02.04.1974
Sameinað þing: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3326 í B-deild Alþingistíðinda. (3012)

Umræður utan dagskrár

Benedikt Gröndal:

Herra forseti. Hæstv. forsrh. gerði snotra tilraun til þess að rugla þetta mál með því að blanda því saman, hvort að ríkisstj. hafi almennt traust eða hvort hún hafi traust í þessu máli. Við vitum það öll, að hún mundi sennilega geta varist vantrauststillögu með naumum meiri hl. í Sþ. En við höfum horft upp á það viku eftir viku, að ríkisstj. hefur ekki reynst hafa traust þingsins í hverju stórmálinu á fætur öðru. Spurningin er því um þetta mál, varnarmálið: Hefur stjórnin traust fyrir stefnu sinni í því eða ekki?

Það er rétt hjá forsrh., að það er aðeins eitt fordæmi fyrir því, að ríkisstj, eða stuðningsmenn hennar hafi óskað eftir, að Alþingi léti sérstaklega í ljós traust á henni. Þetta var gert á dögum Hannesar Hafsteins. Það er ekki leiðum að líkjast, og eitt fordæmi er nóg í þeim efnum. Margir aðrir hæstv. ráðh. hafa flutt ályktunartill., í raforkumálum og hinum og þessum málum, þar sem þeir biðja þingið um að undirstrika traust sitt á ákveðinni stefnu, en þetta er ekki gert í utanríkismálum. Þar má ekki gera neitt í neinu formi. Meira að segja till., sem svarti sauður hins upprunalega stjórnarliðs, sem nú er því svo verðmætur, flytur um þessi mál, er tekin út af dagskrá, sjálfsagt vegna óska einhvers. Hún var á dagskrá fyrir viku eða svo í Sþ., og skv. málaröð ætti að vera fyrir löngu komið að henni, en nú er hún horfin út af dagskrá, hvernig sem á því stendur.

Ég vil undirstrika, að þær fullyrðingar, sem fram hafa komið um, að ríkisstj. hafi ekki meiri hl. í þessu máli, hafa fengið vissar undirtektir með yfirlýsingu forsrh. um það, að þetta mál sé fráfararatriði. Bæði þessar yfirlýsingar og yfirlýsing forsrh. um, að þetta mál verði gert að fráfararatriði, hvort sem það er nokkrum vikunum fyrr eða seinna, eru orðnar hluti af nesti því, sem hæstv. utanrrh. fer með til Washington. Það er óhjákvæmilegt, þegar hann situr og leitar samninga við fulltrúa Bandaríkjamanna, að þá muni þeir sífellt velta vöngum yfir því, hvað sé á bak við hæstv. forsrh. og hvernig þingfylgi kunni að vera. Það er ekki gott að láta ráðh. fara til viðtals við annað ríki með málið í þvílíkri óvissu, og síst af öllu ættu menn að gera sér leik að slíku, þegar um viðkvæm og alvarleg utanríkismál er að ræða.