21.03.1974
Neðri deild: 88. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3045 í B-deild Alþingistíðinda. (2716)
46. mál, jarðalög
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Hæstv. landbrh. rakti í upphafi sinnar ræðu aðdraganda þessa frv., sem hér liggur fyrir. Hann rakti einnig, hvernig það er samið, og ræddi meðferð þess til þessa dags, t.d. á búnaðarþingi, og hvernig því hefur verið breytt í hv. Ed. Hér skal því ekki haldið fram, að hæstv. ráðherra hafi farið með rangt mál í því, er hann sagði um þessi efni, en ástæða hefði verið til, að hann hefði fjallað nokkru ítarlegar um þennan undirbúningsþátt málsins heldur en fram kom í hans ræðu. Það er rétt, eins og fram kom hjá honum, að samþykktir voru gerðar á búnaðarþingi um að endurskoða þau l., sem hér er fjallað um. Þar var lögð áhersla á, eftir því sem kom fram í framsöguerindum við setningu búnaðarþings nú í vetur, að það skyldi vandlega'að því hyggja, að haft yrði náið samráð við sveitarfélögin í landinu um meðferð þessa máls og það skyldi tryggt svo sem verða mætti að styrkja tök sveitarfélaganna í sambandi við ábúð og eignarráð á landi til landbúnaðar. Ég hygg, að það sé ekki ofmælt, að þessi þáttur í sambandi við samningu þessa frv. hafi verið nokkuð vanræktur og það svo mjög, að verulegri gagnrýni hefur valdið, eins og fram kom í ræðu hv. 4. þm. Vesturl. hér áðan. Það er reyndar svo, að enda þótt hv. Ed. hafi í sumum greinum eflt nokkuð afskipti sveitarfélaga af þeim málum, er hér er um fjallað, miðað við það, sem frv. gerði ráð fyrir, er það upphaflega kom fram, þá gengur það að verulegu leyti á svig við sveitarfélögin, og settar eru upp nýjar stofnanir til þess að taka við verkefnum, sem með eðlilegum hætti ættu að vera í höndum sveitarstjórna.
Um afskipti búnaðarþings af þessu máli er það að segja, að það er rétt, að það hefur að mestu einróma mælt með þessu frv., og starfaði sérstök n. á búnaðarþingi 1973 til þess að fjalla um þetta mál. Eftir þá athugun var, eins og ég hef þegar sagt, samþykkt með meginþorra atkvæða gegn einu að mæla með samþykkt frv. með nokkrum breytingum. Meðal þeirra búnaðarþingsfulltrúa, sem áttu sæti í þeirri n., er um málið fjallaði á búnaðarþingi árið 1973, var, ef ég man rétt, Teitur Björnsson bóndi á Brún í Reykjadal. Nú virðist hins vegar svo, að eftir að menn hafa gefið sér betri tíma til þess að hugleiða þetta mál, hafi þeir áttað sig á því, að æskilegt sé að fara sér hægar en nú virðist stefnt að við afgreiðslu þessa frv. og taka ýmis ákvæði þess til nánari skoðunar. Til þess að sanna þetta vil ég leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp úr umsögn frá Búnaðarsambandi S.Þingeyinga, en undir það skrifa Hermóður Guðmundsson, Baldvin Baldursson og Teitur Björnsson, sem átti sæti í þeirri n., er um málið fjallaði á búnaðarþingi 1973. Í þessari umsögn segir svo, með leyfi forseta:
„Stjórn Búnaðarsambands S.-Þingeyinga hefur tekið til meðferðar frv. það til jarðalaga, er henni var sent til umsagnar. Stjórnin hefur orðið sammála um að styðja þá meginstefnu, er í frv. felst, og torvelda með löggjöf óæskilegt jarðabrask í hagnaðarskyni, án þess að frelsi bænda til eðlilegs raunverðs á fasteignum þeirra verði skert óeðlilega með löggjöf umfram eignir annarra þjóðfélagsborgara í landinu. Af þessu tilefni leggur stjórn sambandsins áherslu á, að öll eignarskerðingarákvæði frv. verði endurskoðuð enn frekar með hliðsjón af gildandi ákvæðum stjórnarskrárinnar, svo að tryggt sé, að endanleg afgreiðsla frv. verði í fullu samræmi við hana. Þá telur stjórnin hæpin þau ákvæði frv. að leggja Landnám ríkisins niður að svo komnu máli, þar sem það hefur á jákvæðan hátt stuðlað að raunhæfu viðnámi gegn byggðareyðingu í sveitum landsins og auk þess sinnt veigamiklu hlutverki í uppbyggingu og rekstri fóðurvinnslu úr íslensku grasi, sem ber að efla sem mest á næstu árum.
