27.03.1974
Neðri deild: 90. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3157 í B-deild Alþingistíðinda. (2826)
52. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Frsm. (Stefán Valgeirsson):
Herra forseti. Þetta frv. var sent til Húsnæðismálastofnunar ríkisins, og mælti hún með samþykkt frv., en lagði til, að frv.gr. yrði breytt, og var félmn. sammála um að breyta gr. eftir ábendingu húsnæðismálastjórnar og leggur því til. að 1. gr. orðist svo:
„29. gr. l. orðist svo: Íbúðir, sem byggðar eru í því skyni að útrýma heilsuspillandi húsnæði, skulu geta notið lána samkv. II. kafla þessara laga eða samkv. l. um Stofnlánadeild landbúnaðarins.“
Sveitabýli hafa ekki getað fengið lán samkv. þessum l. um útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis. Þessi breyting felur í sér, að það sé hér á eftir heimilt.
Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru hv. þm. Gunnar Thoroddsen, Gylfi Þ. Gíslason og Garðar Sigurðsson.