05.11.1973
Neðri deild: 15. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 363 í B-deild Alþingistíðinda. (285)

72. mál, Háskóli Íslands

Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson) :

Herra forseti. Fyrir nokkrum dögum bar svo til, að rektor Háskóla Íslands lét af embætti. Þarf því að koma til nýs rektorskjörs. Skiptir verulegu máli að allra dómi, sem til þekkja, að kjörið geti farið sem fyrst fram, svo að þetta þýðingarmikla embætti sé skipað að fullum lögum sem allra fyrst.

Þegar farið var að undirbúa rektorskjör að nýju, kom í ljós, að einn þáttur í kjörmannatölu rektors hafði breyst verulega, frá því að lög voru sett um rektorskjör 1969. Þar var svo um hnúta búið, að fulltrúar stúdenta fóru með 16% atkvæðamagns við rektorskjör. Hins vegar hefur kennurum í fullu starfi fjölgað svo, síðan þetta var, jafnframt fjölgun stúdenta, að nú eru þeir stúdentafulltrúar, sem 1969 fylltu 16% kjörmannatölunnar, komnir niður í tæp 10%. Sem sagt, hlutdeild fulltrúa stúdenta við rektorskjör hefur rýrnað um rúman þriðjung á þessum 4 árum. Þetta er tvímælalaust ófyrirséð afleiðing af þeirri útþenslu, sem orðið hefur í Háskóla Íslands, jöfnum höndum fjölgun kennara í fullu starfi og fjölgun stúdenta. Því hefur háskólaráð lagt til. að einni gr. í háskólalögum verði af þessum sökum breytt, eins og fram kemur í 1. gr. þess frv., sem hér er lagt fyrir. Þar er kveðið á um það, að fulltrúar stúdenta við rektorskjör skuli vera fulltrúar stúdenta í háskólaráði og tveir fulltrúar stúdenta á fundum háskóladeilda og námsbrautar í almennum þjóðfélagsfræðum, svo og formaður og varaformaður stúdentaráðs Háskóla Íslands. Fjölgunin, sem hér á sér stað, er sú, að báðum fulltrúum stúdenta á fundum háskóladeilda og námsbrautar í almennum þjóðfélagsfræðum er veittur kosningarréttur við rektorskjör, þar sem samkv. gildandi ákvæðum hefur aðeins annar þessara fulltrúa atkvæðisrétt. Sömuleiðis fá með ákvæði frv. bæði formaður og varaformaður stúdentaráðs kosningarrétt við rektorskjör. Eftir gildandi ákvæðum er það aðeins formaðurinn, sem hefur kosningarréttinn.

Með þeirri breytingu, sem hér er lögð til, er hlutdeild fulltrúa stúdenta við atkvgr. um rektorskjör færð í næstum sama hlutfall og lögin frá 1969 mæltu fyrir, 16% atkvæðamagns. Þess er ekki að dyljast, að innan Háskólans, hæði meðal stúdenta og háskólakennara, eru uppi hugmyndir um miklu umfangsmeiri breytingar á kjöri rektors. Þær hugmyndir hafa ekki verið skoðanir, bornar saman og vegnar í stofnunum Háskólans, en kunna síðar að koma fram. Það, sem hér er um að ræða, er rektorskjör, sem ber að með skjótum hætti, og þetta frv. fjallar um það eitt að færa hlutdeild fulltrúa stúdenta í rektorskjöri til sama hlutfalls og Alþ. gerði ráð fyrir við lagasetninguna 1969.

Ég leyfi mér, herra forseti, að láta þá von í ljós, að þetta frv. hljóti skjóta afgreiðslu Alþ., legg til. að því verði að þessari umr. lokinni vísað til 2. umr. og hv. menntmn.