Stjórn Búnaðarsambandsins telur valdsvið byggðaráðs í frv. svo mikið og margþætt, að mjög þurfi til þessarar löggjafar að vanda.
Við teljum því rétt að fresta afgreiðslu jarðalagafrv. á yfirstandandi Alþingi til þess að tryggja sem besta samstöðu um meginstefnu þess, bæði hjá búnaðarsamböndum, búnaðarfélögum og sýslunefndum. Það skiptir að okkar dómi minna máli, hvort löggjöf þessi verður afgreidd árinu fyrr eða síðar, nái frv. fram að ganga með einhuga stuðningi bænda í landinu, sem er forsenda fyrir því, að löggjöfin nái tilgangi sínum.“
Í lok umsagnar Búnaðarsambands S: Þingeyinga segir:
„Af þessu tilefni sendir stjórn Búnaðarsambandsins engar till. til breytinga á frv. að svo komnu máli.“
Það er því ljóst, svo sem verða má, að enda þótt hæstv. ráðherra hafi bæði nú og áður hér á hv. Alþingi, sem og hvarvetna annars staðar, hampað því mjög, að þetta mál hafi fengið vandlegan undirbúning og því sé tryggð samstaða bændasamtakanna og meðmæli þeirra til þess, að það verði afgreitt, þá sést, að hér er mjög málum blandað. Þegar jafnvel sumir þeirra manna, sem um þetta hafa fjallað á búnaðarþingi og mælt með frv. þar, hafa við nánari umhugsun og frekari skoðun málsins lýst því yfir, að þeir telji nauðsyn að fresta afgreiðslu frv. vegna margra mjög veigamikilla atriða, þá er augljóst, að undirbúningur þess er ekki jafngóður og alls ekki slíkur sem vera skyldi.
Ég ætla ekki í þessari ræðu að tala mjög ítarlega um þetta efni, því að frv. verður væntanlega vísað til þeirra n., sem ég á sæti i, og gefst þá væntanlega tækifæri til þess að taka það til nánari athugunar. En nokkur atriði vil ég þó nú þegar við 1. umr. þessa máls taka til nokkurrar athugunar og leggja áherslu á.
Í fyrsta lagi vil ég leggja áherslu á það, að sá vandi, sem virðist tilgangur frv. að leysa, er til staðar.
Í öðru lagi er vert að reyna að átta sig á því, hvort vandinn verður leystur með því að afgreiða þetta frv.
Í þriðja lagi, hvort lausnin sé þannig, að unnt sé að sætta sig við hana fyrir þá, sem henni eiga að hlíta?
