01.04.1974
Neðri deild: 96. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3308 í B-deild Alþingistíðinda. (3000)

3. mál, Þjóðhagsstofnun og Framkvæmdastofnun ríkisins

Frsm. 1. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Í þessu frv. felst það, að ein af þrem deildum Framkvæmdastofnunar ríkisins, hagrannsóknadeildin, verði gerð sjálfstæð stofnun, skuli nefnast Hagrannsóknastofnun og heyra undir forsrh., sem skipi forstjóra hennar.

Þegar Framkvæmdastofnun ríkisins var komið á fót fyrir nokkrum árum, var ákveðið, að hún skyldi starfa í þrem deildum, hagrannsóknadeild, áætlanadeild og lánadeild, sem er í raun og veru lánveitingastofnun. Þá þegar við setningu fyrstu l. um Framkvæmdastofnunina var hagrannsóknadeildinni ákveðin nokkur sérstaða, þ.e.a.s. hún átti að heyra beint undir forsrh., þó að hún væri skipulagslega séð ein af þrem deildum Framkvæmdastofnunar ríkisins. Þessi sérstaða hagrannsóknadeildarinnar var talin eðlileg með hliðsjón af því, að hún væri hrein rannsóknastofnun, sem ætti að vera ríkisstj. og öðrum opinberum aðilum til ráðuneytis, sinna hreinum rannsóknaverkefnum, færa þjóðhagsreikninga, semja þjóðhagsspár og þjóðhagsáætlanir, birta opinberlega yfirlitsskýrslur um þróun þjóðarbúskaparins, annast hagfræðilegar athuganir og skýrslugerð um efnahagsmál fyrir ríkisstj. og alþjóðastofnanir, og síðast, en ekki síst að veita aðilum vinnumarkaðarins upplýsingar um efnahagsmál og annast fyrir þá hagfræðilegar athuganir, eftir því sem um semdist. Með hliðsjón af þessu hreina rannsóknaverkefni hagrannsóknadeildarinnar var talið eðlilegt, að hún væri ekki í tengslum við stjórnmálavaldið og henni haldið eins fjarri stjórnmáladeilum og hugsanlegt væri. Það var talið best tryggt með því, að deildin heyrði beint undir forsrh.

Ég þarf ekki að fjölyrða um það, að hagrannsóknadeildin hefur gegnt hlutverki sínu af hinni mestu prýði og nýtur óskoraðs trausts, bæði ríkisstj. og stjórnarandstöðu, hér á hinu háa Alþ. Sömuleiðis hefur deildin reynst njóta óskoraðs trausts beggja aðila vinnumarkaðarins, þ.e.a.s. samtaka launþega annars vegar og samtaka vinnuveitenda hins vegar. Því ber að fagna, að hagrannsóknadeildinni undir stjórn forstöðumanns hennar, Jóns Sigurðssonar hagfræðings, skuli hafa tekist að gegna vandasömu starfi jafnóumdeilanlega og átt hefur sér stað. Því ber sannarlega að fagna.

En sannleikurinn er sá, að hagrannsóknastörf í þágu hins opinbera, í þágu ríkisstj., Alþingis og aðila vinnumarkaðarins, eru miklu nýrri af nálinni hér á landi en almenningur gerir sér grein fyrir. Skýrslur um efnahagsmál eru yfir höfuð að tala miklu nýrri af nálinni hér á Íslandi en á sér stað í nokkru nálægu landi. Fyrstu skýrslur, sem koma út um efnahagsmál á Íslandi, voru Skýrslur um landshagi, sem byrjuðu að koma út 1856, þannig að hagskýrslugerð er ekki nema rúmlega aldargömul á Íslandi. Fyrsta efnahagsstofnunin, fyrsta stofnunin, sem fékkst við skipulega hagskýrslugerð, var Hagstofa Íslands, sem komið var á fót í upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar, þ.e.a.s. 1914. Eldri er skipuleg hagsýslugerð á Íslandi ekki.

