02.04.1974
Sameinað þing: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3339 í B-deild Alþingistíðinda. (3026)
287. mál, fiskiðnskóli í Siglufirði
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Eins og hv. fyrri fyrirspyrjandi tók fram, er þál. frá 30. mars 1973 á þessa leið: „Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að hefja undirbúning að því, að settur verði á stofn fiskiðnskóli í Siglufirði.“
Í 6. gr. l. nr. 55 1971 um fiskvinnsluskóla, segir svo m.a.: „Skólinn skal staðsettur á Suðvesturlandi. Auk þess skal stofnaður skóli í Vestmannaeyjum, sem útskrifi fiskiðnaðarmenn og fiskvinnslumeistara, og skal náminu í skólanum skipt í 3 deildir. Á árunum 1972–1975 skal enn fremur undirbúa stofnun fiskvinnsluskóla 1. og 2. stigs á Suðurnesjum, Akranesi og í stærstu fiskiðnaðarstöðum í öðrum landshlutum. Heimilt skal að fengnu samþykki ráðuneytisins að setja á stofn framhaldsdeildir við skólana utan Reykjavíkur, þegar skilyrði eru fyrir hendi.“
Þegar eftir stofnun Fiskvinnsluskólans hóf menntmrn. viðræður við skólastjóra og skólanefnd skólans um þetta efni. Með bréfi rn. dags. 10. des. s.l., var þessum aðilum falið formlega að undirbúa stofnun fiskvinnsluskóla í samræmi við framangreint lagaákvæði. Skólastjóri Fiskvinnsluskólans, Sigurður Haraldsson verkfræðingur, var jafnframt skipaður formaður undirbúnings- og viðræðunefndar, er fjalla skyldi um þetta efni, og mun n. sérstaklega athuga skilyrði til stofnunar skóla á Akranesi, Ísafirði, Akureyri, Neskaupstað og Siglufirði, auk Vestmannaeyja, en að sjálfsögðu er n. heimilt að kanna möguleika á öðrum stöðum, ef henni list svo. Þegar frumathugun n. er lokið, mun ráðuneytið skrifa bæjarstjórnum þeirra kaupstaða, sem koma til álita, og óska eftir því við bæjarstjórn á hverjum stað, að hún tilnefni til viðræðna og samstarfs við n. tvo eða þrjá fulltrúa af sinni hálfu. Störf undirbúningsnefndar þessarar eru að vísu skammt á veg komin, enda nauðsynlegt, að vel verði til þeirra vandað og hliðsjón höfð af reynslu hins nýstofnaða Fiskvinnsluskóla, sem aðsetur hefur í Hafnarfirði, eins og kunnugt er. Ráðuneytið mun hins vegar leggja áherslu á, að reynt verði að hraða störfum n. eftir föngum.
Að lokum má geta þess, að n., sem vinnur að því á vegum rn. að endurskoða reglugerð um framhaldsdeildir gagnfræðaskólanna, hefur haft til athugunar að stofna til matvælakjörsviðs við framhaldsdeildirnar, er hefði sams konar námsefni í meginatriðum og undirbúningsdeild Fiskvinnsluskólans, og gætu nemendur framhaldsdeildanna þannig stytt nám sitt í fiskvinnsluskóla um eitt ár. Þetta fyrirkomulag ætti að vera sérstaklega hentugt fyrir nemendur á þeim stöðum, þar sem ekki verður unnt að stofna fiskvinnsluskóla að sinni. Náið samband er haft við skólastjóra og skólanefnd Fiskvinnsluskólans um þetta efni.