05.11.1973
Neðri deild: 14. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 352 í B-deild Alþingistíðinda. (273)
55. mál, niðurfærsla verðlags o.fl.
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Varðandi það atriði, sem hér kom fram hjá hv. 7. þm. Reykv., hvernig hafi í rauninni verið staðið að framkvæmd þessara l., vil ég taka fram, að það var haft mjög náið samráð við hagstofustjóra, sem fyrst og fremst ber ábyrgð á útreikningi kauplagsvísitölunnar og framfærsluvísitölunnar, um það, hvernig þýðingarmiklum atriðum þessa máls yrði beitt, þannig að undanþágur voru veittar strax í upphafi fyrir þá vöruflokka og vörutegundir, sem nokkur vafi lék á, að verðlækkunin kæmi fram á. Sem sagt, það voru ekki alveg allar vörur og þjónusta, sem voru færðar niður um 2%, og í þeim tilvikum, þegar það þótti vera nokkuð vafasamt að hans áliti, að verðlækkunin kæmi fram, var það ekki talið með í þeirri lækkun á vísitölunni, sem annars var heimil samkv. l., og undanþágur veittar frá niðurfærslu verðlags í þessum greinum.
En varðandi önnur atriði, þar sem framkvæmdin átti að geta verið álíka örugg og skýr og almennt er um þessi mál, er það að segja, að þar voru ekki veittar undanþágur, og þar var auðvitað reiknað með lækkuninni í vísitölunni eins og lög gera ráð fyrir. En Verðlagseftirlitinu var jafnframt falið að fylgjast með því, eins og því ber skylda til, að þessi niðurfærsla á verðlagi ætti sér stað, eftir því sem það hefur getu og mannafla til, og það hygg ég, að það hafi gert. Mjög þýðingarmiklar vörur í þessum efnum, eins og landbúnaðarvörurnar, liggja hér afar skýrt fyrir, og ég vil ætla, að þeir aðilar, sem verða að fara eftir verðlagsákvæðum og l. um verðlagningu sinnar vöru og þjónustu, hafi farið eftir l. í öllum meginatriðum.
Mér er líka kunnugt, að fulltrúar launþega ýmsir kynntu sér allvel á sínum tíma, hvernig að þessu yrði staðið, og ég held, að það hafi ekki verið látið halla á þá, nema síður sé, í sambandi við þessa útreikninga. Það er enginn vafi á því, að nokkrar verðlækkanir áttu sér stað, sem ekki var tekið tillit til við útreikning vísitölunnar, vegna þess að það var ekki hægt að fullnægja þeim ákvæðum þessara laga að sanna fyrir tiltekinn mánaðardag, að verðlækkunin kæmi fram.
Ég get ekki gefið hér frekari upplýsingar um þetta atriði, en tel sjálfsagt að veita allar þær upplýsingar, sem unnt er að fá um framkvæmd málsins, í n., og að þeir veiti þær upplýsingar, sem besta hafa aðstöðu til þess. Þannig getur t. d. komið þar nákvæmlega fram, hvað var um mikla lækkun á framfærsluvísitölunni að ræða vegna þessara ráðstafana og hvernig hefur síðan verið staðið að því að framfylgja þessu þá mánuði, sem hér var um að ræða.
Sem sagt, ég skal veita mína aðstoð til þess, að upplýsingar liggi fyrir um þessi atriði hjá n. þeirri, sem fær málið til meðferðar.