26.03.1974
Sameinað þing: 69. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3110 í B-deild Alþingistíðinda. (2767)

Afgreiðsla mála úr nefndum

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár til þess að gera að umræðuefni þá tregðu, sem á því virðist vera, að þingmál hér á hv. Alþ. fái þinglega meðferð og afgreiðslu í n.

Á síðasta Alþ. var borin fram till. til þál. um afnám vínveitinga á vegum ríkisins. Þessi till. var rædd á sínum tíma og vísað til hv. allshn. Sþ. og virðist, að því er best varð séð, hafa sofnað þar eða verið svæfð og fékk ekki afgreiðslu.

Snemma þessa þings var borin fram till. til þál. sama efnis. Sú till. var rædd og henni enn vísað til hv. allshn. Sþ. Þessari till. var vísað til n. 27. nóv. 1973. Enn hefur ekkert um það heyrst, hvar á vegi þessi till. er stödd í þeirri eldraun, sem hún virðist þurfa að fara í gegnum til þess að fá þinglega meðferð.

Ég tel, að það sé blettur á Alþ. og störfum þess, ef það viðgengst, að mál fái ekki þinglega meðferð og eðlilega. Ég vil því eindregið spyrja hv. formann allshn. Sþ., hvar þessi till. er á vegi stödd í hreinsunareldinum, hvort megi vænta þess, að n. sjái sér fært að afgreiða hana til þingsins, þannig að hún geti fengið þinglega meðferð á þessu þingi, eða hvort það megi vænta þess enn, að hún verði svæfð í hv. nefnd.