01.04.1974
Neðri deild: 96. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3297 í B-deild Alþingistíðinda. (2997)

292. mál, áhrif olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða

Ellert B. Schram:

Herra forseti. Þetta frv., sem hér er verið að ræða, heitir frv. til l. um ráðstafanir til að draga úr áhrifum olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða. Það felur í sér, að þessum ráðstöfunum skuli hagað með þeim hætti að greiða niður olíuna, sem notuð er til hitunar á íbúðarhúsnæði, og það skuli greitt niður með þeim hætti að úthluta ákveðinni upphæð af þessum 900 millj. kr. til hvers framteljanda til skatts, sem kyndir húsnæði sitt upp með olíu, og þetta skal gert með milligöngu bæjar- og sveitarfélaga. Þetta er í aðalatriðum efni þessa frv.

Nú er frá því að segja, að þetta frv. kemur mér ekki spánskt fyrir sjónir og reyndar ekki neinum hv. þm., vegna þess að í febrúarmánuði s.l., þegar rætt var um það í þingflokkunum, hvað gera skyldi varðandi ráðstafanir vegna verðhækkana á olíu, þá var þingfl. sýnt nánast þetta sama frv. Þá var þingfl. sýnt frv., sem fól í sér gjaldtökuna sjálfa, hækkunina á söluskattinum, og fól í sér, hvernig ráðstafa skyldi þessu gjaldi. Í þingfl. Sjálfstfl. var þegar mjög sterk og eindregin andstaða gegn því, hvernig ráðstafa skyldi gjaldinu, þ.e.a.s. mjög mikil andstaða gegn þeirri leið, sem mælt var með í því frv. og mælt er með í þessu frv., sem nú liggur hér fyrir framan okkur. Það var ljóst, að ef leitað væri eftir einhverri samstöðu í þinginu, þá var það borin von að reikna með því, að þingfl. Sjálfstfl. gæti staðið að og samþ. frv., sem fæli í sér það hvort tveggja, gjaldtökuna og ráðstöfun gjaldsins, meðan gert var ráð fyrir því, að gjaldinu væri ráðstafað með nefndum hætti.

Hæstv. ríkisstj. var það kappsmál, að því er virtist, að ná samstöðu hér í þinginu, og var lögð greinileg áhersla á það, að allir flokkarnir gætu sameinast um tekjuöflunina, þ.e.a.s. 1% söluskattshækkun. Því var valin sú leið að taka út úr fyrrnefndu frv. það, sem olli mestum ágreiningi, þ.e.a.s. ráðstöfun gjaldsins, en lögfesta sérstaklega tekjuöflunina, og það var gert í febrúarmánuði s.l. Við afgreiðslu þess máls var ég sá einasti hér á hv. Alþ., sem greiddi atkv. gegn frv. Ég gerði það vegna þess, að ég vildi mótmæla bæði efni frv. og vinnubrögðunum.

Ég tók fram, og ég tek enn fram, að ég gerði mér ljóst, að það þyrfti að leysa þennan vanda, vegna olíuverðhækkana, sem við blasti, með einhverjum hætti. En ég taldi í fyrsta lagi, að ríkisstj. hefði getað tekið á sig þann fjárhagspinkil, sem af þessu leiddi, án þess að leggja á nýjan og aukinn skatt. Og ef ríkissjóður gæti það ekki, þá vildi ég meina, að það væri vegna óráðsíu ríkisstj., hún yrði að taka afleiðingunum af því. Ef hún gæti ekki leyst málið, þá tekið afleiðingunum öðruvísi en að hafa um það samstarf við stjórnarandstöðuna, fá tilstyrk hennar til að koma málinu í gegn, þá ætti hún heldur að segja af sér. Ég benti í því sambandi á, að ef ekki væru fyrir hendi möguleikar ríkissjóðs beinlínis að leggja út fé til þess að koma til móts við þennan vanda, að þá ætti ríkisstj. að grípa til þess að skera niður fjárlög.

Í öðru lagi taldi ég, að stjórnarandstaðan, a.m.k. Sjálfstfl., væri að kaupa köttinn í sekknum, vegna þess að hann þyrfti fyrst að fá upplýst og staðfest, áður en ávísunin um 800 eða 900 millj. kr. væri afhent ríkisstj, til frjálsrar ráðstöfunar, þá yrði fyrst að fá staðfest, hvernig þessu gjaldi yrði ráðstafað, vegna þess að ein af meginforsendunum fyrir því, að Sjálfstfl. léði máls á því að styðja þetta mál, var sú, að ráðstöfunin yrði með ákveðnum, tilteknum hætti, sem ég kem að síðar. Ég hreint út sagt grunaði ríkisstj. um græsku, og taldi það ekki hlutverk stjórnarandstöðunnar að taka þátt í lagasmíð, gangandi út frá ákveðnum forsendum, nema tryggt væri, að tekið væri tillit til þessara forsendna.

