hiklaust að það er of alvarlegt ástand í dag í efnahagsmálum íslensku þjóðarinnar til þess að það megi leika sér að því, eins og núv. hæstv. ríkisstj. gerir, að láta óðaverðbólguna halda áfram. Það hefur verið bent á það hér, sem er alveg rétt, að launþegar, sem nýbúnir eru að semja um kaup sitt og kjör til tveggja ára, hafi verið sviknir. Þetta liggur alveg ljóst fyrir. Það veit hver einasti launþegi í landinu. Einum eða tveimur dögum eftir að samningar höfðu verið undirritaðir og forustumenn launþegasamtakanna höfðu fengið það samþykkt í sínum félögum, þá skella á þær mestu verðhækkanir á helstu nauðsynjavörum, sem nokkurn tíma hafa orðið. Spurningin er: Vissu samningamenn launþega um þetta, þegar þeir voru að undirrita samningana? Og ef svo var, sögðu þeir sínum umbjóðendum frá þessu, var þetta skýrt út á fundum verkalýðsfélaga, þegar var verið að fá samþykki þeirra fyrir samningunum? Var þetta skýrt út fyrir launþegunum, að stór hluti af þeirra tekjum yrði tekinn af þeim aftur þegar á næstu dögum, eftir 2–3 daga, og því síðan haldið áfram? Nú liggur fyrir, að Alþ. er beðið að samþykkja hækkun söluskatts um 4 stig. Þetta er auðvitað aukin verðhækkun á öllum lífsnauðsynjum. Það liggur einnig fyrir, að verðlagseftirlit hefur samþykkt hækkun á álagi til þeirra, sem annast vörudreifingu og annað, og það er ósköp eðlilegt, að þeir þurfi með hækkandi kauplagi að hækka álag fyrir sina þjónustu. Það leiðir hvort af öðru. En þetta bitnar allt á launþegum, sem ekki einu sinni fá þetta bætt í vísitölunni. Næsta vísitöluhækkun kemur ekki fyrr en eftir 21/2 mánuð, á meðan verða launþegar allir að bera þetta óbætt, og hver veit hvernig ástandið verður eftir 21/2 mánuð í þessum málum? Ég hygg, að því miður stefni í þá átt, að það verði kannske enn þá óhagstæðara fyrir launþegana en það þó er nú í dag, og er það þó sannarlega nægjanlega slæmt.

Ég sagði áðan, að ég teldi, að hv. 7. þm. Reykv., Gylfi Þ. Gíslason, hefði farið heilan hring í sínum útreikningum í sambandi við skattalagafrv., og hann hefði reiknað sig út úr kortinu með því að ætla að styðja stjórnarliðið við að koma málinu í gegn á þeim forsendum, sem nú liggja fyrir.

Ég vil benda á, að þegar málið var hér til 1. umr., henti það frumhlaup þennan hv. þm. að slá því föstu, að hækkun söluskatts þyrfti að vera um 31/2 stig. Hann hafði þá sem glöggur reiknimeistari fundíð það út, að tekjuskattslækkunin mundi nema 2 700 millj. og á móti því þyrfti 31/2 söluskattsstig til hækkunar. Þegar málið er skoðað í n. þessarar hv. d. milli 1. og 2. umr. kemur það í ljós, sem hv. 7. þm. Reykv. virðist ekki hafa gert sér grein fyrir við 1. umr., að tekjuskattslækkunin verður ekki 2 700 millj., hún verður 1700 milljónir. Þarna munar um 1 milljarð, og liggur þetta ljóst fyrir skv. upplýsingum hagfræðinga ríkisstj. sjálfrar, að tekjuskattslækkunin verður ekki, eins og áður var boðað af hæstv. fjmrh. og hæstv. 7. þm. Reykv. hafði tekið með í sinn reikning, — hún verður ekki 2 700 millj., hún verður 1 700 millj. Það liggur alveg ljóst fyrir, að hv. 7. þm. Reykv. hefur þarna fallist á hækkun söluskatts um a.m.k. rúmlega í stig meira en eftir útreikningum ríkisstj. þarf að vera. Þrátt fyrir að það liggur fyrir, að þarna skakkar um 1 milljarð, sem tekjuskattslækkunin verður minni en þessi hv. þm. hafði reiknað út, ætlar hann að fallast á með stjórnarliðinu að hækka söluskatt enn um 1/2 stig eða upp í 4 stig. Það getur vel verið, að þessi hv. þm. haldi, að hann geti fengið almenning til að trúa þessu og styðja þetta. Ég held, að þetta verði ákaflega erfiður biti fyrir hans flokk að kyngja. Það vita allir launþegar, að hækkun söluskatts er hækkun daglegra útgjalda fyrir hvern einasta launþega í landinu. Og þegar þm. úr stjórnarandstöðunni eru að leggjast á sveif með ríkisstj. um að taka meiri skatta af þjóðfélagsþegnunum en nauðsynlegt er og fulltrúar sjálfrar ríkisstj. hafa bent á, þá held ég, að það verði ákaflega erfitt fyrir Alþfl. að sannfæra launþega í landinu um að þeirra afstaða nú í dag sé rétt. Ég held, að hún sé mjög ábyrgðarlítil, vægast sagt. Stjórnarandstaðan hlýtur að eiga að gæta þess, að ríkisstj. á hverjum tíma fari ekki í skattamálum lengra ofan í vasa þjóðfélagsþegnanna en nauðsynlegt er. Það hlýtur að vera eitt af þeim atriðum, sem stjórnarandstaðan á hverjum tíma, hver svo sem hún er, hlýtur að gera sér grein fyrir og sporna við, ef hún hefur aðstöðu til þess.

Þetta hefur því miður ekki gerst í þessu tilfelli. Stjórnarandstaðan, hluti hennar, hefur hlaupið út undan sér, eins og sagt er, tekið þátt í að styðja áfram ríkisstj., sem allir vita, að ekki ræður við efnahagsmálin lengur, ekki hefur aðstöðu til að ráða við þau. Og sú ákvörðun, sem hér er verið að taka, er verðbólguaukandi og útgjaldaaukandi fyrir hvern einasta launþega í landinu og til óhagræðis fyrir þá aðila, sem síst skyldi, þ.e. þá aðila, sem sparifé kunna að hafa dregið saman til efri ára, en mjög til hagræðis fyrir alla stórefnamenn og sérstaklega fyrir þá, sem mest skulda.

Það er því næsta öfugmæli, að núv. ríkisstj. skuli kalla sig stjórn hinna vinnandi stétta, þegar þetta liggur fyrir. Það hefur engin stjórn á Íslandi, að ég hygg, sem nokkurn tíma hefur gert meira til þess að gera þá ríku ríkari og fátækari enn fátækari.