27.03.1974
Neðri deild: 90. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3158 í B-deild Alþingistíðinda. (2830)
278. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir um verðjöfnunargjald af raforku, er afleiðing af fjárhagsvandræðum Rafmagnsveitna ríkisins, en það er vandamál, sem hið háa Alþ. kannast mjög vel við. Þau vandamál hafa hér komið á borð þm. með nokkuð reglulegu millibili. Ástæðan fyrir þessum vandkvæðum er sú, að orkuveitusvæði Rafmagnsveitna ríkisins eru hin örðugustu vegna dreifbýlis, fjarlægðar og óhagstæðra kosta við öflunar orku. Eru þessi skilyrði þeim mun óhagstæðari sem stærstu þéttbýlisstaðir flestra svæðanna standa utan smásöludreifingar á vegum Rafmagnsveitna ríkisins. Flestir orkuvafkostir á vegum Rafmagnsveitnanna hafa til að mynda boðið 80–100 aura meðalverð eða hærra í samanburði við 40–60 aura á öðrum svæðum. Þessu til viðbótar kemur mikill kostnaður við aðalflutning orkunnar ásamt greiningu og spennubreytingu og mikilli og sívaxandi dreifingu í smásöluflutningi, og þarf ég ekki að lýsa þessum forsendum frekar. Þær þekkja allir hv. þm. og ekki síst þeir~ sem í dreifbýlinu búa. Auk þess hafa fjármögnunarskilyrði Rafmagnsveitna ríkisins löngum verið mjög erfið. Það hefur tíðkast um mjög langt árabil, að safnað hefur verið upp tollalánum og öðrum bráðabirgðalánum, sem síðan hafa ýmist verið gefin eftir eftir dúk og disk eða breytt í löng lán. Erlendar lántökur bitnuðu um skeið mjög illa á fyrirtækinu vegna gengislækkana á síðasta áratug. Þá hafa Rafmagnsveitur ríkisins einnig orðíð að fjármagna framkvæmdir með verðtryggðum spariskírteinalánum, sem hafa orðið mjög þungbær vegna verðbólgunnar. Eigin fjármyndun fyrirtækisins hefur því orðið því sem næst engin. Af þessum ástæðum hafa greiðsluvextir, þ.e.a.s. vextir og verðbætur, um skeið verið milli 19 og 33%. Er hér um að ræða byrgðar, sem önnur fyrirtæki á Íslandi hafa naumast þurft að bera. Er þessi saga um fjárhagsvandamál Rafmagnsveitna ríkisins orðin býsna löng og æði flókin, og sé ég ekki ástæðu til að rekja hana neitt nákvæmar hér.
Það hefur verið stefna Alþ., að þann vanda, sem stafaði af erfiðri aðstöðu Rafmagnsveitna ríkisins, vegna þess að fyrirtækið hefur framleitt, dreift og selt raforku til erfiðustu hluta landsins, yrði að nokkru að bæta af þjóðinni sameiginlega. Þess vegna var ákveðið 1965 að leggja á verðjöfnunargjald, sem nam fastri upphæð, 35 millj. kr. á ári. Gildi þessarar föstu upphæðar minnkaði síðan vegna verðbólgu, og síðari hluta árs 1969 var það tvöfaldað upp í 70 millj. kr. á ári. En vegna þess að enn var reiknað með fastri fjárhæð, hefur gildi þessarar verðjöfnunar einnig farið rýrnandi, og má ætla, að gildi þessa verðjöfnunargjalds sé nú aðeins um 40% af því, sem það var mest. Að sama skapi hefur afkoma Rafmagnsveitna ríkisins að sjálfsögðu rýrnað. Hefur verið verulegur og vaxandi halli á Rafmagnsveitum ríkisins s.l. tvö ár. Árið 1972 nam greiðsluhalli rekstrar 3 millj., en í fyrra 123 millj. Þar við hefur bæst fjárvöntun vegna framkvæmda, sem nam 59 millj. kr. 1972 og 74 millj. 1973. Alls nema þessar upphæðir ásamt útistandandi skuldum og fleiru 294 millj. kr. á þessum tveimur árum. Þetta kom fram um síðustu áramót sem skuld við ríkissjóð og við Seðlabanka, sem nam 282 millj. kr.
