25.03.1974
Neðri deild: 89. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3103 í B-deild Alþingistíðinda. (2763)
Umræður utan dagskrár
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég tel rétt að víkja örfáum orðum að ræðu hæstv. iðnrh. áðan og staldra þá fyrst við það , að hann sór og sárt við lagði, að trúnaðarbrot hefði hann ekki framíð, einhver hv. ræðumaður hafði á undan honum brugðið honum um það. Ekki skal ég leggja dóm á þetta. En svo mikið er víst, að hv. meðlimir utanrmn. telja sig hafa verið þagnarskyldu bundna. Hæstv. ráðh. sagði enn fremur, að það hefði verið um það rætt á ríkisstj.- fundi, ekki var ég þar og veit það ekki, hvort rétt er, að þeir skyldu segja frá, hvað í till. fælist, ef þeir yrðu um það spurðir, og hann lét sannarlega ekki á því standa. En ætli hann hafi ekki verið áminntur um sannsögli um leið? Það þykir mér líklegt. En svo mikið er víst, að það hefur upplýst í þessum umr., að það samrýmist ekki, að sumir ráðh. segi, að þetta væru drög að umræðugrundvelli, og hins vegar að segja, að endanlega hafi verið gengið frá hverju atriði, og margendurtaka það. Annaðhvort er ekki satt.
Svo sagði hæstv. iðnrh., að ég hefði nú valið skrýtna leið að koma þessum ágreiningsatriðum á framfæri, að fara í útvarpið og sjónvarpið, en hringja ekki til sín, bara hringja. Ég hef þann sið, ef er um mál að ræða, sem er persónulegt milli mín og einhvers annars aðila, að þá hringi ég til hans. En ég hringi ekki til hans, þegar það er mái. sem varðar þjóðina alla. Þá hringi ég ekki til neins manns, þótt það sé hæstv. iðnrh.
Þá átti ég það erindi nú í ræðustól að þakka hæstv. forsrh. fyrir hans ræðu, fyrir hans eindregnu og afdráttarlausu svör um það, að þetta séu engir úrslitakostir, þetta séu aðeins drög að umræðugrundvelli um þetta stóra mál. Ég get að því leyti líka þakkað hæstv. iðnrh. fyrir, að hann hefur líka látið orð að þessu falla. Hann segir: Það hefur aldrei verið okkar ætlun að leggja fram úrslitakosti. — En með framhaldið í næstu setningu er ég ekki eins ánægður og finnst hún ekki vera í samræmi við þetta, þegar hann segir það vera staðreynd, að gert hafi verið samkomulag milli stjórnarflokkanna og því samkomulagi verði ekki breytt, það sé óumbreytanlegt. Hvaða samkomulagi? Samkomulaginu um það að leggja nefndar till. fram sem umræðugrundvöll. Vitanlega verður þeim umræðugrundvelli ekki breytt. En það er væntanlega búið að leggja hann fram, og þurfi ekkert að taka fram, að það væri hlaupið frá honum. En úrslitatill. eru þær ekki að sögn allra annarra ráðh. en hans.
Ég er alveg samþykkur því, sem hæstv. forsrh. sagði, þegar bann lýsti, hvernig málið blasti nú við og hvert yrði framhaldið. Að framlögðum þessum umræðugrundvelli fara fram viðræður við Bandaríkjamenn. Það má vænta gagntillagna frá þeim, og fyrst þegar þær liggja fyrir, hvernig sem niðurstaðan verður, sagði hæstv. forsrh., þá verður málið lagt fyrir Alþ. Íslendinga. Ég álít það alveg rangt af sérhverjum þm. að móta afstöðu sína til málsins, eins og það liggur fyrir nú, þó að lagðar hafi verið fram frumtill. Okkur ber ekki að taka afstöðu til málsins, fyrr en það blasir við í sinni endanlegu mynd í lok endurskoðunarviðræðnanna. Þá ber okkur að taka afstöðu til málsins. Þá getur sérhver þm. borið fram sínar till. Og hæstv. forsrh. hefur sagt það og hefur raunar sagt það áður, að þá komi málið til ákvörðunar Alþ., hver sem niðurstaðan af endurskoðunarviðræðunum verður. Og ég held, að við getum beðið rólegir eftir því.
Ég held, að það séu komnir 9 mánuðir, síðan við sögðum samningnum upp til endurskoðunar, og við erum núna að senda frá okkur fyrstu till. Ætli Bandaríkjamenn gætu ekki tekið sér annan meðgöngutíma til þess að leggja fram sín svör? Ég gæti ímyndað mér það, því að þeim liggur ekkert á. En hvað sem um það verður, hvort sem þeir verða skjótir eða seinir til svara, þá er víst, að það er þá, sem við lítum á málin og tökum ákvarðanir eftir því, hvort við teljum það Íslandi hagkvæmt eða ekki.
En þegar málið hefur verið rætt svona og það upplýst, að hér er aðeins um drög að umræðugrundvelli að ræða, þá er hitt jafnljóst, að það er rangt, að hér hafi verið tekin endanleg ákvörðun um málið. Það er rangt, að það sé orðið fastmælum bundið að fullu og öllu í ríkisstj., hvernig herinn fer. Á þessu stigi, þegar fyrstu samningatill. okkar hafa verið lagðar fram, er ekki hægt að tala um framkvæmd á þessum ákvæðum samkomulags ríkisstj. Fyrstu samningatill. við hinn aðilann eru á framkvæmdastigi.
Það er sem sé búið að sanna í þessum umr., að hæstv. iðnrh. hefur farið beint af ríkisstj.fundi til síns flokksblaðs og sagt því ranglega um innihald samninganna. Þetta tel ég alvarlegt. Hæstv. forsrh. fór ekki neinum orðum um þetta, en þarna er um mjög alvarlegan hlut að ræða, sem ég taldi ástæðu til að taka til umr. strax og gerði það og taldi það nauðsynlegt, því að það varð að vera kunnugt, hvort hér væri um úrslitakosti að ræða, eins og hæstv. iðnrh. hefði haldið fram í sínu blaði, eða hvort hér væri um drög að samkomulagsgrundvelli að ræða. Um það förum við ekki í neinar grafgötur eftir þessar umr. Hér er ósamræmi á milli. Það hefur komið í ljós, að ráðh. míns flokks höfðu sagt satt og rétt frá málinu, en hæstv. iðnrh. hafði sagt rangt frá því.