06.11.1973
Sameinað þing: 13. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 377 í B-deild Alþingistíðinda. (303)
351. mál, geðdeild Landsspítalans
Heilbr.- og trmrh. (Magnús Kjartansson) :
Herra forseti. Áætlun um stærð geðdeildar við Landsspítalann hefur ekki verið breytt á þessu ári. Nokkrar umræður hafa orðið um nauðsynlegan fjölda sjúkrarúma fyrir geðsjúklinga, og byggist það fyrst og fremst á því, að allmismunandi skoðanir ríkja erlendis á þessu máli. Í þeim áætlunum, sem gerðar hafa verið hér á landi, hefur verið reynt að taka mið af reynslu annarra og lagt til grundvallar, að hér komi 2.1 sjúkrarúm fyrir bráða sjúkdóma miðað við 1000 íbúa og er þá gert ráð fyrir, að með séu reiknaðir áfengissjúklingar og eiturlyfjasjúklingar. Þetta er mun lægri tala en aðrir Norðurlandabúar hafa miðað við til þessa, en lítið eitt hærri en Bretar miða við nú. Þess má þó geta, að Bretar hafa um þessar mundir fleiri sjúkrarúm en þetta fyrir bráða geðsjúkdóma.
Hvað viðvíkur áfangaskiptum við byggingu geðdeildar Landsspítalans, var fljótlega ákveðið að byggja deildina í tveimur áföngum. Í fyrri áfanganum skyldi vera helmingur þeirra sjúkrarúma, sem þar eiga að vera til frambúðar, eða 60 sjúkrarúm, og nær allt sameiginlegt húsrými, þ. e. a. s. það húsrými, sem ætlað er til göngudeildarstarfsemi,kennslu,endurhæfingarstarfsemi og til ýmiss konar annarra sameiginlegra nota. Það, að deildin er byggð með þessu móti, gerir að verkum, að áður en síðari áfangi verður byggður, verður til afnota í húsinu allmikið húsrými til sameiginlegra nota fyrir Landsspítalann, og einmitt þessa dagana situr á rökstólum nefnd, sem í eiga sæti aðilar frá byggingarnefnd geðdeildar og læknar frá Landsspítala, þ. á m. formaður læknaráðs, sem eiga að gera tillögur til byggingarstjórnar Landsspítalalóðarinnar um, hvernig nýtingu þess verði best háttað. Í því sambandi er vert að vekja athygli á umr., sem hér urðu í gær um erfiða aðstöðu til kennslu læknanema. Ég hygg, að þarna komi til kennslurými, sem muni nýtast fleirum en þeim, sem þarf að kenna sérstaklega í geðdeildinni.
Um það, hvenær deildin verður tekin í notkun, er að sjálfsögðu ekkert hægt að fullyrða, það veit jafnbyggingavanur maður og Oddur Ólafsson miklu betur en ég. Byggingarframkvæmdir eru ekki hafnar, en öllum undirbúningi vegna byggingar 1. áfanga er lokið, og hafa fullgerðar teikningar verið til athugunar hjá hagsýslustofnun og framkvæmdadeild Innkaupastofnunar ríkisins síðustu vikurnar. Skv. verkáætlun, sem samin var í sept., var gert ráð fyrir, að byggingarframkvæmdir gætu hafist á þessu ári og þá var gert ráð fyrir að ljúka byggingunni á 3 árum eða hún gæti orðið tilbúin til notkunar í árslok 1976. Til þess að þessi framkvæmd geti orðið, þarf að ætla til byggingarinnar um 350 millj. kr. á þessum tíma, og þá þarf jafnframt að gera ráð fyrir því, að þær framkvæmdir, sem áætlaðar voru í ár, færist yfir og þeim ljúki á árinu 1974 jafnframt þeim framkvæmdum, sem þá voru áætlaðar. Það kemur til kasta þingmanna að taka ákvörðun um það, hvort þeir vilji hraða byggingu geðdeildar Landsspítalans, svo að hún geti komist í not í árslok 1976. Til þess þarf að hækka verulega þá fjárveitingu, sem óformuð er til byggingarinnar á árinu 1974 í fjárlagafrv. eru áætlaðar 60 millj. til byggingarinnar, en þyrftu skv. áætlun að vera um 90 millj. á árinu 1974, til þess að hægt verði að standa við fyrrgreinda áætlun. Þetta mál mun m. ö. o. koma til afgreiðslu Alþingis við afgreiðslu fjárlaga.
Um það, hvaða bráðabirgðaráðstafanir hafa verið gerðar til að bæta úr rúmaskorti fyrir geðsjúka, þá er ekki um að ræða neinar beinar bráðabirgðaráðstafanir um þessar mundir. Á hitt hefur verið lögð meiri áhersla, í stað þess að fjölga sjúkrarúmum, að bæta þá aðstöðu, sem fyrirhendi er. Þannig var tekin ákvörðun um að leggja gamla Kleppsspítalann niður sem sjúkrahús á þessu ári, og var sannarlega ekki vanþörf á. Í því skyni hafa verið teknar á leigu tvær hæðir í byggingu Öryrkjabandalagsins við Hátún 10 og auk þess á s. l. ári keypt stórt einbýlishús, sem þessir sjúklingar verða fluttir í. Auk þess hefur aðstaða fyrir göngudeildarþjónustu Kleppsspítalans verið stórlega bætt, svo og aðstaða spítalans til þess að hafa dagsjúklinga. Hins vegar hefur ekki fengist fram á s. l. tveimur árum sú starfsmannaaukning, sem talin hefur verið nægileg til þess að geta nýtt betur húsnæði Kleppsspítalans fyrir geðsjúklinga. Það mun því einnig koma til kasta Alþ. við gerð fjárlaga nú að taka afstöðu til þess, hvort starfsmannaaukning verði leyfð á Kleppsspítala, þannig að hann geti orðið að fullu nýttur sem spítala fyrir bráða geðsjúkdóma, meðan önnur geðdeild fyrir þá geðsjúkdóma er ekki til við ríkisspítalana.