Hæstv. sjútvrh. kallaði þetta einkennilega ræðu, sem ég flutti þá, og taldi hana vart svara verða. En nú mánuði seinna, hvað hefur komið í ljós, hvað blasir við? Í millitíðinni hefur það gerst, í fyrsta lagi, að hæstv. forsrh. hefur greitt atkv. á þingi með niðurskurðartill. frá stjórnarandstöðunni og hann hefur fylgt þeirri afstöðu sinni eftir með ræðu, þar sem hann hefur lýst því yfir, að, niðurskurður fjárl. sé mjög vel mögulegur. Og þar talar hann ekki aðeins um 700, 800–900 millj., heldur um 11/2 milljarð kr.

Í annan stað hefur komið í ljós, að þingflokkur sjálfstm. hefur keypt köttinn í sekknum, vegna þess að sjónarmíð hans hafa ekki verið virt viðlits og framkoma ríkisstj. hefur ekki reynst sú, sem gefið var í skyn við umr. og meðferð málsins fyrir mánuði. Þá gáfu hæstv. ráðh. hátíðleg loforð um það, að höfð yrðu samráð við stjórnarandstöðuna. Hvernig hafa þau samráð verið? Samkv. upplýsingum hv. þm. Ingólfs Jónssonar og Péturs Péturssonar hafa þeir verið kallaðir tvisvar, þrisvar sinnum upp í rn. til viðtals við, að mér skilst, embættismenn rn., ekki ráðh, sjálfan, og hv. þm. Ingólfur Jónsson sagði í ræðu sinni áðan, að það hefði strax komið í ljós, að hæstv. ráðh. hafði verið ráðinn í því að flytja þetta frv., sem nú liggur hér á borðunum hjá okkur. Hann var ráðinn í því strax. Ég veit ekki, hvort menn kalla þetta samráð. Ég hef ekki lagt þann skilning í það orð. Ég held hins vegar, að þetta háttalag ráðh. hafi verið það, sem alltaf stóð til. það var að læða þessu máli aftan að stjórnarandstöðunni og flytja þetta mál óbreytt, eins og hann sýndi okkur það í febrúarmánuði, en aðeins með þessari aðferð, af því að það þótti praktískt, eitthvað heppilegra.

Hæstv. ríkisstj. hefur sakað stjórnarandstöðuna um ábyrgðarleysi, en ég vil leyfa mér að halda því fram, að þetta sé ekki mjög ábyrg framkoma hjá ríkisstj. Menn eru hér blekktir til stuðnings við þetta mál með loforðum um, að við þá verði haft samráð, en samráðin eru síðan þau, sem nú er komið í ljós, að sjónarmið annarra eru ekki virt viðlits eða eru að engu höfð. Þingflokkur sjálfstæðismanna reit ríkisstj. bréf á sínum tíma, fljótlega upp úr áramótunum, þegar þessi vandi blasti við, og þar tjáði þingfl. sig fúsan til viðræðna um þann vanda, sem skapast hafði, og lausn á þessum vanda. Í bréfinu var tekið fram að leysa þyrfti þennan vanda, jafnt varðandi íbúðarhúsnæði sem annað húsnæði, og það var auðvitað ein af meginforsendunum fyrir þessu bréfi, eitt af skilyrðunum, að Sjálfstfl. vildi ljá máls á nýjum gjaldtökum, að vandamálið yrði leyst bæði gagnvart íbúðarhúsnæði og öðru húsnæði. Þetta sjónarmið kom fram í ræðu, sem hv. 1. þm. Sunnl. hélt hér við 1. umr. þessa máls, 27. febr. s.l. Hann sagði þá í ræðu við 1. umr., með leyfi forseta:

„Þegar hæstv. viðskrh, afhenti mér uppkast að þessu frv., tók ég fram við hann, að ég teldi eðlilegt að binda þetta ekki við íbúðarhúsnæði og strika bæri íbúðarhúsnæði út, en nefna aðeins húsnæði, og hélt ég, að hæstv. ráðh. ætlaði að gera bað. En ég sé, að það hefur ekki verið gert, og vil ég vekja athygli þeirrar n., sem málið fær til sín, að samkv. 1. gr. er aðeins átt við íbúðarhúsnæði.“

Síðan minnir hv. 1. þm. Sunnl. á bréf Sjálfstfl. og segir:

