28.03.1974
Neðri deild: 93. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3220 í B-deild Alþingistíðinda. (2895)

266. mál, viðskiptabankar

Friðjón Þórðarson:

Herra forseti. Mér þykir rétt að láta nokkur orð falla um þetta frv. þegar á þessu stigi málsins, þó að vissulega hafi margt verið sagt rétt um þetta mál, sem varpað hefur ljósi á það, á þessari síðdegisstund, sem það hefur verið rætt hér í hv. Nd. Það má vel vera, að í þeim fáu orðum, sem ég segi hér á eftir, beri ég oftar í munn mér nafn Búnaðarbanka Íslands en Útvegsbankans, en það stafar ekki af því, að ég beri ekki fulla virðingu fyrir Útvegsbankanum og hans starfi, heldur kannske fremur af hinu, að ég hef haft allnáin kynni af starfsemi Búnaðarbanka Íslands s.l. hálfan annan áratug.

Þetta frv., sem hér er til umr., heitir frv. til l. um viðskiptabanka í eigu ríkisins. Það er, eins og hér hefur verið tekið fram, samið og undirbúið af bankamálanefnd, sem skipuð var af hæstv. viðskrh. í maí 1972. Starf þessarar n. byggist að vissu leyti á stjórnarsáttmálanum og því, sem þar er ákveðið, að endurskoða skuli allt bankakerfið, þ.á m. löggjöf varðandi Seðlabankann og hlutverk hans, og vinna að sameiningu banka og fjárfestingarsjóða.

Þessi n., sem vissulega var skipuð mörgum ágætismönnum, hefur unnið mikið og gott starf á sinn hátt, Hún hóf störf sín með því að afla sér upplýsinga og kynna sér fyrirkomulag þessara mála, einkum á Norðurlöndum. Að þeirri athugun lokinni komst n. að ákveðinni niðurstöðu, sem hún hefur greint frá í áliti sínu, sem er tveir allþykkir doðrantar, sem ýmsir hafa séð og lesið. Þar komust menn m.a. að þeirri niðurstöðu, að bankastarfsemi hér á landi væri óeðlilega fyrirferðarmikil og fyrirferðameiri en erlendis, m.a. á Norðurlöndum. Það þyrfti því nauðsynlega að koma fram einföldun í þessum málum hér á landi og þá einkum með samruna einnar eða fleiri peningastofnana.

Alls munu nú vera á landinu 96 innlánsstofnanir, en það er hugsjón nefndarinnar, a.m.k. hefur hún bent á það í sínum ritum, að æskilegt sé, að viðskiptabönkum fækki úr 7 í 4, sparisjóðum og innlánsdeildum úr 88 í 30 og fjárfestingarsjóðum úr 17 í 9. Sé þetta gert, er talið, að aukin hagkvæmni muni nást og minni vinnuaflsnotkun, enn fremur meira öryggi og auðveldara eftirlit. Þá hefur n. lagt á það áherslu, að nauðsynlegt sé nú á tímum, að bankar séu ekki sérhæfðir einstökum atvinnugreinum, heldur alhliða, og mun ég víkja nokkru nánar að því síðar.

Eftir þessar vangaveltur kemst n, þessi að þeirri niðurstöðu, að rétt sé að stefna að fækkun peningastofnana og þá einkum með því að sameina Búnaðarbanka og Útvegsbanka Íslands. Segir nánar um þetta á bls. 10 í aths. við þetta frv. eitthvað á þessa leið:

„Meginniðurstöður n. eru þær, að peninga- og lánastofnanir hérlendis séu miklu fleiri en hagkvæmt getur talist auk þess sem margar þeirra séu of smáar til að geta uppfyllt nútímakröfur um alhliða þjónustu við viðskiptaaðila sína og öryggi fyrir innstæðueigendur og aðra kröfuhafa. Leggur n. jafnframt áherslu á nauðsyn þess, að löggjöf, sem varðar starfsemi þessara stofnana, sé endurskoðuð og færð í nútímalegt horf. Telur n. allt benda til víðtæks samkomulags um meginmarkmið, sem stefna beri að í þessum efnum, þ.e.a.s. samruna peninga- og lánastofnana í stærri og virkari heildir og einföldun bankakerfisins innan ramma heilsteyptrar löggjafar.“

Og einhvers staðar í skrifum n. er sagt frá því, að í raun og veru sé öll bankamálalöggjöf, þ.e. öll löggjöf varðandi banka og starfsemi þeirra, mjög ófullkomin hér á landi, nema löggjöfin um Seðlabankann, nr. 10 frá 1961, sem nokkurn veginn fullnægi kröfum tímans, að manni skilst.

