27.03.1974
Neðri deild: 90. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3160 í B-deild Alþingistíðinda. (2831)
278. mál, verðjöfnunargjald af raforku
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð í sambandi við þetta frv. Ég geri ráð fyrir því, að það komi engum á óvart, þó að einhverjar ráðstafanir þurfi að gera vegna Rafmagnveitna ríkisins í því verðbólgu- og verðhækkunarflóði, sem nú gengur yfir. Og rétt er það, að ekki er í fyrsta skipti nú, sem Rafmagnsveitur ríkisins hafa átt í nokkrum fjárhagsörðugleikum. Rafmagnsveitur ríkisins hafa ávallt haft erfitt verkefni með höndum. Þær hafa haft það verkefni að vinna að framkvæmdum, sem ekki eru arðbærar, þ.e. að dreifa rafmagninu út um hinar strjálbyggðu sveitir í landinu, og veitur, sem lagðar eru um þau svæði, geta vitanlega ekki orðið arðbærar. Þess vegna er það, að oft hefur orðið halli á þessum veitum og stundum álitamál, hvernig ætti að brúa bilið. En eftir að rafmagnið var komið í hina betri staði, sem báru sig betur, má segja, að það hafi verið fleiri stoðir til þess að halda uppi hinu veikara kerfi. Seinni hluta síðasta áratugs má segja, að hafi verið batnandi hagur hjá veitunum, enda þótt gripið hafi verið til verðjöfnunargjalds tvisvar til þess að styrkja rekstrarafkomuna.
En verðbólgan hefur sín áhrif, og oft er ráðist í framkvæmdir, sem ekki bera sig fjárhagslega. Það var t.d. einn maður, sem sagði áðan, þegar ég var að ganga hérna upp stigann: „Hvað skyldu Rafmagnsveitur ríkisins þurfa að borga mikinn balla af línunni milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar, áður en hún fer að flytja raforku?“ Ég sagði við þennan mann: „Það veit ég ekki.“ Mér er ekki kunnugt, hversu mikla orku veitan hefur flutt. Einhver straumur hlýtur að hafa verið settur á línuna, þótt lítil orka sé fyrir hendi. Ég hef þess vegna ekki reiknað út, hversu mikill halli er af þessari línu, en hann hlýtur að vera mikill. En það er ekki aðalatriði þessa máls, heldur hitt, að ef ekkert væri gert í þessum málum og Rafmagnsveiturnar ættu að setja allan kostnaðinn á sína notendur, þyrfti rafmagnsverðið hjá Rafmagnsveitum ríkisins að hækka um 45%. Það er auðvitað allt of mikið. Það er alveg útilokað að gera það. Það væri ekkert betra en ef olíuverðið væri óbreytt eins og það er nú til húsakyndingar.
En það var ekki samanburður á því, sem ég ætlaði að ræða um, heldur aðeins nokkur atriði, sem þarf að taka til athugunar.
Það brýtur alveg í bága við þá stefnu, sem hæstv. iðnrh. hefur boðað, að með frv., eins og það er hækkar raforkuhitun í húsum tiltölulega meira en rafmagnsverð til annarra nota. Er það vegna þess, að rafhitun til húsa er ekki söluskattsskyld. Rafhitun til húsa hækkar því samkv. þessu frv. um 13%, en rafmagn til almenningsnota að öðru leyti um 11,1 %. Sumir munu e.t.v. segja, að þetta skipti ekki verulegu máli. En þetta hrýtur þó algerlega í bága við heilbrigða stefnu, vegna þess að nauðsyn ber til að hvetja menn til þess að taka upp rafhitun í húsum í stað olíukyndingar. Það á að vera stefnan að reyna að gera það mögulegt að nota innlendan orkugjafa, rafhitun, þar sem ekki er tækifæri til þess að nota hitaveitu.
Ég skal viðurkenna, að það getur verið erfitt að finna heppilegt fyrirkomulag, en það þarf að taka það til rækilegrar athugunar, að samkv. frv. verður verðjöfnunargjaldið tiltölulega hæst hjá þeim veitum, sem hafa erfiðastan rekstur. Veitur með hæstu gjaldskrá borga 13% af orkusölunni og verður gjaldið þá hæst hjá þeim veitum, sem hafa erfiðastan rekstur og hæsta gjaldskrá. Verður það til þess að auka aðstöðumuninn frá því, sem nú er. Ég er ekki tilbúinn til þess að benda á, hvernig á að komast fyrir þetta, en þetta sýnist mér, að stefni í öfuga átt og þurfi að finna leið til þess að komast hjá því.
Eins og sjá má í frv., er horfið frá þeirri stefnu, sem áður var í sambandi við verðjöfnunargjald. Þá var verðjöfnunargjaldið miðað við fasta upphæð, en nú er það prósentuhækkun. Það má segja, að til þess að verðjöfnunargjaldið nýtist í verðbólgunni, sé eðlilegt að breyta því í þetta form. Ef verðhækkanir halda áfram eftirleiðis eins og nú síðustu mánuðina eða síðustu tvö árin, er tilgangslítið að lögfesta verðjöfnunargjald í krónum, nema það sé þá alveg ákveðið að endurskoða það árlega. Það er nauðsynlegt að athuga það. Með því að hafa verðjöfnunargjaldið í fastari upphæð verður komist hjá þeim agnúa, sem ég hef minnst á.
Ég heyrði ekki, í hvaða n. þetta á að fara, hvort þetta á að fara í iðnn. (Gripið fram í.) Já þá hef ég tækifæri til þess að skoða málið sérstaklega, og í tilefni af því get ég látið máli mínu lokið að þessu sinni.