26.03.1974
Sameinað þing: 70. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3134 í B-deild Alþingistíðinda. (2800)

75. mál, bætt póst- og símaþjónusta

Björn Fr. Björnsson:

Herra forseti. Í fjarveru frsm. þessa máls leyfi ég mér að mæla hér örfá orð. Þessi till. fjallar um bætta póst- og símaþjónustu úti um byggðir landsins. Hún er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að gera nú þegar ráðstafanir til að auka og endurbæta þjónustu Pósts og síma úti um byggðir landsins, svo að allir landsmenn geti búið við sem jafnasta aðstöðu að þessu leyti“

Allshn. var á einu máli um að mæla með samþykkt till.