Síðan ræðir n. nokkuð um sameiningu Búnaðar- og Útvegsbankans og bregður upp eftirfarandi mynd: „Sameinaði bankinn, eins og hann er nefndur, yrði banki, sem í fyrsta lagi nálgaðist Landsbankann að stærð, í öðru lagi hefði mjög svipaða dreifingu útlána á atvinnuvegi og aðra lánaaðila og Landsbankinn, í þriðja lagi hefði afgreiðsluaðstöðu í öllum landshlutum mjög til jafns við Landsbankann og í fjórða lagi tæki við gjaldeyrisréttindum af Útvegsbankanum. Með sameinaða bankanum og Landsbankanum yrði m.ö.o. mjög mikið jafnræði hvað snertir stærð, viðskiptadreifingu og viðskiptaaðstöðu, og yrðu það vissulega miklir kostir á þessari leið.“

Þarna á Búnaðarbanki Íslands að fá allt í einu hin langþráðu gjaldeyrisréttindi á silfurfati. Það er kannske ástæðulaust á þessu stigi málsins að fara mjög ítarlega yfir frv. sjálft, enda hefur hv. 3. þm. Norðurl. e. sagt nú alveg rétt á undan mér, að hann óski eftir því, að frv. þetta kafni í fæðingunni, þ.e.a.s. komist aldrei til 2. umr. Ég mun nú, m.a. með hliðsjón af þessu, fara mjög lauslega yfir frv. sjálft, en það skiptist í nokkra kafla.

Í I. kaflanum eru almenn ákvæði.

Í II. kaflanum eru ákvæði um stjórn bankanna. Þar vil ég vekja athygli á einu ákvæði í 7. gr. Þar segir, að yfirstjórn ríkisviðskiptabanka sé í höndum ráðh. þess, sem fer með bankamál, og bankaráðs, svo sem fyrir er mælt í lögum þessum. Þrátt fyrir ákvæði 1. mgr. hefur ráðh. sá, sem fer með landbúnaðarmál. yfirstjórn veðdeildar Búnaðarbankans og Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Að undanförnu hefur það verið svo, að æðsti yfirmaður Búnaðarbanka Íslands hefur verið hæstv. landbrh. Nú á að breyta um tilhögun í þessu efni, þannig að það á að vera einn og sami bankamrh. yfir öllum bönkum og peningastofnunum, en hins vegar á landbrh. að hafa á hendi einhverja yfirstjórn veðdeildar Búnaðarbankans og Stofnlánadeildar landbúnaðarins. Ég held, að velunnarar Búnaðarbankans hnjóti um þetta atriði að því leyti, að þeir hafa jafnan lagt ríka áherslu á það, að Stofnlánadeild landbúnaðarins og veðdeildin séu tvær af meginstoðum og frumgreinum Búnaðarbankans og það megi með engu móti raska því skipulagi, sem verið hefur að undanförnu, að sami maður fari með æðstu yfirstjórn bæði veðdeildar, Stofnlánadeildar og Búnaðarbankans í heild.

Í III kafla er rætt um samstarfsnefnd, sem hv. 3. þm. Norðurl. e. taldi vera til þess að auka miðstjórnarvald í þessum efnum. Það er að vísu alveg nauðsynlegt, að ríkisviðskiptabankarnir 3 hafi visst og allnáið samstarf sín á milli. Mér finnst, að samkeppni af hálfu viðskiptabanka ríkisins sé óæskileg, nema að vissu marki, og það er sannleikur, að stundum hafa viðskiptabankar ríkisins gengið of langt í samkeppni hver við annan. Ég álít, að slíkt megi ekki eiga sér stað nema í fullu hófi og aðeins að vissu marki.

