01.04.1974
Efri deild: 96. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3285 í B-deild Alþingistíðinda. (2975)
168. mál, lífeyrissjóður sjómanna
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Frv. á þskj. 619, sem er komið frá hv. Nd., var flutt þar samkv. ósk stjórnar lífeyrissjóðs sjómanna. Frv. var undirbúið af hálfu sjóðsstjórnarinnar af Guðjóni Hansen tryggingafræðingi, og þær breyt., sem gerðar voru í hv. Nd. á frv., frá því að það var upphaflega lagt fram, höfðu verið kynntar, áður en fyrir frv. var talað, en þær voru einnig gerðar samkv. samkomulagi á milli ríkisstj. og sjómanna, sem hlut eiga að máli, og voru samdar af sama aðila eða Guðjóni Hansen tryggingafræðingi.
Frv. felur í sér aukin réttindi til handa þeim sem eiga að njóta trygginga úr lífeyrissjóðnum, og er það fyrst og fremst í samræmi við þær breyt., sem orðið hafa á tryggingum annarra aðila hjá lífeyrissjóðum, sem þessi sjóður hafði orðið aftur úr með.
Það varð samkomulag um þetta mál í hv. Nd., og ég held, að óhætt sé að segja, að það sé almennt samkomulag hv. þm., a.m.k. reyndist það svo þar, um ákvæði þessa frv., og þær breyt., sem hér eru gerðar, verða að teljast eðlilegar í alla staði.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að orðlengja frekar um frv. að sinni, en legg til. að því verði vísað að lokinni þessari umr. til 2. umr. og hv. fjh: og viðskn.