29.03.1974
Efri deild: 94. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3245 í B-deild Alþingistíðinda. (2933)
52. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Helgi F. Seljan:
Herra forseti. Það er aðeins örstutt varðandi þetta frv., sem hér er flutt og er komið frá Nd., þar sem segir, að íbúðir, sem byggðar eru í því skyni að útrýma heilsuspillandi húsnæði, skuli geta notið lána samkvæmt II, kafla húsnæðismálalaganna eða samkvæmt lögum um Stofnlánadeild landbúnaðarins.
Þetta frv. er sjálfsögð leiðrétting gagnvart bændastéttinni, og ég vil þess vegna lýsa yfir fyllsta stuðningi mínum við það. Ég álít, að það sé sjálfsagt, að þeir eins og aðrir komist inn í það kerfi, sem hér um ræðir. Heilsuspillandi húsnæði hefur svo sannarlega þekkst í sveitum og þekkist enn, þótt þar hafi á orðið mikil og góð breyting. Það er því furðulegt, að ekki skuli löngu búið að tryggja bændum þennan rétt til svo hagstæðra lána, sem þarna er um að ræða. Ég er hræddur um, að aðalástæðan fyrir þessu sé sú, að húsnæðismál op lánakerfi bænda einna eru undanskilin hinni almennu reglu um húsnæðislán, þ.e. að Stofnlánadeild landbúnaðarins er með þessi verkefni að lána bændum til húsbygginga, þannig að þeir eru eina stéttin mér vitanlega, sem ekki á aðgang að Húsnæðismálastofnun ríkisins, en er tryggt lánsfé með öðrum hætti.
Samkv. upplýsingum frá hæstv. landbrh. við fyrirspurn minni frá í vetur varðandi þessi mál, munu lánsupphæðir og kjör öll vera svipuð, ef allt er skoðað, þ.e.a.s. kjörin hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins almennt til húsbygginga bænda eru nokkru betri um sumt miðað við almennar húsbyggingar, en miklum mun lakari, ef miðað er við t.d. verkamannabústaðakerfið. Ég held, að um flest væri eðlilegast, að íbúðarlán til hænda féllu einnig inn í hið almenna húsnæðislánakerfi og jafnvel að bændur nytu sem líkastra kjara og þar gerast best, þ.e.a.s. hinir tekjulægri í þeirra hópi. Þetta dæmi um misrétti, sem allt of lengi hefur viðgengist, styður þessa skoðun mína.
Ég vil einnig benda sérstaklega á frv. það, sem ég mælti fyrir í gær um útibú frá Húsnæðismálastofnun ríkisins, að þar kæmi verðugt viðbótarverkefni fyrir þau og án efa einnig jafnnauðsynlegt bændum sem öðrum húsbyggjendum að eiga þess kost að hafa slíka fyrirgreiðslu nær sér en nú er. Verkefni Stofnlánadeildar landhúnaðarins væru vissulega ærin, þó að þessi þáttur væri þaðan tekin, og sé ég því ekki ástæðu til neinnar viðkvæmni þaðan, þó að þessum málum væri breytt í það horf, sem ég hef á minnst. Vitanlega yrði að sjá svo til um leið, að húsnæðismálakerfinu yrðu útvegaðar tekjur sem þessu næmi.
Það væri vissulega æskilegt, að þessi mál yrðu gaumgæfð sérstaklega, því að einhvern veginn finnst mér skipan þessi óheppileg og óeðlileg, og mér finnst einmitt þetta frv., sem hér er til umr., ljóst dæmi hér um. Ég er frv. hjartanlega samþykkur, en vildi aðeins koma þessum ábendingum að.