28.03.1974
Neðri deild: 93. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3227 í B-deild Alþingistíðinda. (2896)

266. mál, viðskiptabankar

Sverrir Hermannsson:

Herra forseti. Ég hef ekki mörgum orðum við þær umr. að bæta, sem hér hafa farið fram. Í öllum ræðum manna, sem hér hafa tekið til máls, fyrir utan hæstv. viðskrh., hefur það komið fram, hversu fráleit tillögugerð hér er á ferðinni.

Hv. 3. þm. Norðurl. e. vitnaði til málefnasamnings hæstv. ríkisstj. og þess atriðis hans, þar sem rætt er um endurskoðun á bankakerfinu, og þar stendur orðrétt, með leyfi hæstv. forseta, — það er eins og segir í upphafi:

Stefna ríkisstj.: „að endurskoða allt bankakerfið, þ. á m. löggjöf varðandi Seðlabankann og hlutverk hans, og vinna að sameiningu banka og fjárfestingarsjóða.“

Hv. þm. telur það hreint ekki að fara neitt á svig við þennan málefnasamning, þótt ekkert af þessu hafi verið framkvæmt, en heldur því fram, að við málefnasamninginn sé fullkomlega staðið, ef í þessu verði grautað og ekkert af því framkvæmt. Þetta gefur vissulega skýringu á nokkuð mörgum öðrum mikilvægum atriðum í þessum fræga stjórnarsáttmála, því að ég skil vel, að hv. stjórnarsinnar séu hinir rólegustu, ef þeir líta svo á, að þeir hafi fullkomlega staðið við sinn málefnasamning, ef þeir hafi unnið að einhverjum málefnum, grautað í þeim, eins og ég kalla, án þess að neitt sé framkvæmt. Og ég tel þetta, eins og ég segi, nýjan skilning á öllum þessum fræga málatilbúnaði.

Í framhaldi af þessu ákvæði málefnasamningsins skipaði hæstv. viðskrh, n. manna til þess að endurskoða bankakerfið, og það vakti vissulega undrun manna, með hvaða hætti staðið var að skipan þeirrar n., vegna þess að í henni áttu sæti svo til alfarið allir höfundar núv, kerfis bankamálanna með sjálfan dr. Jóhannes Nordal í fararbroddi, sem setið hefur sem könguló í þeim vef um árabil, enda var þessi bankamn. ekki lengi að komast að þeirri niðurstöðu, að ekkert þyrfti að endurskoða varðandi valdsvið Seðlabankans sjálfs. Og við því ætlar hæstv. viðskrh. sennilega að taka, enda þótt fram hafi komið, að hann hafi mjög mátt þjást undan ofríki þessarar stofnunar, Seðlabankans sjálfs. Má ég minna á það, að hann stóð hér upp á hinu háa Alþ. s.l. haust og lýsti því yfir, að hann hefði verið beittur ofbeldi og þvingunum, með því að Seðlabankinn hefði ákveðið hækkun útlánsvaxta í andstöðu við sjálfan hæstv, bankamrh. Og bann varð að láta sér það lynda, að hann kæmi ekki neinum vörnum við, þegar þeir byrjuðu á stórframkvæmdum á Arnarhólnum með þeim ósköpum, að hann varð að sitja við vinnu sína með eyrnaskjól. Því fór víðs fjarri, hann varð að beygja sig fyrir ofríki þessarar stofnunar. Samt sem áður tekur hann það sem góða og gilda vöru, að ekkert þurfi að endurskoða varðandi valdsvið þessarar stofnunar, hafði þó í stjórnarandstöðu áður kvartað mjög sárlega yfir því ofurvaldi, sem þessari stofnun væri falið.

Það er alveg ljóst, að þetta frv., sem liggur hér fyrir til umr., er í engu samræmi við það álit, sem frá bankamn. kom. Í mjög veigamiklum atriðum er það alls ekkert í samræmi við það. Má ég m.a. benda á það, að það er álit bankamn. t.d., að eðlilegt sé, að viðskiptabankarnir séu allt upp í 4. Hvað er verið að gera með þessu frv? Menn tala um, að það sé einvörðungu verið að sameina Búnaðarbankann og Útvegsbankann í einn Útbúnaðarbanka. Ég er á annarri skoðun. Ég er á þeirri skoðun, að það sé verið að sameina Landsbankann, Búnaðarbankann og Útvegsbankann í eina ríkisbankaeinokun. Og það byggi ég sér í lagi á III. kafla þessa frv., sem er alveg nýr og nýmæli, og var hreint ekkert um slíkt fyrirkomulag getið í áliti bankamn.

