05.11.1973
Neðri deild: 14. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (279)
Umræður utan dagskrár
Bjarni Guðnason:
Herra forseti. Það hefur vakið óskipta athygli, að nemendur við læknadeild Háskóla Íslands ákváðu að sækja ekki kennslustundir sl. föstudag í deildinni og sáu sig tilknúna að fara í kröfugöngu og ganga á fund 2 ráðherra, heilbrrh. og menntmrh., til þess m. a. að láta í ljós óánægju sina með ályktun læknadeildar frá því í maí s. l., þar sem gert er ráð fyrir að beita takmörkunarheimild um inntöku stúdenta, nema til komi ákveðnar ráðstafanir af hálfu yfirvalda. Af þessu tilefni þykir mér rétt að lesa hér þá ályktun, sem gerð var í læknadeild 23. maí s. l. Svo segir orðrétt, með leyfi hæstv. forseta:
„Þar sem aðstaða til rannsókna og kennslu, bæði í grunngreinum og klínískum greinum, er með þeim hætti, að ókleift er að veita stúdentum í deildinni viðunandi menntun eftir 1. námsár, þá ályktar deildin, að óhjákvæmilegt verði að beita takmörkunarheimild, nema eftirfarandi ráðstafanir verði gerðar nú þegar.“
Síðan kemur:
„a) Hinn bráði húsnæðisskortur líffærafræði, líffærameinafræði og sýklafræði verði leystur með bráðabirgðaráðstöfunum til skamms tíma.
b) Klínískri kennslu á Borgarspítala, ásamt St. Jósefsspítala verði komið á fastan grundvöll.
c) Gengið verði nú þegar endanlega frá skipulagi lóða Landsspítalans og læknadeildar, útveguð nauðsynleg byggingarleyfi og skipaðar hönnunarnefndir, svo framkvæmdir við byggingar pre- og paraklínískra deilda, blokk A og blokk G, geti hafist á árinu 1974.“
Þessi ályktun læknadeildar ber með sér, að hún telur sér ekki fært annað en takmarka inntöku nemenda við læknadeild, nema yfirvöld geri gangskör að því að bæta aðbúnað deildarinnar, þannig að læknadeildin telji, að unnt verði að sinna kennslunni með þeim gæðum, sem læknadeildin hlýtur að krefjast af nemendum sínum. Þessi afstaða læknadeildar er réttmæt og eðlileg. Læknadeild verður að gera kröfu til þess, að nemendur fái eðlilega gæðakennslu og tilsögn í deildinni. Hins vegar leynir sér ekki, að þetta hitnar að sjálfsögðu fyrst og fremst á nemendum deildarinnar, og því eðlilegt, að þeir taki þessu ekki með þegjandi þögninni. Af þessu leiddi þessa fyrrnefndu kröfugöngu, sem nýtur hersýnilega stuðnings ekki aðeins læknadeildar, heldur og Læknafélags Íslands og háskólaráðs, a. m. k. hvað efniskröfur varðar.
Ég vil leyfa mér, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp allmerkilega ályktun, sem háskólaráð samþykkti í þessari viku. Megininntak þeirrar ályktunar var að beina þeim tilmælum til menntmrn. og læknadeildar að kannaðar verði til hlítar leiðir til þess að komast hjá því að beita heimild um takmörkun á tölu stúdenta, sem halda áfram námi að afloknu prófi 1. árs 1974. Í ályktun háskólaráðs kemur fram, hvaða úrbætur það telur nauðsynlegar málefnum læknadeildarinnar, til þess að ekki þurfi að koma til takmörkunar stúdenta í deildinni. Ályktunin hljóðar svo:
„Hinn bráði húsnæðisskortur pre- og paraklínískra greina verði leystur með verksmiðjuframleiddum einingahúsum, sem notuð verði sem rannsóknarstofur og kennsluhúsnæði fyrir áður nefndar greinar, þannig að þeim séu sköpuð nokkur þróunarskilyrði og kennurum greinanna starfsaðstaða, á meðan undirbúningur og framkvæmdir nýbygginga standa yfir. Nauðsynlegt er að taka í notkun fyrsta húsrými af þessu tagi fyrir rannsóknarstarfsemi og kennslu haustið 1974.
Nauðsynlegt er, að klínísk kennsla á Borgarspítala og St. Jósefsspítala komist á fastan grundvöll, en frumskilyrði þess er, að læknadeild fái allar þær 8 hlutadósentsstöður við sjúkrahúsin, sem um var beðið á þessu ári. Einnig er nauðsynlegt, að eftirtaldar kennarastöður, sem synjað hefur verið um, fáist inn í fjárlög fyrir árið 1974.
