26.03.1974
Sameinað þing: 69. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3122 í B-deild Alþingistíðinda. (2782)
273. mál, uppbætur á útfluttar ullarvörur
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Þessi fsp. barst mér frá skrifstofu Alþingis laust fyrir hádegi í gær, svo að það er auðsjáanlega til þess ætlast, að við ráðh. og okkar stofnanir höfum hraðan á í afgreiðslu mála, og er kannske ekkert um það að segja, þegar um er að ræða einfalda fsp. af þessu tagi. En yfirleitt væri betra að hafa svolítið lengri tíma til þess að svara a.m.k. nokkrum spurningum. (Forseti: Hæstv. ráðherra getur fengið þessu frestað, ef hann vill. Það er brot á þingsköpunum að senda þetta í gær.) Ég hef búið mig undir það að svara þessari fsp. Það er líka annað mál, hvort ég er í rauninni réttur aðili til að svara þessari fsp. Þetta er kannske öllu frekar efnahagsmál og viðskiptamál.
Fyrri fsp. hv. þm. er sú, hvort ríkisstj. hafi ákveðið að greiða uppbætur á útfluttar iðnaðarvörur eða hvort slíkar ráðstafanir séu í undirbúningi.
Þegar var tekin ákvörðun um að hækka gengi ísl. kr. í apríl í fyrra, var einkum haft mið af afkomu sjávarútvegsins og ört hækkandi fiskverði á erlendum mörkuðum, enda hafa gengisbreytingar hérlendis hingað til tekið mjög einhliða mið af þessari atvinnugrein, vegna þess að þar er meginhluti okkar útflutnings. Þegar líða tók á síðasta ár, var hins vegar sýnt, að gengið var í knappasta lagi fyrir útflutningsiðnaðinn, þar sem mun minni verðhækkanir höfðu átt sér stað á iðnaðarvörum erlendis, en framleiðslukostnaður hélt sem kunnugt er áfram að hækka fram eftir árinu. Í nóvembermánuði í fyrra lét iðnrn. hagrannsóknadeild Framkvæmdastofnunar ríkisins athuga stöðu útflutningsiðnaðarins, og kom í ljós, að staða hans var mjög misjöfn eftir flokkum. Einkum var staða ullar- og prjónlesiðnaðar slök. En þar bættust við aðrir erfiðleikar, einkum í sölumálum, sem hafa verið mikið áhyggjuefni.
Á grundvelli þessara úttektar ákvað ríkisstj. á fundi sínum 13. des. í fyrra að greiða til útflutningsiðnaðarins upphæð, sem nam 34.7 millj., í formi metinnar endurgreiðslu á tollum og söluskatti á ýmis aðföng og fjárfestingarvörur. Þessi upphæð kom til greiðslu í febrúarlok. Miðast þessi upphæð við 2.5% af útflutningsverðmæti iðnaðarvara. Litið var á þessa greiðslu eins og komið væri á virðisaukaskattkerfi fyrir útflutningsiðnaðinn, þannig að ráðgert var, að hún héldi áfram, þar til virðisaukaskatti hefði verið komið á.
Í febrúar í ár var greinilegt, að framleiðslukostnaður hafði hækkað mun meira en nam erlendum hækkunum, auk þess sem kjarasamningar stóðu fyrir dyrum. Þá var til þess að koma í veg fyrir, að stórir viðskiptasamningar færu út um þúfur, gefið almennt vilyrði fyrir því, að gerðar yrðu efnahagsráðstafanir, sem tryggja mundu útflutningsiðnaðinum rekstrargrundvöll á árinu, þannig að hann yrði samkeppnisfær á erlendum mörkuðum. Umræddum aðilum var eindregið ráðlagt að skrifa undir þá samninga, sem náðst höfðu, eftir að sérfræðingar ríkisstj. höfðu metið, að það væri um að ræða verulegar hækkanir á afurðum og þetta væri raunverulegt hámark þess, sem hægt væri að gera sér vonir um. Og sú ráðlegging var í samræmi við það almenna fyrirheit, sem ég gat um áðan, að gerðar yrðu arðvænlegar efnahagsráðstafanir, sem tryggja mundu útflutningsiðnaðinum rekstrargrundvöll á árinu. Hins vegar hafa engar uppbætur verið greiddar til útflutningsiðnaðarins skv. þessu fyrirheiti. En almennar efnahagsráðstafanir verður að sjálfsögðu að gera, þannig að þessi útflutningsstarfsemi sitji við sama borð og sjávarútvegurinn. Þessar efnahagsráðstafanir verður að sjálfsögðu að miða við útflutningsiðnaðinn í heild, en ekki við neina sérstaka viðskiptasamninga.
