06.11.1973
Sameinað þing: 13. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í B-deild Alþingistíðinda. (292)

10. mál, almenningsbókasöfn

Fyrirspyrjandi (Gils Guðmundsson) :

Herra forseti. Ég tel óþarft að fara mörgum orðum um gildi almenningsbókasafna. Ég hygg, að öllum sé það gildi ljóst. Ég vil einungis benda á, að slík söfn gegna eða þurfa a. m. k. að gegna æ mikilvægara og fjölþættara hlutverki í þjóðlífinu.

Endurskoðun gildandi l. um almenningsbókasöfn munu hafa farið fram árið 1971, og þá var, að því er mér er skýrt frá, samið nýtt frv. um þetta mikilvæga málefni, þar sem gildandi lögum var allverulega breytt. Of langur dráttur hefur að mínu viti orðið á flutningi þessa frv. Nú mun frv. nýlega hafa fengið nýja endurskoðun. í stefnuræðu hæstv. forsrh. var hið nýja frv. eða hið endurskoðaða frv. um almenningsbókasöfn talið meðal þeirra mála, sem hæstv. ríkisstj. mun leggja fyrir þetta þing. Því ber vissulega að fagna. Allt um það tel ég, að fsp. mín, sem var komin fram áður, sé ekki að ófyrirsynju fram borin, þar eð á miklu veltur, að frv. komi fljótlega fram og hægt verði að taka tillit til þess við endanlega afgreiðslu fjárl. fyrir næsta ár. Vitanlega kostar það ríkissjóð nokkurt fé að efla almenningsbókasöfn í landinu myndarlega, en ég fullyrði, að naumast verði þeim fjármunum betur varið í þágu fræðslu- og menningarmála en með því móti.

Fsp. mín á þskj. 10 þarf ekki að mínum dómi frekari skýringar við.