1) Tveir lektorar í heimilislækningum, hlutastarf. Að öðrum kosti verður ekki unnt að hefja kennslu í heimilislækningum, eins og fyrirhugað er, og mundi þá kennsla læknadeildar á 5. ári að líkindum stöðvast um áramótin 1974–75.
2) Prófessorsembætti í félagslækningum. Samkvæmt þróunaráætlun læknadeildar á kennsla í greininni að hefjast árið 1975. Minnsti undirbúningstími fyrir þetta starf er eitt ár.
3) Einn dósent í hálfu starfi í lífeðlisfræði. Staða þessi er óhjákvæmileg vegna breyttra kennsluhátta á 1. námsári.
Aðrar kennarastöður og fjárveitingar, sem synjað hefur verið um, þola aðeins skamma hið. Niðurskurður á fé til tækjakaupa læknadeildar á s. l. árum háir nú kennslu og rannsóknargetu læknadeildar. Þá er brýn nauðsyn að fá nú þegar deildarfulltrúa og ritara í hálfu starfi fyrir læknadeild. Við núverandi aðstæður er óhæfilega mikill starfstími kennara bundinn við stjórnunarstörf.
Gengið verði nú þegar frá byggingaráætlun og endanlegu skipulagi á sameiginlegri lóð Landsspítalans og læknadeildar og verði ákvarðanir í þessum efnum teknar í samráði við Háskóla Íslands.
Gerð verði framkvæmda- og fjármögnunaráætlun fyrir næstu 5–10 ár. Fjárveitingar verði veittar til bygginga í heild, og stofnaður verði framkvæmdasjóður fyrir allar byggingar á nefndri lóð. Þetta fyrirkomulag mun tryggja best hagkvæma nýtingu fjármagns og samfelldar framkvæmdir með eðlilegum hraða, þannig að áætlanir geti staðist. Allar framkvæmdir verði undir einni yfirstjórn mannvirkjagerðar á sameiginlegri lóð Landsspítala og Háskóla, því að ætla má, að þetta fyrirkomulag sé öruggasta leiðin til þess að fá samfellda og skipulega uppbyggingu, er tryggi samtengda nýtingu mannvirkja.
Ráðnir verði arkitektar á frjálsum markaði og skipaðar nú þegar hönnunarnefndir fyrir byggingar A og C. Undirbúningi öllum að byggingum þessum verði flýtt, svo að unnt verði að hefja framkvæmdir í lok næsta árs eða byrjun ársins 1974.
Háskólaráð heitir læknadeild fullum stuðningi við framkvæmd ofangreindra atriða.“
Kjarni málsins er þessi: Læknadeild telur sig ekki geta sinnt eðlilegri kennslu við deildina og þess vegna verði ekki komist hjá því að beita því takmörkunarákvæði, sem til er í reglugerð deildarinnar. Þetta bitnar á stúdentum, og þess vegna hafa þeir andmælt. Takmörkunarheimildin er í alla staði óeðlileg. Þessi takmörkun beinist ekki aðeins gegn nemendunum sjálfum, því að þar með er komið í veg fyrir, að þeir geti stundað það nám, sem þeir hafa áhuga á. Þessi takmörkun er ekki gerð á faglegum grundvelli, heldur eingöngu á tölulegum grundvelli. Í öðru lagi beinist takmörkunin að þjóðfélaginu sjálfu, því að skortur er á læknum, ekki síst í dreifbýlinu, og slík takmörkun mundi koma í veg fyrir eðlilega byggingu og þróun þess heilbrigðisstöðvakerfis, sem Alþ. hefur þegar ákveðið að koma á laggirnar. Í þriðja lagi beinist þessi ákvörðun líka gegn öðrum deildum Háskólans, því að það leiðir til þess, að þá verða þar enn meiri þrengsli.
Af þessum ástæðum hef ég leyft mér að bera fram þrjár spurningar til hæstv. menntmrh.:
1) Hvaða ráðstafanir hyggst ráðherra gera til þess, að ekki komi til takmörkunar á inntöku nemenda í læknadeild?
2) Væri ekki athugandi fyrir hæstv. ráðh., að nema úr gildi heimildarákvæði í reglugerð Háskólans, læknadeildar, um það að takmarka inntöku nemenda í læknadeild?
3) Með hvaða ráðum hyggst menntmrh. sjá til þess, að eðlileg þróun læknadeildar verði tryggð á næstu árum?