Fyrirheit ríkisstj. um þetta efni er sem sé algerlega almennt og er ekki bundið við neina tiltekna prósentu í sambandi við neina samninga. En ég tel ekki, að í þessari yfirlýsingu ríkisstj. fellst neitt fyrirheit um uppbætur sérstaklega. Ég lít ekki á þær ráðstafanir, sem gerðar voru í fyrra, og ég rakti hér áðan, sem uppbætur. Hins vegar er þetta vandamál, sem kemur upp og hlýtur að koma upp á Íslandi í vaxandi mæli, ef við höldum áfram að reyna að beita genginu sem einhliða hagstjórnartæki. Ég hef vakið athygli á því áður, að nú þegar annar iðnaður en fiskiðnaður framleiðir í vaxandi mæli til útflutnings, þá er engan veginn öruggt, að gengisákvörðun, sem miðuð er einvörðungu við hinn hefðbundna fiskiðnað, sjávarútveg, henti öðrum útflutningsiðnaði, þannig að það er ekki hægt að gera ráð fyrir því, að gengisbreyting, hvort sem það er gengishækkun eða gengislækkun, sem gerð er í þágu sjávarútvegsins, henti öðrum útflutningsgreinum.
Ég hef lýst því, að ég telji ástæðu til að kanna það, hvort ekki sé tilefni til að koma hér upp almennum verðjöfnunarsjóði útflutningsins, sem sé notaður til þess að jafna mismun, sem fram kemur af þessum ástæðum, og ég held, að þetta sé hugmynd, sem vert sé að athuga mjög gaumgæfilega. Slíkur verðjöfnunarsjóður er til á sviði fiskiðnaðarins, og ég er ekki með neinar hugmyndir um að ganga á þann sjóð. En ég tel, að við verðum að byggja upp slíkt kerfi, að við getum til viðbótar gengisbreytingum, ef menn telja, að þær séu nauðsynlegar einhvern tíma, beita þessum sjóði til þess að jafna metin fyrir þá, sem ekki njóta slíkra gengisbreytinga, svo sem til er ætlast, og þær ráðstafanir, sem óhjákvæmilega verða gerðar til þess að tryggja það, að við getum haldið áfram að auka útflutning okkar á iðnaðarvarningi, þær verða, eins og ég sagði áðan, almenns eðlis og ekki bundnar við neina tiltekna samninga. Sem betur fer hefur þróunin verið sú þrátt fyrir vaxandi erfiðleika, að útflutningur okkar á iðnaðarvarningi öðrum en fiski hefur farið vaxandi. Hv. þm. nefndi áðan lagmetisiðnaðinn. Mér er það mikið ánægjuefni, að Sölustofnun lagmetis hefur nú þegar á þessu ári gert sölusamninga, sem eru, að ég hygg, ámóta miklir og það magn, sem samið var um allt s.l. ár. Og það eru verulegar líkur á því, að það geti orðið um mjög umtalsverða aukningu að ræða, og að sjálfsögðu skiptir það ákaflega miklu máli, að við tryggjum það, að þessi atvinnugrein, sem er í örum vexti, — þá á ég við útflutningsiðnaðinn almennt, — hafi þau rekstrarskilyrði í landinu að hún geti haldið áfram að sækja fram.