Í framsöguræðu hæstv. ráðherra var þess getið, að tilgangurinn með þessu frv. væri m.a. sá að koma í veg fyrir óeðlilegt brask með jarðir og hindra það, að eignarráð á landbúnaðarlandinu tapaðist til þeirra, sem ekki væru taldir æskilegir með að fara, og hyrfi úr höndum þeirra, sem landbúnað stunda. Þennan tilgang, sem ég skal ekki bera brigður á, að hafi verið ætlunin að hafa í heiðri við samningu þessa frv., er allt gott um að seg,ja. Það er augljóst, að það þarf að finna lausn á því vandamáli, sem víða er við að etja í sveitum landsins, að hætta er á því, að blómlegar landbúnaðarbyggðir rýrni við það, að hluti þeirra komist í hendur þeirra manna, sem hafa önnur sjónarmið í huga en að stunda landbúnaðarframleiðslu. Þetta vandamál er til staðar, og ég tek undir það, að á þessu vandamáli þurfi að taka. Það þarf að leysa með þeim hætti, að allir megi vel við una. Ég vil þó gera þær athugasemdir við það atriði í framsöguræðu hæstv. ráðh., að sums staðar, að hann taldi, væri þessi vandi mestur vegna þess, að jarðir væru brytjaðar niður til þess að fara undir sumarhústaðalönd. Þá vil ég leyfa mér að henda hæstv. ráðh. á það, að í gildandi náttúruverndarlögum eru ákvæði þess efnis, að hvergi má reisa sumarbústað án samþykkis hlutaðeigandi sveitarstjórnar. Sveitarstjórn í hverju sveitarfélagi hefur það því algerlega í sínum höndum að ráða því, hvort sumarbústaðir verða reistir í hennar umdæmi eða ekki. Þar þurfa ekki önnur ákvæði að koma til, og þau ákvæði, sem þetta frv. felur í sér, um að fela valdið öðrum aðilum tel ég vera síst til bóta. Auðvitað þarf að gæta þess, að þéttbýlisfólkið fái trygga leið til þess að njóta óspilltrar náttúru, að það fái aðgang að landinu til útivistar, bæði til þess að reisa sumarbústaði og til að njóta útilífs í almenningsgörðum, þjóðgörðum eða á öðrum svæðum. En það hygg ég, að væri best leyst með því, að héraðsstjórnir í hverju héraði, sveitarstjórnir og sýslunefndir skipulegðu þau mál og hlutuðust til um það, að komið væri upp svæðum til útilífsnota í hverju byggðarlagi og þau svæði væru í eigu heimamanna.
Ég skal þá víkja nokkrum orðum að frv. sjálfu og því, hvort svo virðist sem sá vandi, sem frv. er ætlað að leysa, verði leystur með samþykkt þess. Í frv. eru þau meginákvæði til breytinga frá gildandi lögum, að sett verði upp svokölluð byggðaráð í hverri sýslu, sem yrðu væntanlega 23 talsins. Þessi byggðaráð fá ærin völd. Þau fá í sínar hendur nokkuð af þeim verkefnum, sem á gildandi lögum eru hjá Landnámi ríkisins. Það eru völd til þess að hafa áhrif á þróun byggða í sveitum. Þau hafa með höndum ákvörðunarvald í sambandi við allar framkvæmdir í sveitum landsins, og svo er að sjá, að ekki megi girða girðingarspotta eða reisa nokkurt annað mannvirki, án þess að samþykki og afskipti byggðaráðs komi til. Það er því augljóst, að íhlutun og valdsvið byggðaráða verða mikil eftir þessu frv.
Í ræðu sinni hér áðan gat hæstv. ráðh. þess, að skipulagsþátturinn úr verkefnum byggðaráða hefði verið felldur niður í hv. Ed. En enda þótt svo sé, eru þeim þó fengin í hendur þau áhrif, sem Landnám ríkisins hefur haft og hefur nú í gildandi lögum til áhrifa á þróun byggðar í landinu, t.d. í sambandi við stofnun nýrra býla, sameiningu jarða og aðrar þess háttar hreyfingar í byggðaþróun sveita landsins. Þrátt fyrir það, að þessar nýju valdstofnanir eru settar á fót, þarf til að koma endanlegt ákvörðunarvald landbrn. með umsögn Búnaðarfélags Íslands. Allt er þetta mál því næsta flókið og sett upp nýtt kerfi, sem kallar á stórkostlega aukinn kostnað frá því, sem er í gildandi lögum.