„Í bréfinu var vakin athygli á þeim mikla mismun, sem einnig var í atvinnurekstrinum. Þeir, sem þurftu að nota dýru olíuna við atvinnureksturinn, höfðu vitanlega allt aðra aðstöðu en hinir, sem höfðu raforku eða hitaveitu í sambandi við atvinnureksturinn. Bréfið var skrifað hæstv. ríkisstj., áður en málið komst á dagskrá eða umræðugrundvöll. Sjálfstfl. heldur sig að sjálfsögðu við þetta bréf.“

Í þessum orðum hv. þm. kemur réttilega fram mjög skýrt, að forsenda af hálfu Sjálfstfl. til þess að fylgja málinu var sú, að tekjuauki ríkissjóðs yrði notaður til aðstoðar fyrir atvinnureksturinn sömuleiðis. Nú brá svo við, þegar málið kom til 2. umr. 27. febr. eftir meðferð í n., að enn stendur í frv. íbúðarhúsnæði, ráðstafanir til að draga úr áhrifum olíuverðhækkana á hitunarkostnað íbúða. Við þessa umr. tekur hv. 1. þm. Sunnl. enn til máls og segir, með leyfi forseta:

„Það er eitt orð í 1. gr., sem getur valdið misskilningi. Í þeirri n., sem ég áðan minntist á, gat ég um bréf, sem Sjálfstfl. skrifaði hæstv. ríkisstj. um nauðsyn þess að gera ráðstafanir vegna hinnar miklu hækkunar, sem orðin er og fram undan er á olíu. Í því bréfi var ekki talað aðeins um íbúðarhúsnæði, heldur var á það minnt, að það gæti komið til greina að jafna einnig aðstöðumuninn í sambandi við atvinnureksturinn.“

Nú vil ég, vegna þess að samkomulag var sérstaklega gott í fyrrnefndri n. og hæstv. viðskrh. kom til fundar í henni, spyrja hæstv. ráðh., hvort það sé ekki hans álit, að þótt frv. verði afgreitt óbreytt, sé eftir sem áður opin leið, þegar frv. verður samið um ráðstöfun á olíusjóðnum, að taka til athugunar niðurgreiðslu á olíu til annars húsnæðis en íbúða. Ef hæstv. ráðh. væri á svipaðri skoðun og ég í þessu efni, tel ég enga ástæðu til að flytja brtt. við frv.“

Þetta voru orð hv. þm. Ingólfs Jónssonar og flutt vissulega að gefnu tilefni. En hæstv. ráðh. kemur upp að bragði og segir-með leyfi forseta — í þessari sömu umr.:

„Í frv. er gert ráð fyrir því, eins og hv. 1. þm. Sunnl. minntist á, að þessi gjaldtaka sé vegna niðurgreiðslu á hitunarkostnaði íbúðarhúsnæðis. En að sjálfsögðu er það fullkomlega opið, þegar ný lög verða sett um fyrirkomulag á þessari greiðslu, það er ekkert, sem getur bundið það, að þá verði ekki annað ákveðið. Hins vegar er því ekki að neita, að þessi gjaldtaka er miðuð við þetta og einnig það fyrirkomulag, sem er varðandi meðferð á þessu gjaldi að öðru leyti. En það er sem sagt ljóst, að með samþykki þessa frv. er ekki á neinn hátt skotið loku fyrir það, hvaða ákvæði kynnu að verða sett síðar.“

Nú skal viðurkennt, þegar lesin eru yfir þessi ummæli hæstv. ráðh., að óljósari skýringu er vart hægt að ímynda sér. Það er slegið úr og í, og vel er afsakanlegt, þó að það hafi vafist fyrir mönnum að átta sig á, hver meining ráðh. væri. En ég var svo einfaldur að halda, að þegar stendur í 1. gr. frv., að ráðstafanir gildi um íbúðarhúsnæði, það stendur þar svart á hvítu, og síðan eru slík lög samþ., þar sem þetta er tekið fram, þá var ég svo einfaldur að halda, að lög um gjaldtöku til ráðstöfunar á þessu gjaldi gætu aðeins náð yfir íbúðarhúsnæði, það sé ekki hægt að samþykkja önnur lög, sem segja til um annað en gjaldið er ætlað til. En hvað sem því líður, þá taldi hv. 1. þm. Sunnl. þetta svar ráðh. vera þess eðlis, að engin ástæða væri til að flytja brtt., og þm. Sjálfstfl. og sjálfsagt þingheimur allur lét sér svarið, að því er virðist, vel líka. Nú má það og vera, að það hafi ráðið úrslitum, að ráðh., ekki aðeins þessi hæstv. ráðh., heldur hæstv. forsrh. sömuleiðis, hafi gefið út mjög hátíðleg loforð um, að samráð skyldu höfð við stjórnarandstöðuna, þegar gengið yrði frá frv. um ráðstöfun fjárins. Þannig sagði sjútvrh. 27. febr.: „Sýnist þá vera nægur tími til að ganga frá því frv., sem lagt verður fram um ráðstöfun á gjaldinu, og verður haft samráð við fulltrúa allra stjórnmálaflokkanna um, hvernig það frv. yrði úr garði gert.“ Það er alveg opið fyrir Alþ. að ákveða annað en það, sem segir raunverulega í l., það er fullkomlega opið fyrir Alþ. að láta frv. til l. um ráðstafanir til þess að lækka hitunarkostnað á íbúðum ná yfir fleira en íbúðarhúsnæði. Og hæstv. forsrh. sagði í umr. um þetta mál, með leyfi forseta:

