03.04.1974
Efri deild: 97. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3424 í B-deild Alþingistíðinda. (3064)

3. mál, Þjóðhagsstofnun og Framkvæmdastofnun ríkisins

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Ég ætla mér ekki þá dul að fara að svara fyrir hæstv. forsrh. í þessu efni, en ég tel sjónarmið hans heilbrigt og byggt á raunsæi og með það í huga, að allir landsmenn þurfa fulla atvinnu, hvar sem þeir eru staddir á landinu. Ég vildi minna hv. síðasta ræðumann á það eða benda honum á að athuga það, hve margir bátar frá Vestfjörðum hafa verið keyptir á Reykjanessvæðið, svo að þeir gætu endurnýjað sinn skipakost þar með jafnmiklum myndarbrag og átt hefur sér stað með aðstoð byggðasjóðs. Slík þróun hefði aldrei átt sér stað, ef ekki hefðu verið á þessu svæði menn, sem teldu sig enn geta rekið þessa tegund fiskiskipa á Íslandi og leyst þess vegna vandamál þessa héraðs. Það er alveg rökrétt og eðlilegt sjónarmið hjá hæstv. forsrh., að í einstaka tilfellum sé rétt, eins og raunar sjóðsstjórnin hefur séð sig knúna til, að lána í atvinnutæki á þessu svæði. Það er alveg rökrétt. Og hæstv. forsrh. Bjarni heitinn Benediktsson viðurkenndi á sínum tíma, að það væri engin lausn á atvinnuleysi, sem ríkti þá, að færa atvinnutæki úr einu héraði yfir í annað og skilja eftir auðn á því sviði. Þetta sjónarmið á fullan rétt á sér enn í dag. Það túlkar hæstv. forsrh., og ég stend með honum í því efni. Auðvitað er megintilgangurinn sá hjá Byggðasjóði að hjálpa úti um landsbyggðina, það deilir enginn á það, en að hafa regluna 100% og meta ekki aðstæður með skynsemi tel ég líka algera fjarstæðu.

Við viljum aðeins minna á það, þeir þm. sem eru fyrir þetta svæði, að þau atvik geta verið uppi, að rétt sé, að Byggðasjóður veiti lán í atvinnutæki. Þrátt fyrir alla aðra lánasjóði, sem til eru í landinu, eru atvik einu sinni þannig, bæði hjá Fiskiveiðasjóði o.fl., að þeir lána ekki út á gamla báta. En bæði frá Austfjörðum og Vestfjörðum hafa komið margir bátar undanfarin ár á Suðurnesin, og ég vænti þess, að þeir séu bæði þeim byggðarlögum og þjóðinni í heild til blessunar. Þetta hefur átt sér stað í einstökum tilfellum, en mjög fáum, með aðstoð Byggðasjóðs, og það tel ég ekki illa farið — alls ekki. En ég er á móti jafneinhliða auglýsingu og stjórnin hefur birt. Það verður að meta atvik eins og aðstæður eru, enda hefur stjórnin sjálf séð sig knúða til þess að fara ekki eftir auglýsingunni. En við erum ekkert á móti því. Hinir þm. þessa svæðis, Reykjavíkurþingmenn, eru aldrei spurðir ráða í einu eða neinu um þessi efni. Það er eins og atvinnulífið í Reykjavík geti gengið af sjálfu sér í þessu tilfelli. Það er þó öðru nær. Þau atvik geta vel átt sér stað og hafa átt sér stað, að hingað hafa verið keyptir bátar. Reykjavíkurborg hefur meira að segja hjálpað til þess og um leið Byggðasjóður, varðandi þá aðallega að kaupa í staðinn ný skip, að skip flytjist á milli landssvæða til að halda uppi atvinnulífi og til að bæta atvinnuástand vítt og breitt. En þm. Reykjavíkur hafa ekki haft uppi mikil orð í þessu efni, en við hinir, þm. Reykn , heldur nöldrað lítilsháttar. Ég held, að það sé um of að ætla okkur að þegja 100%, eins og mér skildist á síðasta ræðumanni, að við mættum alls ekki gagnrýna auglýsinguna sem slíka. Framkvæmdin hefur verið önnur en auglýsingin er.