Hæstv. ráðherra sagði hér áðan, að enda þótt byggðaráðin væru sett á laggir, hyrfu úr stjórnkerfinu jafnmargar nefndir og átti þar við landnámsnefndirnar. Landnámsnefndirnar eru, eins og kunnugt er, í gildandi lögum til ráðgjafar fyrir Landnám ríkisins í sambandi við þau mál, er snerta áhrif á þróun byggða í sveitum, og eru þannig settar á fót, að búnaðarsambönd hlutaðeigandi sýslu kjósa tvo menn en landnámsstjórn skipar þann þriðja, sem er formaður, og hann á að vera jarðræktarráðunautur í hlutaðeigandi héraði. Þarna er því væntanlega um þá menn að ræða, sem ætla má, að besta þekkingu hafi á búnaðarháttum og æskilegri þróun byggðar í viðkomandi héraði. Þessar landnámsnefndir eru ólaunaðar ráðgjafarnefndir og hafa þannig engan kostnað í för með sér. Byggðaráðin eru skipuð af landbrh. til sex ára í senn, og það er ljóst miðað við þau verkefni, sem þau eiga að taka að sér, að þau þurfa á skrifstofu að halda, og fer það mjög eftir því, hvaða menn veljast til þessara starfa, hvað sú skrifstofa verður umfangsmikil og hvað ætla má, að mikill kostnaður fylgi starfsemi þeirra. En með hliðsjón af því, að svo margt er sinnið sem skinnið, þá má vænta þess, að a.m.k. sum slíkra ráða hafi m.a. það takmark að hlaða utan um sig allmiklu skriffinnskubákni, sem mundi stórlega auka kostnað þeirra, enda er þegar í þessu frv. gert ráð fyrir því, hvernig sá kostnaður, er af starfi byggðaráðanna hlýst, skuli borinn uppi. Ég tel, að það þurfi ekki fremur vitna við um það, að af þessari skipulagsbreytingu muni hljótast mjög mikill kostnaðarauki.
Byggðaráðin eiga m.a. að hafa áhrif á verðþróun á landbúnaðarlandi og fasteignum til sveita. Ég skal hér ekki um það segja með neinni vissu, hvort þau tök, sem byggðaráðunum eru ætluð í þessu skyni, komi til með að hafa þau áhrif, að með þeim yrði hafður algjör hemill á þeirri verðþróun sem víð blasir í sambandi við fasteignir á þessum svæðum. Tilgangurinn er þó sá að halda niðri verði á fasteignum bænda með þeim hætti, að hverju sinni sem bændur vilja selja sínar fasteignir, þá skuli þeir verða að hlíta því að gangast undir mat tilkvaddra manna og jafnvel í sumum tilvikum sæta því, að landbrn. samþykki eða synji um kaup og sölu, eftir að mat hefur farið fram. Það er því augljóst, að með þessum lögum á að færa í lög ákvæði, er skerða ráðstöfunarrétt einnar stéttar yfir eignum sínum fram yfir það, sem aðrar stéttir þjóðfélagsins verða við að búa. Og hér er komið að einu því ákvæði þessa frv., sem ég tel fjarlægast því, sem unnt sé að samþykkja. Ég vil lýsa því strax hér við 1. umr., að það má vera mikill vandi við að fást, ef það er sannsýnilegt að hlíta því, að lausnin verði með þeim hætti að setja sérstök skerðingarlög yfir eina stétt þjóðfélagsins, — skerðingarlög, sem kveða á um, að hún skuli ekki njóta sannvirðis fyrir eignir sínar, á meðan aðrar stéttir þjóðfélagsins búa við full réttindi hvað þetta snertir.
Þessi ákvæði eru óþolandi fyrir bændastéttina, og þau lýsa einkennilegu hugarfari þeirra manna, sem þetta frv. bera fram. Þau minna á það að á þeim tíma, þegar hin fyrri vinstri stjórn ríkti hér á Íslandi, þá þurftu bændur og annað sveitafólk að sæta því að vera taldir til 2. flokks í þjóðfélaginu miðað við hina þjóðfélagsþegnana, sem vorn þá í 1. flokki, að því er snertir greiðslur frá almannatryggingunum. Þá var það svo, að sveitafólk naut minni og að ýmsu leyti skertra greiðslna frá Tryggingastofnun ríkisins, ef það átti rétt á greiðslum þaðan vegna vanheilsu, elli eða slysa og annarra ástæðna, heldur en aðrir þegnar þjóðfélagsins, sem bjuggu í þéttbýli. Þetta var á þeim árum, sem hin fyrri vinstri stjórn ríkti, og var eitt fyrsta verk viðreisnarstjórnarinnar að afnema þetta ranglæti. Það verður varla talið annað en ranglæti að setja lög, sem kveða svo á, að ein stétt þjóðfélagsins eigi að hafa allt önnur og minni réttindi heldur en aðrar stéttir. Þetta atriði tel ég, að þurfi a.m.k. vandlega að skoða, hvort ekki finnast önnur skárri, áður en Alþingi Íslendinga gengur í það að samþ. slík lög.
