20.03.1974
Efri deild: 86. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3013 í B-deild Alþingistíðinda. (2690)
259. mál, skattkerfisbreyting
Geir Hallgrímsson:
Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar sjálfstæðismanna gera eftirfarandi grein fyrir atkv. okkar:
Við sjálfstæðismenn erum fylgjandi skattkerfisbreytingu, sem felur í sér lækkun beinna skatta, þótt það hafi í för með sér samsvarandi hækkun óbeinna skatta. Við getum þó ekki greitt þessu frv. atkv. og munum greiða atkv. gegn því af eftirtöldum ástæðum:
1) Heildarskattlagning á landsmenn hefur stóraukist í tíð núv. ríkisstj. Í stað þess að draga úr þessari skattlagningu með frv. eru óbeinir
— skattar hækkaðir meira en lækkun beinna skatta nemur.
2) Ekkert tillit hefur verið tekið til brtt. okkar sjálfstæðismanna um breikkun skattþrepa, lækkun skattstiga og sérsköttun hjóna, með þeirri afleiðingu, að tekjuskattar leggjast enn allt of þungt á meginþorra skattgreiðenda.
3) Launaskattur er hækkaður, á sama tíma og viðurkennt er, að gera þurfi sérstakar ráðstafanir til þess að atvinnuvegirnir verði reknir hallalaust, og í engu er sinnt till. okkar sjálfstæðismanna um, að Byggingarsjóður ríkisins fái fremur hluta þess launaskatts sem áður rann til ríkissjóðs.
4) Þótt till. okkar sjálfstæðismanna um niðurskurð á ríkisútgjöldum um 11/2 milljarð hafi verið samþ. í Nd., m.a. með atkvæði forsrh., þá er nú búið að fella niðurskurð á ríkisútgjöldum burt úr frv. Slík lækkun ríkisútgjalda hefði leitt til lægri heildarskatta á landsmenn alla, einstaklinga jafnt sem atvinnuvegi. í stað þessa hefur frv. um skattkerfisbreyt. í för með sér þyngingu heildarskattbyrða landsmanna, og var þó ekki á þær bætandi.
Með tilvísun til þess, sem hér hefur verið sagt, greiða þm. Sjálfstæðisfl. atkv. gegn frv.