26.03.1974
Sameinað þing: 69. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3113 í B-deild Alþingistíðinda. (2772)

265. mál, jarðhiti til ræktunar

Fyrirspyrjandi (Jón Árnason):

Herra forseti. Á þskj. 438 hef ég leyft mér að bera fram fsp til hæstv. landbrh. varðandi hagnýtingu jarðhita til ræktunar og rannsóknir í þágu garðyrkju. Það var hv. þm. Ásgeir Pétursson, varaþm., sem sat á þingi í forföllum hv. 4. þm. Vesturl., sem flutti þessa till. á sinum tíma.

Í framsögu fyrir till. gerði flm. frekari grein fyrir því, hvað hann teldi, að helst þyrfti að athuga og rannsaka. Kom þar m.a. fram, að rannsaka þyrfti, hvaða efni reyndist best til flutnings á heitu vatni til gróðurhúsa. Svo og átti að kanna, hvort hægt væri að draga úr kostnaði við byggingu húsanna, t.d. með samræmingu á byggingaraðferðum, stærð gróðurhúsa o.s.frv. Enn fremur var lagt til að auka og hagnýta þekkingu á jarðvegsfræði, áburðarþörf og gróðurvali, sem hlýtur að skipta miklu máli fyrir þennan atvinnuveg.