Landsbankinn, sem jafnframt var seðlabanki í marga áratugi, hafði hagfræðinga í þjónustu sinni, en kom þó ekki fyrr en á fyrri hluta 6. áratugsins upp sérstakri hagfræðideild, sem annaðist hagrannsóknir, og það var í fyrsta skipti sem hagrannsóknir voru í raun og veru stundaðar með skipulegum hætti. Síðan var hafin stofnun í viðskiptafræðum við háskólann árið 1941 og á vegum háskólans einnig unnið nokkuð að hagrannsóknum. En íslensk ríkisstj. hafði ekki efnahagsráðunaut sér til trausts og halds fyrr en 1950, að þáv. ríkisstj. réð dr. Benjamín Eiríksson í þjónustu sína, ekki sem fastan starfsmann, heldur til þess að vera efnahagsráðunautur í tiltekinn tíma. En það var hann, eins og kunnugt er, sem undirbjó hið veigamikla frv. þáv. ríkisstj. um breytingu íslenskrar krónu 1950.

Síðan er Framkvæmdabanka Íslands komið á fót á fyrri hluta 6. áratugsins, og verður dr. Benjamín Eiríksson einmitt bankastjóri hans. Þá er komið upp stórri hagdeild í Framkvæmdabankanum. Það var fyrsta stórstofnunin, sem hér var komið á fót til þess að annast hagrannsóknir. En föstu starfi efnahagsráðunautar var ekki komið á fót, fyrr en stjórn Hermanns Jónassonar, sem var við völd 1956–1958, réð Jónas H. Haralz, sem þá var starfsmaður Alþjóðabankans í Washington, til þess að vera efnahagsráðunautur sinn og gegna föstu starfi.

Síðan hefur ýmis háttur verið hafður á þessu hagrannsóknastarfi, sem æ fleiri hafa séð, að hefur verið nauðsynlegt og gert mjög mikið gagn. Það var komið á fót efnahagsráðuneyti af ríkisstj. Ólafs Thors, sem tók við völdum í árslok 1959. Seðlabanki var stofnaður 1961. Hann tók við hagdeild Landsbankans, hún fluttist yfir í Seðlabankann og var stórefld. Og síðan var Efnahagsstofnuninni komið á fót 1961 með því að efnahagsráðuneytið og hagdeild Framkvæmdabankans voru sameinað í Efnahagsstofnuninni, sem naut forustu og stjórnar Jónasar H. Haralz og vann ómetanlegt rannsóknastarf ásamt áætlunarstarfi allan áratuginn 1960–1970. Þó að hagrannsóknir séu þannig jafnnýjar af nálinni, jafnungar hér á Íslandi og raun ber vitni, er óhætt að fullyrða, að öllum er nú ljóst, hversu nauðsynlegar þær eru, hversu nauðsynlegt er fyrir ríkisstj., opinbera aðila og aðila vinnumarkaðarins, að til séu sérfræðingar í landinu, sem geta leyst úr spurningum varðandi efnahagsmál, gefið hlutlausar upplýsingar og verið til ráðstöfunar við lausn tiltekinna efnahagsvandamála.