Hvert er hlutverk samstarfsnefndar, sem þarna á að koma til? Við skulum athuga það aðeins nánar. Segir svo í 19. gr., með leyfi hæstv. forseta:

„Ríkisviðskiptabankarnir skulu hafa sín á milli náið samstarf, er miðar að því að tryggja sem mesta rekstrarhagkvæmni og eðlilega verkaskiptingu þeirra á milli. Setja skal á stofn sérstaka samstarfsnefnd, er hafi það að markmiði að samræma starfsemi ríkisviðskiptabankanna, svo sem nánar er fyrir mælt í l. þessum. Samstarfsnefndina skipa 5 menn. Ríkisviðskiptabankarnir skipa 2 nefndarmenn hvor og Seðlabankinn 1. Ráðh. skipar einn nefndarmanna formann.“

Síðan er í 20. gr. fjallað um verksvið þessarar nefndar, sem er rakið út í hörgul og sýnir, að hér er ný yfirbankastjórn á ferðinni. Það bögglaðist dálítið fyrir hv. 1. þm. Sunnl., að honum virtist samkv. þessu frv., að bankaráðsmönnum mundi fækka um 3, vegna þess að í gömlu bönkunum tveimur eru 10, en gert er ráð fyrir 7 í nýja Útbúnaðarbankanum. En það kemur í ljós, að þeir eru 12 og þar af 5 alveg spánýir stóryfirbankaráðsmenn, sem eiga að vera í þessari frægu samstarfsnefnd. Dettur nokkrum lifandi manni í hug, að hún eigi að vera kauplaus? Hún á auðvitað að vera á tvöföldum launum. Hér er sem sagt verið að efna til þess, að ríkisviðskiptabankarnir verði ríkisbankaeinokun í landinu. Það er alveg augljóst mál.

Tímans vegna ætla ég ekki að rekja efni 20. gr., en ég bendi mönnum alveg sérstaklega á að kynna sér það, vegna þess að þar er alveg greinilegt, hvað er á ferðinni. Ýmsir viðskiptavinir núv. Útvegsbanka og Búnaðarbanka mundu ekki láta sjálfviljugir draga sig inn í þessa nýju samsteypu, það get ég fullyrt, og ég er í aðstöðu til að fullyrða það, nema af því að til kemur yfirbankaráð ríkisviðskiptabankanna, þar sem verður náið samstarf um alla hluti, og það verður að því gáð, að viðskiptavinir gömlu bankanna, Búnaðarbankans og Útvegsbankans, muni ekki ná vopnum sínum hjá hinum aðalríkisviðskiptabankanum. Þar verður allt niðurnjörvað. Þetta er svo ljóst sem verða má, og ég skil ekkert í því, að menn skuli ekki hafa hnotið um þetta. Að vísu tók hv. 3. þm. Norðurl. e. það fram, og hv. 4. þm. Vesturl. tók undir það, að ljóst væri, að hér væri stefnt að meira miðstjórnarvaldi. Það þarf ekki að fara í grafgötur um það, að það er meir en svo. Hér er verið að setja þetta allt undir einn hatt. Þetta er engin lausleg viðræðunefnd, sem þarna á að vera að störfum. Hér er um yfirbankaráð að tefla, sem tekur allt til hinnar nákvæmustu athugunar.

Hæstv. viðskrh. gat þess, að þetta væri þáttur í því að auka þjónustu bankanna við atvinnulífið. Það er alveg nýtt, ef einhver ríkiseinokun verður til þess að auka þjónustu við einn eða annan í þjóðfélaginu. Aldagömul reynsla sýnir allt annað.

