29.03.1974
Neðri deild: 95. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3265 í B-deild Alþingistíðinda. (2962)
8. mál, skólakerfi
Pálmi Jónsson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umr, að neinu marki. Ég ætla ekki á þessu stigi að ræða grunnskólafrv., sem væntanlega kemur til umr. hér á eftir, en einungis halda mig við það frv., sem hér liggur fyrir. Ég vil þó taka undir það með hv. frsm. n., Hannibal Valdimarssyni, að mér sýnist ærið starf fyrir höndum fyrir hv. Alþ. að átta sig á því máli, eftir að fram eru komnar milli 80 og 90 brtt., og vandséð er, hvernig afgreiðsla þeirra verður, ef menn leggja sig ekki fram við það að móta afstöðu sína til þeirra í heild.
Það, sem varð þess valdandi, að ég kem hér nú upp í ræðustólinn, eru aths. hæstv. menntmrh., sem hann lét falla hér áðan. Hann taldi sig færa sönnur á það, að Sjálfstfl. hefði tekið afstöðu til þess að lengja skólaskyldu í landinu, þegar frv. um grunnskóla var lagt fram í lok þings 1971. Þetta er auðvitað mesti misskilningur. Þegar frv. um grunnskóla var lagt fram undir lok þings vorið 1971, var það að vísu flutt sem stjfrv., en það var flutt til þess að gefa þingheimi og landslýð öllum færi á að kynna sér þetta mál, sem samið hafði verið af stjórnskipaðri n., án þess að Sjálfstfl. sem slíkur hefði nokkra afstöðu til þess tekið. Það er því fjarri því, að flokkurinn hafi á þeim tíma nokkra afstöðu tekið til þess að lengja skólaskylduna, svo sem enn er stefnt að með flutningi þessa frv. Það er því algerlega á röngum forsendum reist hjá hæstv. ráðh., þegar hann segir, að hv. 9. landsk. sé að brjóta af sér fyrir afstöðu flokks síns með því að lýsa því yfir hér á Alþ. nú, að hann leggist gegn lengingu skólaskyldunnar fyrir hönd Sjálfstfl. Ég vil og vísa algerlega frá þeim ummælum hæstv. ráðh., að það búi eitthvað að baki þessari afstöðu okkar þm. Sjálfstfl., sem verði til hins verra fyrir skólaæskuna í landinu og menntun þjóðarinnar. Ég skal ekki fara langt út í þá sálma, enda höfum við rætt þetta efni fyrr á hv. Alþ. Ég vil aðeins taka undir það, að ég held og hef raunar lýst því fyrr, að það sé heillavænlegra að taka upp fræðsluskyldu yfir hið svokallaða grunnskólastig í stað skólaskyldu, og mætti þó gjarnan hafa hluta af þessu fræðsluskyldustigi bundinn við skólaskyldu. Þar með er ekki sagt, að það sé endilega nauðsynlegt, að hún sé 8 ár, eins og nú er. Það kæmi vissulega mjög til greina að stytta skólaskylduna frá því, sem hún er í dag, og hygg ég, að hv. n., sem um málið hefur fjallað, hefði átt að taka það til verulegrar athugunar. Það hefur ekki komið fram, að um það hafi verið fjallað í n., en ástæða væri til þess að fá það upplýst, ef ekki við umr. um þetta frv., þá við umr. um frv. um grunnskóla. Ég tel mig hafa fært fullar sönnur á það fyrr í umr, um þessi mál hér á hv. Alþ., að sá munur, sem fram kemur í skólasókn nemenda úr strjálbýli og þéttbýli, eftir að skólaskyldu lýkur, sé ekki því að kenna, að þeir nemendur, sem búa úti á landi, séu síður þess sinnis að sækja sitt nám heldur en þeir, sem í þéttbýli búa, heldur er þar einungis því um að kenna, að hið opinbera hefur ekki getað skapað aðstöðu í heimabyggð þessara nemenda, sem gerir þeim kleift að sækja það nám, sem hugur þeirra hefur staðið til.
Ég tel ekki ástæðu til þess að leggja aukinn þunga á það, sem ég hef sagt um þetta fyrr, en þessari skoðun minni hefur með engu móti verið hnekkt. Þess vegna tel ég það algerlega fullnægjandi, að í stað skólaskyldu komi fræðsluskylda jafnvel þegar eftir að unglingar hafa lokið barnaprófi. Ég vil því lýsa fylgi mínu við þá brtt., sem hv. 9. landsk. hefur hér flutt skrifl., og vænti þess, að hún verði samþykkt.
Ég sé ekki ástæðu til þess að lengja þetta meira. Ég vildi einungis svara þeim aths., sem fram komu hjá hæstv, ráðh. Til þess gefst og færi, ef ástæða er til, að fjalla nánar um þessi mál, ef framhaldsumr. verða, og eins við umr. um frv. grunnskóla.