Það hefur frá upphafi verið skoðun mín, að eðlilegt væri, að rannsóknastörf í efnahagsmálum væru sem sjálfstæðust, alveg eins og skýrslustörf um efnahagsmál hafa frá upphafi verið sjálfstæð, þ.e.a.s. stunduð innan Hagstofu Íslands, sem starfað hefur síðan 1914. Það er æskilegt að blanda ekki saman annars vegar hreinni skýrslusöfnun eins og Hagstofan annast, og hins vegar rannsóknastörfum, eins og Efnahagsstofnunin annaðist og hagrannsóknadeildin í Framkvæmdastofnuninni annast nú, og svo í þriðja lagi áætlunargerð, sem auðvitað hlýtur að mótast mjög verulega af stjórnmálasjónarmiðum hverju sinni. Þegar menn semja áætlanir, hvort sem er almenn þjóðhagsáætlun fyrir þjóðarbúskapinn allan eða áætlanir fyrir einstaka landshluta, eins og t.d. fyrir Norðurland eða Vesturland, eða einstakar atvinnugreinar, eins og við iðnað eða sjávarútveg, þá byggist sú áætlun á því, að sá, sem áætlunina gerir, setur sér stjórnmálamarkmið. Síðan er það verk sérfræðinganna að athuga, hvernig þessu markmiði megi ná, hvaða tækjum þurfi að beita til þess að ná þeim. Hér er auðvitað byggt á niðurstöðum rannsókna, en verkefni eru óskyld. Rannsóknir geta aldrei og mega aldrei bera neinn svip af stjórnmálaátökum eða mismunandi stjórnmálaskoðunum. Áætlanirnar hljóta að bera svip af á'kveðnum stjórnmálasjónarmiðum og ákveðnum stjórnmálaskoðunum. Svipað er að segja um það, þegar fjármagni er ráðstafað úr fjárfestingarlánasjóðum. Til þess að hrinda áætlunum í framkvæmd hlýtur auðvitað stjórn þeirra að vera háð stjórnmálaskoðunum og stjórnmálasjónarmiðum, fyrst markmið áætlunarinnar á að nást. En þetta eru önnur verkefni en þau að safna hlutlausum skýrslum um innflutning og útflutning, um iðnaðarframleiðslu, fólksfjölda, eins og Hagstofan gerir, eða að annast almennar hagrannsóknir, t.d. á því, hver breyting verður á þjóðarframleiðslu eða þjóðartekjum Frá einu ári til annars, hver breyting verður á iðnaðarframleiðslu frá einu ári til annars, eins og hagrannsóknadeild Framkvæmdastofnunarinnar gerir í framhaldi af því starfi, sem áður hafði verið unnið af Efnahagsstofnuninni.

Þess vegna er sú stefna, sem í þessu frv. er mörkuð, að gera hagrannsóknastarfsemina sjálfstæða, að mínu viti og tveggja samnm. minna í fjh.- og viðskn., þeirra Vilhjálms Hjálmarssonar og Þórarins Þórarinssonar, hv. þm., algerlega rétt, og þess vegna mæltum við með því á sínum tíma, þegar n. hélt sinn síðasta sameiginlega fund um málið, að frv. yrði samþ. óbreytt. Tveir samnm. okkar boðuðu hins vegar till. um það, að því skyldi vísað til ríkisstj., þeir hv. þm. Gils Guðmundsson og hv. þm. Karvel Pálmason, en fulltrúar Sjálfstfl. í fjh: og viðskn., þeir Matthías Á. Mathiesen og Ásberg Sigurðsson, boðuðu brtt. við frv. Þegar í ljós kom, hverjar þær brtt, voru, skapaðist nýr meiri hl. í n., þannig að á sérstöku þskj., þskj. 611, eru gerðar þrjár brtt., sem meiri hl. n. stendur að, þ.e.a.s. hv. þm. Matthías Á. Mathiesen, Vilhjálmur Hjálmarsson, Ásberg Sigurðsson og sá, sem hér talar. Það lá áður fyrir yfirlýsing frá okkur Vilhjálmi Hjálmarssyni og Þórarni Þórarinssyni, að við mundum samþykkja frv. óbreytt. Aðild okkar að flutningi þessarar till. þýðir auðvitað, að við mundum fylgja frv. að þessum brtt. samþykktum, og fulltrúar Sjálfstfl. í n. hafa lýst því yfir, að þeir muni fylgja frv., ef þessar brtt. verða samþ. En efni þeirra er, að Hagrannsóknastofnunin skuli ekki aðeins vera ríkisstj, til ráðuneytis, heldur ríkisstj. og Alþ., og enn fremur, að það skuli vera verkefni Hagrannsóknastofnunarinnar að láta alþm. og nefndum Alþ. í té upplýsingar og skýrslur um efnahagsmál. Hér er í raun og veru ekki um breytingu að ræða á starfsemi hagrannsóknadeildarinnar, heldur staðfesting á því, sem átt hefur sér stað í raun og er auðvitað sjálfsagt að láta lögin vera eins og málum er hagað. Þm. hafa talið sig eiga rétt á því að kalla hagrannsóknastjóra og einstaka starfsmenn hagrannsóknadeildarinnar til sín og fá þeim upplýsingar. Það hefur aldrei brugðist, að þeir hafi orðið við þessum óskum. En það er rétt að hafa skýrt í l. sjálfum, að þetta skuli vera svo.