Þetta var annað aðalatriðið, varðandi þjónustuna. Varðandi sparnaðinn liggur ekkert fyrir, eins og margoft hefur verið tekið fram hér í umr., að nokkur sparnaður verði að þessu, nema siður sé. Og það hlýtur að vekja athygli, að Landsbanki Íslands, sem er rétt aðeins stærri en þessir bankar sameinaðir, skuli hafa á annað hundrað manns fleira í þjónustu sinni heldur en þessir bankar til samans. Skyldi ekki geta verið, að þarna sé Parkinsons-lögmálið fræga á ferðinni? Ég á helst von á því, en það hefur þó ekki verið rannsakað. Það hefur ekkert verið rannsakað í þessu efni. Ég á helst von á því, að um stóraukið starfsmannahald yrði að tefla, þegar farið yrði að brjótast í að reyna þessa sameiningu, sem ein út af fyrir sig kemur til með að kosta stórfé.

Síðasta atriðið, sem ég ætlaði að vekja athygli á, verður till. um að efla eiginfjárstöðu þessara banka. Þessa hafði verið getið í áliti bankamn., og þar voru nefndar einar 700 millj. kr. Hér eru nefndar 400 millj. kr., og það er einn liðurinn í sparnaðaráætlun þessarar hæstv. ríkisstj. að veita 400 millj. úr ríkiskassanum inn í bankakerfið. Það eru dálítið undarlegar sparnaðarráðstafanir, sem þessi hæstv. ríkisstj, hefur í frammi. En Seðlabankinn á að snara þessu út, segja þeir. En mér er spurn: Vaxa seðlar á trjánum í Seðlabankanum? Ég hélt og sér í lagi á verðbólgutímum, að þá væri aðalatriðið að lána ekki út annað fé en það, sem sparast. Hér á að taka til 400 millj. kr., og þeim á að dæla út í fársjúkar fjármálaæðar efnahagskerfisins. Þetta stangast á við allar hagfræðikenningar, sem hafa verið uppi fyrr og síðar, líka þar sem miðstjórnarvaldið er miklu sterkara en hér, og hæstv. viðskrh. hefur sjálfsagt kynnt sér. Hér er öfugt að farið vitaskuld. Hér er ekki hugsað fyrir neinu. En við vitum samt, af hvaða ástæðum þetta frv. er hér allt í einu komið fram. Auðvitað hefur hæstv. viðskrh. og hæstv, ríkisstj., sem ég einu sinni veit ekki, hvort stendur að þessu, fyrir utan hæstv. viðskrh., — auðvitað hefur hún séð það, sem segir í áliti bankamn., að hér megi ekki rasa að neinu, slík sameining, ef hún eigi að fara fram, kosti miklar rannsóknir og áralangan undirbúning. Auðvitað hefur hún séð þetta allt saman. Allt er þetta sprottið af áflogum, sem stóðu yfir og öll þjóðin horfði hlæjandi á hér á hausti liðnu, þegar það bögglaðist fyrir hæstv. viðskrh. að koma sínum manni, eins og það heitir, í bankastjórastöðu hjá Búnaðarbanka Íslands. Þetta vita allir menn. Hann fékk að vísu hefnd, þar sem hann kom honum inn í sjálfan Seðlabankann. Kannske hann verði ekki beittur í framtíðinni jafnmiklu ofríki af hálfu þeirrar stofnunar og hingað til, eins og hann hefur sárlega kvartað undan hér í sölum Alþingis. En allt að einu hafði hann óskað eftir því sárlega að eiga hann í viðskiptabankanum sjálfum, en fékk því ekki framgengt. Þá var rokið upp til handa og fóta og þetta frv. samið. Það komu fréttir hingað strax og það lá fyrir, að þessi fóstursonur hæstv. viðskrh. kæmist ekki í bankastjórastöðuna í Búnaðarbankanum, að þá mundi verða sett hér fram frv., þar sem heldur betur yrði tekið til höndunum. Þeir skyldu vara sig, þeir menn, sem fyrir því höfðu staðið, að hann náði ekki vopnum sinum í þessu sínu langþráða baráttumáli og hagsmunamáli þjóðarinnar náttúrlega um leið, eins og hv. 3. landsk. hefur svo fagurlega lýst, fyrrv. flokksbróðir hæstv. viðskrh.

Að sinni ætla ég ekki að orðlengja um þetta mál. Ég geri ekki ráð fyrir því að fá tækifæri til að tala um það meir, því að vitaskuld kemur málið aldrei aftur úr n., ekki nema til þess að afgreiða þá með rökstuddri dagskrá og taka fyrir einhver þjóðþrifamál, en ekki slíkt frv.-ræksni, eins og hæstv, forseti, sem nú situr, hefur réttilega nefnt svo.