Hæstv. ráðherra minnti á í sinni ræðu, að með þessu frv. væri ætlað að efla nokkuð Jarðakaupasjóð, sem í frv. er nefndur Jarðasjóður. Þetta er rétt, að um nokkra eflingu hans er að ræða, en þó fjarri því, að jafngildi þeirri verðlagsþróun, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum hér á landi. Þau ákvæði, sem um Jarðasjóð fjalla í frv., eru því alls ekki með þeim hætti, að hann fái valdið því hlutverki, sem er góðra gjalda vert, að fært sé yfir á hans herðar að tryggja það, að sveitarfélögin í landinu geti nýtt forkaupsrétt á jörðum. Og ég verð að segja það, að þar er einnig stórkostlegur galli á þessu frv. Til þess að hindra það, að jarðeignir lendi í braski eða í höndum aðila, sem viðkomandi sveitarstjórn telur ekki henta hagsmunum byggðarinnar, að fái eignarráð á þeim, er nauðsynlegt að búa svo um hnúta, að sveitarfélögin geti nýtt löglegan kauprétt sinn, og það gerist ekki með öðrum hætti en þeim, að þau eigi kost á fjármagni það ríflegu, að þessi kaupréttur geti orðið að veruleika.
Um kauprétt á fasteignum vil ég aðeins segja það til viðbótar, að æskilegt væri að tryggja miklu betur en gildandi lög ákveða og miklu betur en þetta frv. sýnist bera með sér, að sveitarfélög í landinu í strjálbýli og þéttbýli, geti nýtt kauprétt í sambandi við sölu fasteigna. B`'g skal ekki fara út í það hér, hvaða ráðum sýnist eðlilegt að beita í þessu efni, en þau ráð eru sannarlega til.
Ég lít sem sagt svo á miðað við það, sem ég hef hér að framan sagt, að það sé a.m.k. hæpið og að sumu leyti sýnilega fjarri lagi, að enda þótt frv. þetta verði að l., þá verði sá vandi leystur, sem við er að etja í sambandi við það að halda landbúnaðarlandinu og fasteignum í sveitum í höndum þeirra, sem þar búa. Það er einnig svo, að sú lausn, sem frv. þetta sýnist byggja á til þess að ná þessu takmarki, er að mínu mati óviðunandi og felur í sér stórlega skert réttindi til einnar stéttar þjóðfélagsins.
Þetta eru meginorsakirnar til þess, að ég get þegar við 1. umr. lýst andstöðu við þetta frv., eins og það liggur fyrir.
