02.04.1974
Neðri deild: 98. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3403 í B-deild Alþingistíðinda. (3050)
9. mál, grunnskóli
Menntmrh. (Magnús T. Ólafsson):
Herra forseti. Ég hef ekki hugsað mér að tala hér langt mál. en vil þó ekki láta hjá líða að fara nokkrum orðum um starf þeirrar n., sem um málið hefur fjallað á löngum og ströngum fundum, eins og fram hefur komið, og um örfá atriði í brtt., sem fyrir liggja.
Það er mitt álit, að menntmn. hv. d. hafi í meðförum þessa umfangsmikla máls unnið gott og mikið starf. Hún hefur í starfi sínu tekið mið að miklum meiri hl. af því höfuðsjónarmiði, að þau atriði, sem mest eru höfð á orði í umr. um grunnskólafrv., þ.e.a.s. lenging skyldunáms og skólatíma, eru ekki markmið í sjálfu sér. Þetta eru leiðir að því marki að skila hverjum árgangi uppvaxandi Íslendinga úr undirbúningsnámi fullbúnum til framhaldsnáms. Þessu fylgir, að gera verður skólann þannig úr garði, að hann nýtist nemendum til þessa þroska.
Hin margvíslegu og margbreyttu ákvæði um skólastarfið og námsefnið, sem gera þetta frv. jafnviðamikið og raun ber vitni, eru til þess sett að búa svo um hnútana, að skólakerfið verði það þjált og fært um að uppfylla mismunandi þarfir og þroska mismunandi hæfileika, að hverjum og einum uppvaxandi Íslendingi, sem hæfur er til náms í almennum skóla, sé þaðan skilað undir það búnum að hefja síðar meir, fyrr eða síðar á lífsleiðinni, framhaldsnám að einhverju marki. Til þess er þetta mál undirbúið, að enginn þurfi að verða utanveltu á unglingsárum frá almennri menntun og frá möguleikunum á framhaldsmenntun, vegna þess að skólinn hafi ekki það að bjóða, sem honum hæfi. Markmið og rammi þessa frv. er í rauninni óbreytt eins og frá er gengið af meiri hl. hv. menntmn. Í brtt. hennar er að því miðað að draga, eftir því sem nm. telja að fært sé, úr ýmsum hliðarráðstöfunum og talið, að unnt sé að ná settu marki með nokkru viðaminna kerfi en frv. gerir ráð fyrir, eins og það var lagt fram. Það er að sjálfsögðu ákvörðun Alþ., hve langt á að ganga í því að búa traustlega um þá hnúta, sem hér er verið að ríða. Ég get lýst því yfir, að ég er fyllilega samþykkur flestum brtt., sem menntmn. flytur sameiginlega, og tel þær til bóta, en tel rétt að gera grein fyrir þeim aths., sem ég hef við einstöku brtt.
Þá er það fyrst brtt. við 11. gr. um skipan fræðsluráðs. Þar ber nú svo nýstárlega við, að ég hlýt að lýsa samþykki við þá afstöðu, sem hv. 9. landsk. þm. gerði að sinni í ræðu hér áðan. Ég tel, að það geti orðið nokkuð varhugaverð blanda, að hluti fræðsluráðs skuli kjörinn af landshlutasamtökum, af mönnum, sem kjörnir eru til sinna starfa af öllum kosningarbærum mönnum, en tveir kosnir af starfshópum, annar af skólastjórum, hinn af kennarasamtökum. Ef sú er ætlunin að tryggja, að skólamenn sitji í fræðsluráðunum, tel ég þennan hátt á kosningunni óþarfan, því að reynslan hefur nógsamlega sannað í þeim bæjarfélögum, þar sem fræðsluráð hafa verið, að undantekningarlaust velst mikill, ef ekki meiri hluti þeirra úr hópi skólamanna, svo að fyrir því er séð, að þeir komi jafnaðarlega við sögu. En ég tel það affarasælla, að þeir eins og aðrir í fræðsluráðunum hafi sem bakhjarl landshlutasamtökin í heild, sem hafa umboð frá kjósendahópnum öllum, frekar en frá sínum starfshóp út af fyrir sig.
Þá vil ég vekja athygli á brtt. við 17. gr., að embættisgengi skólafulltrúa skuli ákveðið, að það er eðlilegast, að fræðsluráðin ákveði, hver skilyrði þeir skuli uppfylla til embættisgengis, vegna þess að það eru fræðsluráðin, sem eiga að velja þá.
