25.03.1974
Efri deild: 88. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3072 í B-deild Alþingistíðinda. (2739)
147. mál, veiting prestakalla
Frsm. (Ragnar Arnalds):
Herra forseti. Frv. til l. um veitingu prestakalla var flutt af menntmn. seint á síðasta þingi að beiðni hæstv. dómsmrh., en frv. kom fram seint, eins og ég sagði, og varð ekki útrætt. Hins vegar gafst þá tækifæri til að senda frv. til allra prófasta landsins með beiðni um, að leitað yrði umsagnar um frv. innan þess prófastsdæmis. Í haust flutti — n. frv. öðru sinni og í það sinn að beiðni biskups. Í bæði skiptin var skýrt tekið fram, að í flutningi málsins fælist ekki efnisleg afstaða til þess, en frv. væri flutt til þess að gefa mönnum kost á að taka afstöðu til þess hér á Alþingi.
Vegna þess að frv. var sent til umsagnar á þinginu í fyrra, hefur n. haft aðstöðu til að fá margar umsagnir um frv., og frá þeim er greint í nál. á þskj. 523. Umsagnir um frv. voru sem sagt mjög misjafnar. Jákvæðar umsagnir bárust úr Eyjafjarðarprófastsdæmi, Austfjarðaprófastsdæmi, Skagafjarðarprófastsdæmi og frá sóknarnefnd Grensássóknar, héraðsfundi Ísafjarðarprófastsdæmis, guðfræðideild Háskóla Íslands og Prestafélagi Íslands. Andmæli bárust hins vegar frá ekki færri aðilum, þ. á m. frá dómprófasti Reykjavíkurprófastsdæmis, safnaðarstjórn og safnaðarfulltrúa Digranessóknar í Kópavogi, safnaðarnefnd Kársnesprestakalls í Kópavogi og prófasti Kjalarnesþings. Prófastur Rangárvallarprófastsdæmis ritaði n. og sagðist hafa borið þetta mál undir söfnuði sína, og bárust svör frá 8 af 16 söfnuðum, og voru þessir 8 söfnuðir allir andvígir frv. Prófastur Húnavatnsprófastsdæmis kvaðst hafa fengið jákvæðar undirtektir við frv. í 6 sóknum, en neikvæðar í öðrum 6. Prófastur Ísafjarðarprófastsdæmis ritaði sérstakt bréf, en eins og áður var fram tekið, reyndist héraðsfundur Ísafjarðarprófastsdæmis meðmæltur frv., en prófasturinn sjálfur tók það fram, að hann vildi persónulega ekki samþykkja frv. Hann væri að vísu því hlynntur, að prestskosningar yrðu afnumdar, en prest ætti að ráða í embætti eftir sama fyrirkomulagi og gildir um aðra embættismenn. Og það er rétt að taka fram, að afstaða svipuð þeirri, sem nú síðast var lýst, kom fram hjá fjöldamörgum þeim, sem sendu n, álit sitt og lýstu yfir andstöðu við frv.
Við umr. í n. komu einkum fram þrenns konar sjónarmið. Í fyrsta lagi er sá möguleikinn fyrir hendi, að prestar verði valdir til embætta með sama hætti og verið hefur. Í öðru lagi er sá möguleiki að samþykkja ný,ja skipan, eins og þá, sem gert er ráð fyrir í frv., sem hér er til umr., þ.e.a.s. að valdið til að velja presta verði framar öðru í höndum sóknarnefnda og safnaðarfulltrúa og að nokkru í höndum biskups. Og svo er þriðji möguleikinn, sá sem hér áður var nefndur, þ.e.a.s. að prestar yrðu valdir í embætti sín með sama hætti og aðrir embættismenn. Nm. voru á einu máli um það, að ekki væri eðlilegt að samþykkja frv., eins og það var lagt fyrir deildina, en skoðanir voru nokkuð skiptar um það, hvaða leið skyldi helst farin.
Ég get sagt það sem persónulega skoðun mína, að ég tel eðlilegt, að tekið verði til athugunar, hvort ekki sé kominn tími til að afnema prestskosningar, vegna þess að óánægja með núverandi kerfi virðist vera töluvert útbreidd og alveg sérstaklega meðal ýmissa kirkjunnar manna, svo sem presta, guðfræðinema og prófessora við háskólann. En mér finnst eðlilegast, ef að því verður horfið að fella niður prestskosningar, að þá verði prestar skipaðir í embætti sín með sama hætti og aðrir embættismenn. En ég tel, að til greina gæti komið, að safnaðarnefndir og ákveðinn hluti sóknarbúa hefðu rétt til að óska eftir prestskosningum og þá færu þær fram, ef slík ósk kæmi fram.
En þar sem nm. voru annars vegar sammála um það, að ekki væri skynsamlegt að taka upp það skipulag, sem fólgið er í því frv., sem hér er til umr., en töldu hins vegar eðlilegt, að málið yrði athugað frekar, og þá einkum, að almennir safnaðarfundir fengju meira tækifæri en verið hefur til að ræða um þetta mál, áður en það yrði til lykta leitt, var það niðurstaða n. að leggja til, að málinu yrði vísað til ríkisstj. í trausti þess, að hún legði fram nýtt frv. um breytingar á l. um veitingu prestakalla og hefði þá áður haft samráð við kirkjuþing og biskupsembættið og þá alveg sérstaklega fengið álit almennra safnaðarfunda sem allra víðast.