02.04.1974
Sameinað þing: 72. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3341 í B-deild Alþingistíðinda. (3030)
422. mál, dreifing sjónvarps
Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka hæstv. menntmrh. fyrir svörin, en jafnframt harma ég það, að enn virðist ekki vera brotinn ísinn í þessu máli í þá átt að afla tekjustofna til þess að ljúka dreifingu sjónvarps um landið. Virðist allt sitja þar í sama fari, og leyfi ég mér að lýsa megnri óánægju yfir því. Mér finnst það ekki vera sæmandi, eftir að sú tekjulind, sem notuð var til að dreifa sjónvarpi til landsmanna, er þornuð, sem menn gátu séð fyrir að mundi þorna, að við það sé setið, þegar fjöldinn er búinn að fá sjónvarpið, og ekkert sé gert meira. Þetta er mannréttindamál. Þó að menn séu fáir og dreifðir, eiga þeir rétt á þessu. Mér finnst það ekki sæmandi þjóð, sem kennir sig við velferð og jafnrétti og vill, að allir þegnarnir búi við sem jafnasta aðstöðu, og alls ekki heldur sæmandi fyrir ríkisstjórn, sem vill vinna að jafnvægi í byggð landsins og jöfnuði á milli þegnanna, að láta þetta mál liggja þannig og koðna niður, það sé ekkert í því gert. Það þarf að finna leiðir til að leysa þetta. Þetta er ekki stórkostlegt mál, þetta er ekkert stórt efnahagsmál, en það er menningarmál. Og það mætti spyrja: Vilja ekki notendur, þeir sem búnir eru að fá sjónvarpið, leggja eitthvað á sig, til þess að þetta jafnréttismál nái fram að ganga? Það mætti líka spyrja: Væri ekki hægt að haga rekstri sjónvarps og útvarps á þann máta, að það væri hægt að leggja áherslu á þetta átak, sem er ekki stórvægilegt? Mætti t.d. ekki stytta dagskrána eða spara í henni, jafnvel þó að væri slegið af kröfum um gæði, vegna þess að þetta væri gert í ákveðnum tilgangi? Ég tel, að allt slíkt væri verjandi, að hækka afnotagjald eða spara, en það vera ósæmandi og óverjandi að láta við svo búið standa.