Ég sé ekki ástæðu til að rekja öllu fleiri ákvæði þessa frv., en aðeins ítreka það, sem hv. 5. þm. Reykv. benti á í dag, að það virðist eiga að hafa hraðann á um það að koma þessu frv. í kring, þar sem allt á að vera komið í góðan farveg, fínt og pússað, að morgni þriðjudagsins 1. október 1974, en þá á að vera búið að velja nýtt bankaráð og bankastjóra og viðskipti eiga að geta hafist að morgni 1. okt., án þess að miklu fleira þurfi að athuga.

Svo sem kunnugt er, tók Búnaðarbanki Íslands til starfa 1. júlí árið 1930. Ég er ekki nákunnugur því, hvernig umr. var hagað um það mál á hv.

Alþ., en þó hygg ég, að frv. hafi haft almennt fylgi hv. alþm. á þeirri tíð. Tryggvi Þórhallsson, forsrh. og atvinnumálaráðh. fylgdi frv. úr hlaði og kvað einkum þrjár ástæður fyrir því, að það væri borið fram. Landbúnaðurinn hefði orðið afskiptur, hvað snertir rekstrarfé frá bönkunum. Landbúnaður og sjávarútvegur væru ólíkir í eðli sínu og hefðu mjög ólíkan rétt til lánskjara af þeim sökum. Loks væri sporið þegar stigið að nokkru, þar eð til væru tvær stofnanir, sem væru liður í lánakerfi landbúnaðarins, ræktunarsjóður og byggingar- og landnámssjóður, sem tekið hafði til starfa í ársbyrjun 1929. Hitt er svo einnig vitað, að Búnaðarbankinn hefur þróast mjög ört á undanförnum árum. Heildarinnstæður hans s.l. áramót námu 5 600 millj., bundið fé í Seðlabankanum tæpum 1200 millj. og innstæða á viðskiptareikningi um hálfum milljarði.

Útibú frá Búnaðarbanka Íslands eru nú 10 víðs vegar um land og að auki 4 umboðsskrifstofur. Ég vek athygli á því hér, þó að ég víki kannske aðeins að því nánar síðar, að leyfi Seðlabankans þarf að sjálfsögðu til að setja á fót, hvort heldur um er að ræða útibú eða umboðsskrifstofu. Vegna þess, hvað bankamálanefnd og æðstu ráðamenn bankamála um þessar mundir leggja mikla áherslu á að fækka lánastofnunum, skal þess getið, að einmitt í sambandi við stofnun útibúa Búnaðarbanka Íslands til þess að veita fólkinu úti á landi aukna þjónustu — og sé litið á Búnaðarbankann sem eina heild, eins og ég tel rétt, þá hefur lánastofnunum, sparisjóðum, innlánsdeildum og öðrum, fækkað um 13 á s.l. 10 árum eða svo. Þetta ætti þó a.m.k. að vera í anda bankamn.

Þess er raunar óþarft að geta, að Búnaðarbanki Íslands er fyrir löngu orðinn alhliða viðskiptabanki, sem lánar ekki eingöngu til landbúnaðar og viðskipta eins og hæstv. viðskrh. lét orð falla um hér áðan, heldur til þess að sinna þörfum þeirra, sem til hans leita. Þetta kemur ekki glöggt í ljós hér í Rvík, en það kemur mjög skýrt fram á ýmsum stöðum úti um land, þar sem Búnaðarbankinn rekur útibú og sinnir þar í vaxandi mæli öllum þörfum viðkomandi byggðarlags. Og hæstv. viðskrh. má vita, að það er svo með útibúin yfirleitt, að þau sinna orðið viðfangsefnum á sínu svæði. Og það er ýmislegt gert til þess að ýta undir þessa þróun. Ég hygg, að ef maður ofan af Akranesi kemur og ætlar að slá sér víxil í einhverjum banka hér í Rvík, þá sé honum góðfúslega bent á, að Landsbanki Íslands hafi útibú á Akranesi. Einnig er það svo með Stykkishólm, að það þýðir orðið lítið fyrir mann, sem á heima í Stykkishólmi, að ætla sér að biðja um lán í banka í Rvík. Hann fær þau svör, að í Stykkishólmi reki Búnaðarbankinn útibú og þangað geti hann farið.