Það er á sviði geðsjúkdóma, eins og annarra sjúkd., að nýting sjúkrarúma fyrir bráða geðsjúkdóma fer mjög eftir því, hvaða möguleikar eru til þess eð færa sjúklinga til til annarra sjúkrahúsa, ef um langvarandi veikindi er að ræða, og því er það svo, að geðhjúkrunarheimili eru ekki síður nauðsynleg fyrir geðsjúklinga en aðra. Reykjavíkurborg hefur um árabil rekið í Arnarholti hjúkrunarheimili fyrir geðsjúklinga, og nú eru fyrirhugaðar viðbyggingar í Arnarholti. Hefur verið gert samkomulag milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um það, hvernig að þessum byggingarmálum er staðið, og er gert ráð fyrir, að byggingarframkvæmdir hefjist þar á þessu ári. Auk þess mun fyrir tilstuðlan Geðverndarfélags Íslands fjölga nokkuð geðsjúkrarúmum á Reykjalundi, og er hvort tveggja þetta að sjálfsögðu liður í því að bæta úr rúmskorti vegna geðsjúkra.
Það, sem þó mun skipta mestu máli á næstunni í sambandi við það að bæta úr rúmaskorti geðsjúkra, eru byggingarframkvæmdir ríkisins á Vífilsstöðum fyrir drykkjusjúklinga. Þar er ekki um bráðabirgðaráðstafanir að ræða, heldur miklu varanlegri úrbætur. Þar mun á næsta ári koma vistunarrými fyrir 23 drykkjusjúklinga, og mun það tvímælalaust létta mjög verulega á Kleppsspítala. Mjög stórt hlutfall sjúklinga á Kleppsspítala, þeirra sem lagðir eru inn vegna bráðra geðsjúkdóma, eru drykkjusjúklingar, og mundu þeir því færast yfir á slíka stofnun sem verið er að reisa á Vífilsstöðum mjög fljótlega, eftir að áfengiseitrunarhættu er lokið.
Að því er varðar bráðabirgðaráðstafanir vegna sjúkrarúmaskorts almennt, þá hefur ráðuneytið haft til athugunar hagkvæmni þess að flytja inn tilbúin hús frá Norðurlöndum til vistunar hjúkrunarsjúklinga. Slík hús verða sennilega flutt inn og greidd af söfnunarfé til Vestmannaeyja og annaðhvort reist hér í Rvík eða Vestmannaeyjum, og ætti þá fljótlega að liggja fyrir reynsla um það, hvort innflutningur slíkra húsa þykir hagkvæmur í þessu skyni. Það kemur því vel til álita, þegar vitað verður betur en nú, hve langan tíma tekur að byggja geðdeild Landsspítalans, að leysa sjúkrarúmaskortinn á þessu sviði með innfluttum bráðabirgðahúsum, þar til varanleg lausn með nýbyggingum er fengin.
Áður en skilist er við þetta mál, má minna á, að óvenjuleg þröng hefur verið á sjúkrastofnunum Reykjavíkursvæðisins á þessu ári vegna Vestmannaeyjagossins. Sjúkrahúsin á þessu svæði urðu að taka við þeim sjúklingum fyrirvaralaust, sem voru á sjúkrahúsum Vestmannaeyja, og hjúkrunarstofnanir og dvalarstofnanir urðu að taka við því fólki, sem var á elliheimill Vestmannaeyja, og fjölmörgu öðru öldruðu og sjúku fólki, sem áður hafði getað hafist við í heimahúsum, en varð við hinar breyttu aðstæður að koma fyrir á stofnunum. Ég tel, að þegar á allt er litið hafi sjúkrastofnanir á Reykjavíkursvæðinu staðist þessa raun með mikilli prýði. Hinu má þó ekki gleyma, að á þessum tíma hafa verið mikil vandkvæði á því að halda stofnunum í fullri nýtingu vegna starfsfólksskorts, einkum hjúkrunarkvennaskorts, og nýjar deildir, sem staðið hafa tilbúnar lengi, hafa ekki verið teknar í notkun, svo sem deildarhluti á Landsspítalanum og heil deild á Grensásdeild Borgarspítala, alls um 45 sjúkrarúm. Væri starfsfólk fyrir hendi, væri m. ö. o. hægt að bæta við 45 sjúkrarúmum á Reykjavíkursvæðinu í dag, auk þeirra 15–20 sjúkrarúma, sem verið er að fjölga um á Reykjalundi þessa dagana. Það er eins og fyrr fyrst og fremst starfsfólksskortur, þ. e. a. s. skortur á sérmenntuðu hjúkrunarliði, sem stendur í vegi fyrir því, að því er virðist, að við getum fullnýtt sjúkrastofnanir okkar. Á þessu ári hafa einnig komist í not 45 rúm á vinnu- og dvalarheimili Sjálfsbjargar að Hátúni 12. Mjög margt af því fólki, sem þangað flyst, hefur áður dvalist á öðrum hjúkrunarstofnunum og sjúkrahúsum, svo að stækkun sjúkrahúsakerfisins á þessu ári hefur orðið veruleg, enda þótt sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum hafi verið lagt niður.