Þá er það og lagt til í þessum till. á þskj. 411, að heppilegra væri að breyta nafni stofnunarinnar. Það hefur vakið athygli, að Hagrannsóknastofnun er fulllíkt heiti annarrar merkrar stofnunar, þ.e. Hafrannsóknastofnunarinnar. Það munar aðeins einum staf í heitinu. Þess vegna hefur sú hugmynd komið upp, að eðlilegra væri að kalla stofnunina Þjóðhagsstofnun. Það er í fullkomnu samræmi við orð, sem hafa unnið sér hefð í málinu, eru góð og gild og lúta að aðalverkefni þessarar stofnunar, hagrannsóknunum, þ.e.a.s. orðin þjóðhagsreikningar, þjóðhagsáætlun og þjóðhagsspá. En þetta eru meginverkefnin: að semja þjóðhagsreikning, að gera þjóðhagsáætlanir fyrir næsta ár, sem grundvallaðar eru á þjóðhagsspá. Sú stofnun, sem semur þjóðhagsreikninga, semur þjóðhagsáætlanir og gerir þjóðhagsspár, er eðlilegt að heiti Þjóðhagsstofnun.

Það, sem er grundvallarhugmyndin í þessu frv., er í raun og veru að fela hagrannsóknir sjálfstæðri stofnun, sem heyri undir ráðh., alveg eins og skýrslugerð um efnahagsmál er nú í höndum sérstakrar stofnunar, sem heyrir undir ráðh., þ.e.a.s. Hagstofunnar. Skipan mála verður þá sú, að það starfa tvær stofnanir hliðstæðar, hin nýja nákvæmlega eins skipulögð og hin gamla Hagstofa,sem er skýrslugerðarstofnun, hin nýja Þjóðhagsstofnun, sem er rannsóknastofnun. Báðar heyra hvor undir sinn ráðh., hin fyrri undir fjmrh., en síðari undir forsrh. Auk þess er til Framkvæmdastofnun ríkisins, sem er áætlanastofnun og lánveitingastofnun. Það er eðlilegt, að hún hafi stjórnmálaverkefnum að sinna. Engum dettur í hug, að venslunarskýrslur eigi nokkuð tengt við stjórnmál, og engum má heldur detta í hug, að samning þjóðhagsreikninga eigi nokkuð skylt við stjórnmál. En jafnaugljóst er hitt, að áætlunargerð er stjórnmál, á að vera stjórnmál og hlýtur að vera stjórnmál. og sú fjáröflun, sem lagt er í, og þær fjárveitingar, sem veittar eru til þess að hrinda áætlununum í framkvæmd, hljóta að vera stjórnmál. Þess vegna er eðlilegt, að Framkvæmdastofnunin með sín áætlunarverkefni og lánveitingaverkefni sé í miklu nánari tengslum við stjórnmálavaldið í landinu heldur en bæði Hagstofan og hin væntanlega Þjóðhagsstofnun.

Ég vona, að hv. þdm, geti fallist á grundvallaratriði þeirra sjónarmiða, sem ég hef nú reynt að lýsa stuttlega, og muni fara hér í hv. d. alveg eins og við nánari athugun málsins fór í fjh.- og viðskn., að það hafa 5 af 7 nm. orðið sammála. Þórarinn Þórarinsson, hv. þm. var erlendis, þegar gengið var frá þessum brtt., annars geri ég ráð fyrir því, að hann hefði verið þeim samþykkur, enda í samræmi víð þá stefnu, sem við mótuðum í 1. minni hl., sem nú er orðinn að meiri hl. Alveg eins og 5 af 7 hv. nm. eru nú orðnir sammála um afgreiðslu málsins í reynd, þá vona ég, að það verði einnig upp á teningnum hér í hv. d., að þetta frv. nái svo breytt fram að ganga, því að ég hef fyllstu sannfæringu fyrir því, að það væri til bóta á íslensku stjórnkerfi og mundi auðvelda Hagrannsóknastofnuninni og hinum dugmikla forstjóra hennar að gegna skyldu sinni með enn meiri prýði en deildin og hann hefur gert fram til þessa.