„Þetta atriði hefur verið rætt í ríkisstj. og verið gert ráð fyrir því, að haft yrði samráð við stjórnarandstöðuna um samningu á því frv., sem þarf að koma varðandi ráðstöfun á tekjum þessa sjóðs, þannig að ég geri ekki ráð fyrir, að það verði nein fyrirstaða á því. Tel ég mér óhætt að heita því í nafni ríkisstj., að þannig verði á þessu máli haldið.“

Það dugði hvorki meira né minna heldur en drengskaparloforð í nafni ríkisstj., að höfð yrðu samráð við stjórnarandstöðuna. Þetta eru að sjálfsögðu mjög afdráttarlausar yfirlýsingar og ekki óeðlilegt, þó að menn hefðu glæpst til þess að taka á þeim mark og því samþykkt gjaldtökuna á sínum tíma nánast shlj. hér á þingi. En nú hefur sem sagt komið í ljós, að frv., sem sýnt var í febr. og a.m.k. þingflokkur Sjálfstfl. tjáði sig algerlega andvígan, það er lagt fram núna nálega óbreytt, í öllum meginatriðum algerlega óbreytt. Í því frv. er aðeins gert ráð fyrir því, að niðurgreiðslurnar verði vegna íbúðarhúsnæðis, en ekki gagnvart öðru húsnæði. Í grg. með þessu frv., sem hér er nú til umr., segir:

„Svo sem fram kemur í 1. gr. l. nr. 5 frá 1974, er ætlast til. að ráðstafanir þessar verði bundnar við íbúðarhúsnæði, enda leyfa tekjur af gjaldinu ekki, að ráðstafanir nái til fleiri neysluflokka, a.m.k. yrði verðlækkun á þeim þá miklu minni og kæmi ekki að nægu gagni.“

Hvað segir þetta okkur? Í fyrsta lagi er 1. þm. Sunnl. að segja okkur frá því, að ráðh. hafi verið ráðinn í því frá upphafi að taka ekkert mark á því, þó að væri gefið í skyn á sínum tíma, að þetta ætti að ná yfir annað húsnæði, og svo er hér beinlínis tekið fram í frv., sem hér liggur fyrir, og vitnað til l. um gjaldtökuna, nr. 5 frá 1974, að það er ætlast til þess, að ráðstafanir þessar verði bundnar við íbúðarhúsnæði. Það er að sjálfsögðu alveg rétt, þeir eru sjálfum sér samkvæmir með það. En niðurstaðan er sem sagt sú, að þetta eru allt saman hreinar blekkingar, þegar verið er að gefa í skyn, að það mætti láta þetta gilda um annað húsnæði og höfð yrðu samráð við stjórnarandstöðuna, öll loforð svikin um það og allt saman hreinar blekkingar, sennilega visvítandi, frá upphafi.

Ég hefði haldið, að það séu ekki samráð, þó að skoðanir eða ákvarðanir séu kynntar fyrir öðrum, en menn séu ráðnir í því frá upphafi að breyta engu um, hver sem svo viðbrögð viðmælandans séu. Að hafa samráð er auðvitað allt annað. Það er að ráðgast við, samræma sjónarmið, ráða ráðum sameiginlega og bera fram till. með vitund og vilja gagnaðila. Ef maður segist hafa gert eitthvað í samráði við einhvern, verður það auðvitað ekki skilið öðruvísi en svo, að aðilinn sé a.m.k. þegjandi samþykkur. En þessi samráð hafa ekki verið höfð. Sjónarmið sjálfstæðismanna hafa verið kirfilega sniðgengin, og ríkisstj. virðist láta sér það í léttu rúmi liggja, enda þótt hún bregðist öllum sínum drengskaparloforðum. Hún þykist að sjálfsögðu hafa snúið á stjórnarandstöðuna,og hlakkar hæstv. ráðh. yfir þessu og hrósar sér sjálfsagt af þessu afreki. En ríkisstj. hefur unnið mörg slík afrek. Hún hefur að sjálfsögðu svikið sinn málefnasamning. Hún streitist við að stjórna hér ýmist með blíðmælgi eða hótunum, og nú hefur sjálfur forsrh. svarið upp á æru ríkisstj. og svikið síðan það fyrirheit. Ég óska honum til hamingju með það.