Í þeim málatilbúnaði hæstv. ríkisstj., sem þetta frv. er einn þáttur í og e.t.v. lykillinn að, er það einn megintilgangurinn að leggja niður Landnám ríkisins. Landnám ríkisins hefur starfað um áratugaskeið, ef ég man rétt allt frá árinu 1936, en áður hafði þó starfað um nokkurra ára skeið svokallaður Landnámssjóður, sem sinnti að nokkru því hlutverki, sem Landnámi ríkisins var síðar fengið. Landnám ríkisins hefur frá upphafi haft það hlutverk með höndum að hafa áhrif á þróun byggðar í landinu. þ.e.a.s. þróun byggðar í sveitum landsins, í þá átt, sem talið hefur verið hagkvæmt á hverjum tíma. Upphaflega var það meginmarkmið Landnámsins að stofna sem flest ný býli, og það var gert í þeim tilgangi að fjölga því fólki, sem í sveitum byggi, og auka landbúnaðarframleiðslu, auka ræktun og bæta landið. Með breyttum tíma, nýrri tækni, breyttum búskaparháttum kom það í ljós, að þessi stefna hafði gengið sér til húðar, og hlutverk Landnáms ríkisins breyttist í samræmi við það. Það gerðist fyrst og fremst, þegar lög um Stofnlánadeild landbúnaðarins, landnám, ræktun og byggingar í sveitum voru afgreidd hér á hv. Alþingi í apríl 1971. Þá var horfið frá þeirri stefnu, að það væri eitthvert aðalatriði í þessum efnum að fjölga býlum í sveitum landsins en hitt var gert að höfuðatriði, að treysta byggðina og stuðla að sem hagkvæmastri þróun byggðar í hverju byggðarlagi og þá í sumum tilvikum með því að aðstoða við sameiningu jarða, félagsræktun o.fl. Starfi Landnáms ríkisins að þessum málum hefur frá öndverðu verið háttað þannig, að það hefur haft náið samráð við sveitarstjórnir og síðar landnámsnefndir, eftir að þær komu til sögu, og engar ákvarðanir hafa verið teknar um þau atriði, sem hafa valdið neinu um þróun byggðar í hverju byggðarlagi, sem hafa farið í bága við vilja þessara aðila, sveitarstjórnanna og landnámsnefndanna. Landnám ríkisins hefur þannig byggt upp starf sitt í nánu samráði og sem frekast hefur verið kostur eftir vilja heimamanna, þeirra sem færastir eru til þess að fjalla um þau mál, sem þetta hefur snert.
Með þessu frv. er ætlað að taka þennan þátt mála í hendur hinna svokölluðu byggðaráða, gera hlut sveitarstjórnanna léttvægan, fella niður landnámsnefndirnar, sem í eiga sæti þeir menn, sem búnaðarsamtök á hlutaðeigandi svæði hafa treyst best, og færa lokavaldið í ýmsum atriðum til hæstv. landbrh. Til viðbótar á að vísu að æskja umsagnar Búnaðarfélags Íslands.
Landnám ríkisins er eina landbúnaðarstofnunin sem hefur þingkjörna stjórn, þar sem allir flokkar á Alþingi hafa aðstöðu til þess að koma að sínum mönnum og koma að í gegnum þá sínum sjónarmiðum, og Landnámíð hefur innan sinna vébanda á að skipa starfskröftum, sem hafa nána þekkingu á landbúnaðarmálum.
Ég gat þess hér á Alþingi fyrir nokkrum dögum, að ég teldi, að skipulag strjálbýlis, þ.e. sveitanna, ætti að skilja frá skipulagsstjórn ríkisins, það ætti að skilja að skipulag í strjálbýli og halda skipulagsmálum sveitanna í höndum þeirra aðila, sem nú fara með þessi mál, það er í fyrsta lagi sveitarstjórnanna í landinu og landnámsnefndanna, og síðan fari hin þingkjörna landnámsstjórn með yfirumsjón þessara mála, lokaafgreiðslu, og njóti þar sérþekkingar og þjálfunar sérfróðra manna um landbúnaðarmálefni. Þetta er sú skipan, sem nú gildir, og þessa skipan þarf að auka og færa út þá starfsemi, sem skipulagsmál í strjálbýli snertir.