Nei, ég held, að Búnaðarbanki Íslands hafi aldrei skorast undan að bera réttlátar byrðar í þágu þjóðfélagsins. Hins vegar hefur oft verið vakin athygli á því, að í okkar þjóðfélagi teljum við yfirleitt sanngjarnt, að réttindi og skyldur fylgist að. Og við höfum oft vikið að því á undanförnum árum, að Búnaðarbankinn er skör neðar settur en aðrir ríkisbankar að því leyti, að hann hefur ekki gjaldeyrisréttindi. Hann hefur ekki full réttindi á við aðra ríkisbanka. Því mætti þó e.t.v. orða það, að hann ætti í samræmi við það ekki að bera fyllstu skyldur á borð við hina bankana.

Á þessu stigi ætla ég ekki að halda mjög langa tölu. En vil leyfa mér að mæla nokkur varnaðarorð eða hafa yfir nokkur varnaðarorð, ekki eingöngu frá sjálfum mér, heldur frá öðrum aðilum, sem hafa látið uppi álit sitt á þessu máli. Þó að hv. 1. þm. Sunnl. viki nokkuð ítarlega að áliti bankamn. áðan op læsi ýmislegt upp úr hennar fórum, leyfi ég mér að víkja að einni tilvitnun eða svo úr skrifum bankamn., sem sýnir og sannar mjög ljóslega, að bankamn. sjálf varar líka við þessu máli og of miklum flýti og flaustri í sambandi við að ráða því til til hlunns. Hv. n. segir á einum stað:

„Eigi að stefna að einföldun og samruna innan bankakerfisins, er n. þeirrar skoðunar, að nauðsynlegt sé að taka alla þætti þess til endurskoðunar. Fækkun ríkisbankanna einna mundi ná aðeins takmörkuðum árangri, ef ekki fylgdi á eftir fækkun hlutafélagsbankanna og samruni sparisjóða og innlánsdeilda í stærri og starfhæfari heildir. Einnig er mjög mikil þörf á heildarendurskipulagningu fjárfestingarlánakerfisins.“ Og síðar segir n:

„Þótt n. sé þeirrar skoðunar, að stefna beri að verulegum samruna innan bankakerfisins og fækkun stofnana, vill hún eindregið vara við því, að þeirri stefnu verði framfylgt án tillits til þeirra sögulegu og félagslegu sjónarmiða, sem mótað hafa þróun þessara mála hingað til. Af þessum og öðrum rökum hefur n. orðið ljóst, að ,samruni bankastofnana og einföldun fjármálákerfisins er stefna, sem framkvæma verður með fullri gát og á hæfilega löngum tíma, Í þessu efni verður að eiga sér stað þróun fremur en bylting, ef ekki eiga að koma upp alvarleg vandræði og andstaða, sem gera mundi allar slíkar fyrirætlanir að engu. Sannleikurinn er sá, að hver stofnun á sér djúpar rætur í þeim jarðvegi, sem hún er sprottin úr.“

Þetta voru örfá orð úr áliti bankamn., og ég hygg, að hver sem les þau sé ekki í neinum vafa um, hvert nm. eru að fara.

Það var vikið að því hér áðan í ræðum fyrri ræðumanna, að það hefði verið haft lítið samráð við starfsmannafélög bankanna í þessu efni, frv. þetta væri samið svo að segja af eintómum bankastjórum, en síður en svo leitað álits hinnar vinnandi stéttar í bönkunum, sem er allfjölmenn — í árslok 1971 var talið, að starfsfólk Búnaðarbanka Íslands væri alls 184, en í Útvegsbankanum 225, ef ég man rétt. En á síðustu dögum hefur a.m.k. Starfsmannafélag Búnaðarbanka Íslands fengið tækifæri til að kynna sér frv. þetta nokkuð og hefur látið álitsgerð og aths. um málið frá sér fara. Væri sannarlega ástæða til þess að vitna nokkuð í það álit, en ég held, að ég geti sparað mér það að mestu leyti, þar sem hv. 5. þm. Reykv. vék nokkuð ítarlega að því máli hér í dag. En þó vildi ég mega lesa upp eina eða tvær setningar úr þessu áliti, t.d. eins og þessa:

„Stjórn Starfsmannafélags Búnaðarbanka Íslands gerir sér fulla grein fyrir nauðsyn endurskoðunar á bankakerfinu og þar með samningu nýrrar og betri löggjafar um viðskiptabanka í eigu ríkisins, en harmar jafnframt þau mistök, sem orðið hafa við undirbúning þessa frv.“

Og á öðrum stað segir, að stjórn Starfsmannafélags Búnaðarbankans sé hlynnt þeirri meginstefnu, að vinna beri að fækkun viðskiptabanka. Til að hægt sé að taka málefnalega afstöðu til sameiningar banka, álíti stjórnin hins vegar, að byggja verði á niðurstöðum viðtækra hlutlægra (objektivra) athugana á fjölmörgum þáttum, t.d. rekstrarhagkvæmni. Sú undirbúningsvinna hefur ekki enn verið unnin, svo að vitað sé. Þess vegna er stjórnin nú andvíg þeirri sameiningu Búnaðarbankans og Útvegsbankans, sem frv. viðskrn. gerir ráð fyrir, því að þar fyrirbuguð sameining þessara banka er ekki byggð á rökstuddum niðurstöðum nauðsynlegra rannsókna.

Og þar er einnig bent á það, sem full ástæða er til að ítreka í þessu máli, að leggja verður ríka áherslu á, að það eru enn sterkari rök fyrir því að sameina hlutafélagsbanka en ríkisbanka, þegar af þeirri ástæðu, sem mjög er hampað í áliti bankamn., að hlutafélagsbankarnir eru verulega minni rekstrareiningar en ríkisbankarnir.

Ég minntist hér áðan á III. kafla frv., sem fjallar um starfsn. bankanna, og taldi æskilegt, að ríkisbankarnir hefðu nokkurt samstarf sín á milli. Það er einnig bent á það í þessu áliti Starfsmannafélags Búnaðarbankans, að það sé hægt að vinna saman, án þess að um algera sameiningu sé að ræða. Þar er nefnt eitt dæmi, það er hin svokallaða Reiknistofa bankanna. Hún verður sameiginleg og alhliða bókunarmiðstöð allra viðskiptabankanna og Seðlabankans, stofnuð með samningum þeirra á milli án frumkvæðis eða þvingunar stjórnvalda. En síðasta setningin í áliti Starfsmannafélags Búnaðarbanka Íslands er sú, að nægar forsendur fyrir framlagningu frv. í þessari gerð séu ekki fyrir hendi að svo komnu.

Hv. 3. þm. Norðurl. e. vék nokkuð að afstöðu bænda og bændasamtaka til þessa frv. eða þess anda, sem þar svífur yfir vötnunum. Hann las m.a. upp ályktun Búnaðarþings frá 1973. Þarf ég ekki að endurtaka þau orð hans. Og einnig gat hann um ýmsar samþykktir, sem hafa verið gerðar hér og hvar um landið og stefna í sömu átt. Mér er enn fremur kunnugt um, að hjá Stéttarsambandi bænda hefur þetta mál verið rætt, þó að sennilega hafi engin ályktun verið gerð um það enn þá. En það er fullljóst, að þau bændasamtök eru einnig vakandi í þessum efnum. Og ég fagna því, að við skulum að þessu leyti vera í sama báti, ég og hv. 3. þm. Norðurl. e. Við erum alls ekki nærri því alltaf á öndverðum meiði.

Hæstv. viðskrh. rakti aðdraganda frv. í ræðu sinni hér í dag, og að sjálfsögðu var ræða hans og afstaða allmjög mótuð af vissum viðhorfum úr áliti bankamn. Hann benti m.a. á það, þegar fór að líða undir lok ræðunnar, að gjaldeyrisréttindi væru ekki látandi í hendur á banka, nema hann ræki nokkuð alhlíða bankastarfsemi. Í því sambandi gat hann þess, að Búnaðarbankinn lánaði einkum til landbúnaðar og viðskipta. Ég vil ítreka það, sem ég áðan sagði, að Búnaðarbanki Íslands er fyrir löngu orðinn alhliða banki, sem rekur alhliða bankastarfsemi.

