27.03.1974
Neðri deild: 90. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3163 í B-deild Alþingistíðinda. (2833)

278. mál, verðjöfnunargjald af raforku

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég bið hæstv. forseta afsökunar á því, að ég skyldi ekki vera í salnum, þegar að mér kom, en ég hafði kvatt mér hljóðs. Ástæðan var sú, að ég var kvaddur í símann frá útlöndum og gat ekki látið það símtal bíða. Þess vegna getur vel verið, að hv. 1. þm. Sunnl., Ingólfur Jónsson, og sá flokksbróðir minn, sem var að ljúka máli sínu rétt áðan, hafi fjallað um þau atriði, sem ég vildi hafa nefnt. Ég vil engu að síður láta það standa, að ég hafði kvatt mér hljóðs til að segja nokkur orð um þetta stórmál, sem hér er lagt fyrir hið háa Alþingi.

Hér er lagt til, að greiða skuli 13% verðjöfnunargjald í Orkusjóð af seldri raforku á síðasta stigi viðskipta, þ.e.a.s. sölu til notenda. Þetta skilst mér, áð sérfróðir menn telji jafngilda því, að raforkuverð hækki um 11.1%. Satt að segja munu margir þm, og allur almenningur hafa staðið í — vonandi góðri trú um það, að hæstv. ríkisstj. væri búin að fá nóg af því að beita sér fyrir verðhækkunum á lífsnauðsynjum almennings, og því yrði ekki bætt ofan á það], sem gert hefur verið undanfarnar vikur, að borin væri fram till. um að hækka allt raforkuverð í landinu um 11.1% og gera það meira að segja í því formi, sem hv. þm. Benedikt Gröndal var að víkja að undir lok ræðu sinnar, að raforkuverðið á að hækka hlutfallslega jafnt, þ.e.a.s. það verð, sem er hæst fyrir, á að hækka mest, en þar, sem raforkuverðið er lægst, á hækkunin að vera minnst. Þetta eru þær hugmyndir sem ríkjandi virðast vera í raforkumrn. um skynsamlegar eða réttmætar framkvæmdir í þessum efnum.

Ég vék athygli á því, að hæstv. raforkumrh. sagði í framsöguræðu sinni hér áðan, að s.l. tvö ár, einmitt valdaár hans í iðnrn., hafi verið um stórvaxandi halla að ræða hjá Rafmagnsveitum ríkisins og að fjárvöntun vegna framkvæmda hefði farið stórvaxandi og væri nú orðin mjög mikil, þannig að nú vantaði vegna þessa tvenns, halla s.l. tveggja ára og vangreiðslu á framkvæmdafé, tæpar 300 millj., um væri að ræða óreiðuskuld af hálfu Rafmagnsveitna ríkisins, sumpart hjá ríkissjóði, sumpart hjá Seðlabankanum, sem næmi tæpum 300 millj. kr. Og þetta virðist eiga að jafna einfaldlega með því að sýna reikning eftir á og láta alla rafmagnsneytendur borga þennan reikning og fleiri slíka reikninga í framtíðinni, án þess að nokkur athugun fari fram á því, hvort hægt sé að gera raforkuframleiðslu og raforkudreifingu Rafmagnsveitna ríkisins ódýrari. Það er svolítið annað upp á teningnum, þegar önnur verkefni í þjóðfélaginu eru á döfinni. Þá þykir sjálfsagt að kanna, hvort hægt sé að haga framleiðslu eða dreifingu ódýrar en hingað til hefur átt sér stað. Hér hefur ekkert slíkt gerst. Það er tekið við gömlum sukkreikningum frá Rafmagnsveitunum og sagt: Neytendur, gjörið svo vel og borgið; þið eruð ekkert of góðir til þess. Borgið í hækkuðu rafmagnsverði um 11%. Og sá, sem hefur borið þyngsta baggann áður, skal enn bera þyngsta baggann, sá, sem bar léttasta baggann, á að sleppa best. Þetta nær ekki nokkurri átt. Það, sem gera á í þessum efnum, er auðvitað að taka rafmagnsmálin öll, orkuframleiðsluna í landinu annars vegar og dreifingu raforkunnar hins vegar, til gagngerðar athugunar.

Með frv. er ekki verið að gera annað en að lappa upp á hluta af þessu geysilega mikla vandamáli, sem hér er um að ræða. Það hefur aldrei verið annað eins óstand í raforkumálum Íslendinga og undanfarin 2–3 ár eftir að núv. ríkisstj. kom til valda. Það hefur aldrei gerst áður, að það hafi verið áberandi raforkuskortur í þremur landsfjórðungum, eins og átt hefur sér stað, átti sér stað á s.l. ári og hefur átt sér stað á þessu ári. Raforkumálin á Norðurlandi eru í fullkomnu öngþveiti og ófyrirsjáanlegt í dag, hvernig þau mál kunna að geta leyst. Samt sem áður hefur verið lagt í stórkostlega fjárfestingu við lagningu rafmagnslínu milli héraða á Norðurlandi, línu, sem hefur ekkert rafmagn að flytja. Við hvorugan enda línunnar er nokkur rafmagnsuppspretta, sem línan gæti flutt á milli héraðanna, þannig að þarna liggja stórkostlegar fjárhæðir bundnar og algjörlega verðlausar. Þarna hefur fé verið sóað um ófyrirsjáanlega framtíð. Það kann vel að vera, að einhvern tíma í framtíðinni komist á slíkt rafmagnskerfi á Íslandi, að þessi lína komi að einhverju gagni, að hægt verði að taka hana í notkun, en það verður langt þangað til, ár, ef ekki áratugir, og það vita Norðlendingar vel, og það veit allur landslýðurinn. Þarna hefur hæstv. rafmagnsmrh. reist sér óbrotgjarnan minnisvarða, sem munað verður lengur eftir en honum sjálfum.

Ég bendi á, að það dugi ekki að taka á vandamálum Rafmagnsveitna ríkisins einum sér. Það kann vel að vera, ég dreg það engan veginn í efa, að vegna ýmislegra vankanta í stjórn á Rafmagnsveitunum og rafmagnsmálunum yfir höfuð að tala, séu þær komnar í mikla fjárhagsörðugleika, sem einhvern veginn þarf að greiða úr. En þetta er hvorki rétta né réttláta lausnin til að greiða úr vandamálum Rafmagnsveitna ríkisins. Það, sem ég vildi leggja enn þá meiri áherslu á, er, að það má ekki taka vandamál hennar ein sér. Það þarf að taka rafokumálin öll, rafmagnsframleiðsluna og rafmagnsdreifinguna í landinu, til gagngerðrar athugunar og láta þar aðrar hugmyndir verða ráðandi en þær, sem ráðið hafa í iðnrn. á valdaárum núv. hæstv. iðnrh.

Þetta vildi ég láta koma fram þegar við 1. umr. og heiti á þá nefnd, sem fær málið til meðferðar, að taka það til athugunar, til ranasóknar og athugunar og nýrrar tillögugerðar í ljósi þessara staðreynda, en ekki á grundvelli þeirra hugmynda, sem þetta plagg byggist á.