Þegar áætlanir voru gerðar um rekstur ársins 1974, bentu líkur á greiðsluhalla, sem mundi nema 272 millj. kr. Og væri skyggnst lengra fram í tímann, blasti við mjög verulegur árlegur greiðsluhalli rekstrar, ef ekki yrði að gert allan þennan áratug. Af þessu tilefni skipaði ég nefnd 5. okt. s.l. haust til þess að kanna fjárhagsvandamál Rafmagnsveitna ríkisins, hvernig úr skyldi bætt. Í n. voru Bjarni Bragi Jónsson forstöðumaður í Framkvæmdastofnun, og var hann form. n., Hörður Sigurgestsson deildarstjóri í fjárlaga- og hagsýslustofnun og Sigurgeir Jónsson aðstoðarbankastjóri í Seðlabankanum. N. skilaði ítarlegri skýrslu og till. 21. jan., og var síðan ákveðið að semja frv. það, sem hér liggur fyrir, á grundvelli tillagna nefndarinnar.
Að sjálfsögðu var kannað, hver áhrif það mundi hafa að hækka verð á raforku viðskiptavina Rafmagnsveitna ríkisins til þess að jafna rekstrarhallann. Miðað við smásölu hefði þá orðið að hækka raforku um 45% umfram almenna raforkuhækkun í landinu og auka þannig stórlega þá mismunun, sem raforkunotendur á Íslandi búa við. Slík breyting var andstæð stefnu ríkisstj., og ég hygg, að hún sé andstæð stefnu hins háa Alþ., eins og hún hefur komið fram á undanförnum árum. Því var ákveðið að beita enn verðjöfnunaraðferð, hverfa frá því að hafa verðjöfnunargjaldið fasta krónutölu, en láta það framvegis fylgja söluverðmæti ákveðinnar hundraðstölu, svo að verðrýrnun þyrfti ekki að skapa árviss vandamál, eins og verið hefur að undanförnu. Þá er söluskattsstofn smásölu einna handhægust viðmiðun, enda er tilgangurinn að jafna verð til endanlegra smásölukaupenda. Til þess að draga úr þessari hækkun var jafnframt áformað, að ríkissjóður gæfi eftir bráðabirgðalán og greiddi bráðabirgðalán Seðlabanka Íslands.
í frv., sem hér liggur fyrir, er lagt til í 1. gr., að greiða skuli 13% verðjöfnunargjald í Orkusjóð af seldri raforku á síðasta stigi viðskipta, þ.e.a.s. sölu til notenda, en notandi telst sá, sem ekki endurselur raforkuna. Verðjöfnunargjaldinu skal varið til að bæta fjárhag Rafmagnsveitna ríkisins samkv. nánari ákvörðun stjórnar Orkusjóðs og ráðherra orkumála. Síðan eru frekari ákvæði um þetta verðjöfnunargjald í 2.–11. gr., en í 12. gr. er gert ráð fyrir því, að ríkisstj. verði heimilt að veita Rafmagnsveitum ríkisins eftirgjöf á bráðabirgðalánum ríkissjóðs, sem veitt voru með gjaldfresti á aðflutningsgjöldum árin 1972 og 1973, að fjárhæð 147 millj. kr., einnig að ríkissjóði sé heimilt að endurgreiða úr ríkissjóði bráðabirgðalán Seðlabanka Íslands, sem veitt var ríkissjóði í nafni Rafmagnsveitna ríkisins árið 1973, að fjárhæð 130 millj. kr. Í 13. gr. er síðan heimild um að breyta kjörum lána eins og þar er frekar rætt.
Ég held, að frv. sjálft skýri sig. Þetta 13% verðjöfnunargjald mundi jafngilda um 10% á verði raforku, vegna þess að þarna dregst frá fyrra verðjöfnunargjaldið, sem nú er metið á rúm 3%. Má geta þess, að áhrif þessarar hækkunar á kaupgjaldsvísitölu hafa verið metin 0.15%.
Ég vil svo leyfa mér að vænta sem mestrar samstöðu hv. alþm. um að leysa þetta mikla vandamál, og veit, að það er fullur vilji á því að leysa það eftir svipuðum leiðum og fjallað er um í þessu frv.
Ég legg svo til, herra forseti, að frv. verði að lokinni 1. umr. vísað til 2. umr, og hv. iðnn.