Um brtt. við 34. gr. vil ég taka það fram, að ég er fyllilega sammála því breytta orðavali, sem þar er, að nefna skólabryta í stað skólaráðskonu. Skólabryti er gamall og virðulegur titill frá tímum latínuskólanna á biskupsstólunum. En það vil ég að komi skýrt fram af minni hálfu í þessum umr., að með þessu starfsheiti er ekki ætlast til, að þau, sem þessum störfum gegna, skuli þurfa að hafa þau brytaréttindi, sem krafist er til að verða aðili að félagi bryta, sem starfa á millilandaskipum og farþegaskipum. Þessu tvennu má ekki rugla saman, þótt heitið sé eitt.
Þá vil ég gera lítillega að umtalsefni brtt. við 42. gr. og næstu greinar á eftir. Þar er um að ræða að mínum dómi veigamestu brtt., sem gerðar eru og fluttar af menntmn. sem heild. Ég fyrir mitt leyti er efins um, að . 71/2 mánaðar skólatími nægi í 8. og 9. bekk til að tileinka nemendum sem heild það námsefni, sem þar verður um að ræða. Þessir bekkir verða hinir þýðingarmestu í grunnskólanum. Þar koma valgreinarnar í stórauknum mæli til sögunnar, og þar ræðst það, hvort nemendur tileinka sér þá þjálfun, þá leikni og þá kunnáttu, sem þarf til þess, að þeir verði færir um að ganga í framhaldsnám rakleitt úr grunnskólanum. En í mínum huga er enginn vafi á því, að ef svo skyldi fara, að reynslan sýni, að þessi stutti skólatími sé ófullnægjandi, þá verður undanþágan ekki nýtt til frambúðar, því að ef skerðing á árlegum skólatíma verður sjáanlega til þess, að úr skóla, sem við hana býr, koma nemendur lakar á vegi staddir, svo að orð sé á gerandi, en úr þeim skólum, sem hafa fullan kennslutíma á ári, þá mun forráðamönnum skóla ekki verða stætt á því. Foreldrar munu sjá um það, að vegna hálfs mánaðar eða þriggja vikna styttingar kennslutíma sé ekki til þess stofnað, að börn þeirra verði lakar á vegi stödd eftir skyldunámið en þorri jafnaldra þeirra í landinu.
Varðandi brtt. við 45. gr. er að mínum dómi rétt að komi fram við þessa umr., að þar sem um námstímann er rætt í mínútum í einmitt þessum efstu bekkjum, einkum 8. og 9. bekk, er ekki með öllu rétt að ræða um þann tíma, sem þar er gert ráð fyrir í frv. eins og það er sem strangar kennslustundir á skólabekk. Í þessum bekkjum kemur til meira og minna frjálst starf í sambandi við valgreinar, og sem betur fer eru ekki unglingar öðrum aldursflokkum fremur sneyddir því að geta orðið gagnteknir af verkefnum sínum, af skapandi starfi og vilja af frjálsum vilja verja til þeirra verulegum tíma, og því getur verið varhugavert að girða fyrir slíkt frjálst starf með allt of ströngum hámarksákvæðum. En ég geri ráð fyrir, að menntmn. hafi skilið þetta svo, að hér væri um að ræða setu í kennslustundum, þar sem ein tekur við af annarri, sín greinin í hverri. Það var ekki ætlun þeirra, sem frv. sömdu, að allur sá tími, sem í frv. var ráðgerður, færi til slíks skólastarfs, sem vissulega fylgir mikil áreynsla, heldur var lengd kennslutímans á viku við það miðuð, að í þessum bekkjum kemur til verulegt frjálst starf ásamt hinum skipulögðu kennslustundum.
Þetta eru, að ég held, þær fáu aths., sem ég vildi gera við brtt., sem menntmn, stendur öll að.
Um brtt. hv. 9. landsk. þm. get ég verið fáorður, nema lýsi aðeins enn einu sinni andstöðu við þá megin brtt. af hans hálfu að hverfa frá skólaskyldunni, sem ráðgerð er í frv.
Varðandi till. hv. 4. landsk. þm. vil ég geta þess sérstaklega, að ég tel, að það geti verið affarasælt að hafa ráðningu fræðslustjóra tímabundna. Ég hygg, að það verði nokkur vandi á höndum að ráða í þau störf í upphafi, þegar svo margir þurfa að koma til starfa í ný embætti, og gott sé, að þar sé ekki æviráðning viðhöfð eins og reyndar í fjölmörgum öðrum störfum í ríkiskerfinu.