Það virðist svo, ef litið er til hæstv. ríkisstj., að margt sé skrýtið í kýrhausnum. Hæstv. ráðherra lýsti því hér áðan, að hv. Ed., eða sá meiri hl., sem þar ræður ríkjum, hafi fellt út úr þessu frv. skipulagsþáttinn. Hæstv. landbrh. hefur flutt frv. hér á Alþingi um að fella niður Landnám ríkisins, og þétta frv. og ýmis fleiri hafa einn þann megintilgang að koma þeirri landbúnaðarstofnun fyrir kattarnef. Á sama tíma gerist það, að allir þm. eins kjördæmis landsins, þ. á m. 4. sem maður hefur talið stuðningsmenn hæstv. ríkisstj., flytja þáltill. um að fela Landnámi ríkisins aukin verkefni, framkvæmd fyrstu byggðaáætlunar í sveitum landsins, Inn-Djúpsáætlunar, sem Landnámið hafði áður haft yfirumsjón með, að gerð yrði. Nú í gær kom nál. frá þeirri þn., sem um þetta mál fjallaði, hv. allshn. Sþ., þar sem á þskj. 535 er mælt einróma með samþykkt þeirrar till. um framkvæmd Inn-Djúpsáætlunar, sem hv. þm. Vestf. hafa flutt. Undir það nál. skrifa hv. þm., sem sæti eiga í allshn. Sþ., jafnt stjórnarstuðningsmenn sem stjórnarandstæðingar. Það fer því að verða kominn tími til að spyrja hæstv. landbrh., hvað hann er að fara eða hvert sá stjórnarmeirihl., sem ræður ríkjum hér á hv. Alþ., er að fara í sambandi við þessi mál öll. Er hér verið að setja á svið einhvern leikaraskap til þess að fylgja á eftir ótímabærum og vanhugsuðum orðum hæstv. ráðh. frá fyrri árum um að leggja niður Landnám ríkisins, setja á svið með flutningi frumvarpa um alls kyns mál, sem sýnast eiga að hafa þann tilgang að leggja þessa stofnun niður, en á sama tíma flytja hinir ýmsu stuðningsmenn hæstv. ríkisstj. um það till. og heilar þn. lýsa yfir stuðningi við það, að þessi landbúnaðarstofnun fái aukin verkefni í sínar hendur og framkvæmi viðfangsefni, sem eru ný af nálinni? Þessi málatilbúnaður allur er með þeim hætti, að hlýtur að vekja undrun þingheims og landfólksins alls.
Ég sagði hér áðan, að ég skyldi ekki ræða þetta frv. mjög ítarlega hér að þessu sinni. Til þess gefst væntanlega tækifæri síðar. En hv. 4. þm. Vesturl. gat þess hér áðan, að það hefði verið leitað umsagnar fjölmargra aðila um þetta mál og þ. á m. sveitarfélagasamtaka, Landnáms ríkisins, skipulagsstjórnar ríkisins, búnaðarsambandanna og fleiri aðila, og í þeim umsögnum, sem þegar hafa borist, er margháttaða gagnrýni að finna. Ég hef þegar getið hér um eina af þessum umsögnum, vegna þess með hve sérstæðum hætti hún afsannar þá fullyrðingu hæstv. ráðh., að þetta frv. sé jafnvel undirbúið og hann hefur látið í veðri vaka, þannig að jafnvel þeir menn, sem um þetta mál fjölluðu í sérstakri þn. búnaðarþings og lögðu þá til, að það yrði samþ., þeir skulu nú með sterkum aths. leggja til, að því verði vísað frá eða a.m.k. ekki afgreitt á þessu þingi. Ég ætla aðeins hér — með leyfi hæstv. forseta — að lesa eina af þeim umsögnum, sem borist hafa um þetta frv., en sú umsögn er frá stjórn Landeigendafélags A: Húnavatnssýslu, dags. 8. febr. s.l. Undir þá umsögn ritar stjórnin í heild, sem skipuð er 5 bændum, og mér þykir sýnt, að það megi ætla, að þeir séu úr mismunandi stjórnmálaflokkum, enda hygg ég, að þetta mál verði ekki skoðað sem flokksmál. heldur verði að skoðast í því ljósi, hvort það þrengir eða tryggir hagsmuni bændastéttarinnar og sveitanna í heild. Umsögn stjórnar Landeigendafélags A: Húnavatnssýslu um frv. til jarðalaga er svo hljóðandi, með leyfi hæstv. forseta:
„Stjórn Landeigendafélags A: Húnavatnssýslu hefur haft til athugunar frv. til jarðalaga, er liggur fyrir Alþingi því, er nú situr. Telur stjórnin ýmis ákvæði þess í veigamiklum atriðum svo gölluð eða orka svo tvímælis, að ekki sé viðunandi að óbreyttu. Segja má, að eignar- og umráðaréttur landeigenda sé svo stórkostlega skertur, að stappi næst því, að þeir séu sviptir sjálfsforræði til að ráðstafa jörðum sínum til sölu á frjálsan hátt, næstum hvernig sem á stendur, og verða að sæta mati á þeim við sölu, sem þýðir í flestum tilfellum miklu lægra verð en fáanlegt væri fyrir þær á frjálsum markaði. Til að benda á nokkur atriði lítur stjórnin svo á, að byggðaráði sé ætlað allt of mikið og óeðlilega mikið vald til hvers konar afskipta og íhlutunar í sambandi við kaup og sölu jarðeigna, og álítur, að í stað byggðaráðs væri eðlilegra, að sýslunefnd og búnaðarsamband kysu sinn manninn hvort til fjögurra ára í senn til að vera sveitarstjórnum og öðrum forkaupsréttarhöfum til aðstoðar og ráðgjafar, ef með þyrfti. Þess vegna vill stjórnin fella niður öll ákvæði um íhlutun Búnaðarfélags Íslands og landbrh. í frv. þessu, nema um ríkisjarðir sé að ræða. Álítur stjórnin, að allt það vald, sem þessum aðilum er ætlað í frv., eigi að vera í höndum heimaaðila, þ.e. sveitarstjórna með aðstoð búnaðarsambands og sýslunefndar, ekki meira vald til opinberra aðila í Reykjavík.
Það viðist ganga sem rauður þráður í gegnum frv., að náist ekki samkomulag um söluverð jarðar, þá skuli mat dómkvaddra manna ráða. Meðan sams konar ákvæði um sölu fasteignar í kaupstöðum eru ekki áformuð eða í lög leidd, getur stjórnin ekki fallist á þetta og mótmælir því, enda vafasamt, að slík skerðing á eignarrétti stæðist samkv. stjórnarskrá — friðhelgi eignarréttarins.
Eftir atvikum getur stjórnin fallist á kaflann um jarðasjóð ríkisins, nema 39. gr. Þar er bersýnilega verið að draga allt vald úr höndum bænda til embættismanna utan bændastéttarinnar, og vísast til þess, sem áður er fram tekið, að það verði í höndum heimamanna. Þá virðist sjóðnum ætlað of lítið fjármagn til að valda hlutverki sínu.
Um óðalsjarðir. Vafasamt er, að þessi kafli eigi nokkurn rétt á sér, a.m.k. í því formi, sem frv. gerir ráð fyrir. Vist má telja, að fáir bændur verði fúsir að binda jarði sínar í þær viðjar og verði að afhenda þær jafnvel til fjarskyldra ættingja fyrir hálft fasteignamat eða jafnvel ekki neitt, ef á þeim hvíla skuldir.
Gert er ráð fyrir í frv., að l. um ættarjarðir falli úr gildi, og er það vel.“
Svo hljóðar ályktun stjórnar Landeigendafélags A.-Húnavatnssýslu um það frv., sem hér liggur fyrir.
Ég skal ekki fara út í það að rekja að þessu sinni fleiri umsagnir, sem borist hafa um þetta frv., en í umsögnum ýmissa þeirra aðila, sem þó vilja samþykkja frv., eru sterkar aths. um fjölmörg atriði, sem þeir telja nauðsyn bera til. að lagfærð séu. Hv. Ed. hefur ekki, svo að neinu nemi, séð ástæðu til þess að verða við þeim ábendingum, sem yfirleitt koma fram í umsögnum búnaðarsambanda, sveitarfélaga og annarra aðila.
Ég lít svo á, að frv. þetta sé svo gallað, að það verði ekki við unað að afgreiða það með þeim hætti, sem það liggur fyrir. Ég mun geyma mér alla frekari umsögn um það til þess tíma, er hv. landbn. þessarar d. fjallar um það, en ég taldi nauðsynlegt þegar við 1. umr. þessa máls að láta koma fram þær aths., sem ég hef hér flutt.