29.03.1974
Neðri deild: 95. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3250 í B-deild Alþingistíðinda. (2956)
27. mál, skipti á dánarbúum og félagsbúum
Frsm. (Jón Skaftason):
Herra forseti. Allshn. þessarar hv. d. hefur haft til athugunar frv. til l. um breyt. á l. nr. 13 12. apríl 1878, um skipti á dánarbúum og félagsbúum o, fl., sem er 27. mál þessa þings. N. hefur orðið sammála um að mæla með frv. með nokkrum brtt., sem ekki eru mikilvægar og liggja frammi á þskj. 545. Ég tel brtt. svo ljósar, eins og þær liggja fyrir, að óþarft sé að fara um þær fleiri orðum.