Þá taldi hæstv, ráðh. auðveldara að skipuleggja útibúákerfið, ef ríkisbönkum fækkaði. Má vera, að þetta sé rétt, a.m.k. að vissu marki. En ég vek athygli á því, sem ég áðan sagði, að hingað til hefur ekki verið leyfilegt að setja á fót útibú eða umboðsskrifstofu frá banka nema með leyfi Seðlabanka Íslands. Og ég vona, að mér sé óhætt að segja, þrátt fyrir orð hv. 3. landsk. þm., að hæstv. viðskrh. sé æðsti yfirmaður Seðlabankans. En þegar leið að lokaorðum hæstv. ráðh., fór hann að slá svolítið betur í, m.a. sagði hann, að því er mér skildist, að í raun og veru væru allar mótbárur við þetta frv. eða þessa stefnu hæstv. ríkisstj. léttvægar og haldlitlar, — allar mótbárur léttvægar og haldlitlar, — og það lægi alveg í augum uppi, að hinn sameinaði banki gæti þjónað landbúnaðinum miklu betur en Búnaðarbankinn gerði í dag. Það má vera, að hæstv. ráðh. geti fært þessum orðum sínum stað. Til marks um þann glundroða, sem ríkti í þessum efnum, eða a.m.k. gæti orðið, nefndi hæstv. ráðh. Snæfellsnes og vakti athygli á, hvílíkt skipulagsleysi og glundroði gæti skapast þar, ef aðrir viðskiptabankar færu nú á stúfana og reistu þar útibú, en þau væru þegar fyrir, a.m.k. Búnaðarbankinn, Samvinnubankinn og eitthvað af sparisjóðum. Ég veit, að nauðsyn er á vissu skipulagi í þessum málum, og þar er Seðlabankinn sá, sem valdið hefur. Og ég veit, að ef Seðlabankinn leyfir, þá er auðvitað hægt að planta útibúum frá bönkum um allt Snæfellsnes, eins og t.d. er verið að gera á Norðfirði, að því er mér er sagt. Þar hefur Landsbanki Íslands nýlega sett upp útibú við hliðina á gamalgrónum sparisjóði, að mér skilst, án nokkurrar samvinnu við hann. Hingað til höfum við í Búnaðarbankanum ekki talið þetta til fyrirmyndar. Við höfum yfirleitt aldrei viljað mæla með því, að setja á stofn útibú frá Búnaðarbankanum við hliðina á annarri peningastofnun úti um byggðir landsins, sem leiða mundi til óæskilegrar samkeppni. En þetta er, hæstv. ráðh., alveg hægt að koma í veg fyrir, ef Seðlabankinn er látinn beita þessu valdi sínu af viti og skynsemi.

Af þessum orðum mínum og annarra, sem ég hef hér haft yfir, má ljóst vera, að ég tel ókannað og ósannað, hvort sú sameining Búnaðar- og Útvegsbankans, sem rætt er um í þessu frv., leiði til aukins sparnaðar og rekstrarhagkvæmni. Ég tel eins og fleiri miklu frekari rannsókna þörf. Það er rétt, að æskilegt er að skipuleggja þessi mál að vissu marki og tvímælalaust rétt að koma í veg fyrir óæskilega samkeppni banka, einkum viðskiptabanka ríkisins.

Það hefur verið rætt af öðrum en mér, hversu mörg og mikil vandamál rísa í sambandi við starfsfólk tveggja stórra banka, sem sameinaðir eru, og þarf ég ekki að víkja nánar að þeim efnum, það hlýtur að liggja í augum uppi. Og ég tel, að þetta mál verði allt að skoða mjög vel, áður en breytingar eru gerðar. Þess vegna álít ég ekki með nokkru móti unnt að mæla með samþykkt þessa frv. nú. Það þarf að kryfja marga þætti þess mun betur til mergjar. Og það er fráleitt að leggja út í slíka sameiningu, nema að sýnt verði fram á augljósan ávinning, meiri sparnað, bætta þjónustu og aukið hagræði í hvívetna í þessum málum.