En það er kaldhæðnisleg tilviljun, að ríkisstj. sé uppvís að svona blekkingum á þessum degi, sem er 1. apríl. Þetta er sennilega eitthvert það stórbrotnasta aprílgabb, sem maður hefur orðið vitni að, og það er því örlagaríkara, þegar það er haft í huga, að þetta er ekkert saklaust gamanmál. og menn geta ekki sagt á eftir: Allt í gamni, og nú er allt búið. — Þetta er mál. sem snertir alla þjóðina og er náttúrlega þannig vaxið, að það er ekki hægt að sitja þegjandi undir því. Ég held því, að þó að það kannske skoðist aprílgabb af einhverjum, þá reynist þetta aprílgabb ekki mjög létt, þegar það kemur til framkvæmda.

Fyrir utan þetta atriði, sem snertir íbúðarhúsnæði og húsnæði, þ.e.a.s. um það, hvað frv. nær yfir til þess að greiða niður olíu, þá er frv. að sjálfsögðu eitthvert það vitlausasta frv., sem hér hefur verið lagt fram af mörgum vitlausum, og kemur þar margt til. En það sem auðvitað skiptir meginmáli út frá sjónarhóli mínum og sjálfsagt flestra sjálfstæðismanna, er sá háttur, sem hér á að vera á, að úthluta styrkjum til einstaklinga, til fjölda meðlima í hverri fjölskyldu. Eftir því sem manni sýnist, þá á að finna út einhverjar ákveðnar upphæðir, og síðan á að greiða sömu upphæð á hvern íbúa, sem býr við olíuupphitun, eftir því, hversu margir eru í fjölskyldunni. Ég get ekki séð, hvernig það á að framkvæma öðruvísi en að borga — án tillits til allra aðstæðna, án þess að átta sig á, hvort um sé að ræða stóra íbúð eða litla íbúð, hvort það þurfi mikla kyndingu eða litla kyndingu í húsin, hvort það sé timburhús eða steinhús, án tillits til þess, hver efnahagur fólksins er, jafnvel án tillits til þess, hvort fólkið sé heima eða ekki. Við skulum segja, að einhver fjölskyldumeðlimur bregði sér til útlanda um nokkuð langan tíma. Hvernig á að bregðast við? Eða fjölskyldumeðlimir eru á framtali eða framfæri skattframteljenda, en þessir fjölskyldumeðlimir eru kannske búsettir annars staðar. Ef á að fara að eltast við þetta svona, hvers konar kerfi er komið upp, hvers konar skrifstofubákn þarf til? Það er enginn öfundsverður af því að framkvæma þetta. Og svo á þetta að ske allt saman á vegum sveitarfélaganna. Sveitarfélögin eiga að taka þetta að sér að reikna út og borga þetta kerfi til aðila.

Nei, herra forseti. Allt er þetta mál með miklum endemum. Í fyrsta lagi hafa hér verið hafðar í frammi blekkingar gagnvart stjórnarandstöðunni. í öðru lagi var aldrei ætlunin önnur en sú, að þetta frv. næði fram án þess að hafa nokkur samráð við stjórnarandstöðuna eða taka nokkurt mark á því, sem hún legði til málanna. Og í þriðja lagi er allt þetta frv. þannig vaxið, að það er vísasti vegurinn til geysilegrar misnotkunar og býður heim feiknalegu og risavöxnu styrkjakerfi og skrifstofubákni. Þetta er ömurleg mynd, sem dregin er upp af ríkisstj. í þessu máli, og það er mitt mat, að þetta verði óbrotgjarn minnisvarði um hæstv. ríkisstj. og þá, sem ætla sér að styðja þetta mál. hvort sem þeir eiga aðild að ríkisstj. eða ekki. Þetta minnir óneitanlega á skömmtunar- og styrkjakerfið, sem hér var allsráðandi í eina tíð, og kannske verður það sá eini árangur, sem jákvæður getur talist, að hræða fólkið með slíku styrkjakerfi og vara það við að taka slíkt upp aftur. Og þá er það sennilega eina ljósglætan, sem er í þessu máli.