04.04.1974
Efri deild: 98. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3471 í B-deild Alþingistíðinda. (3100)
300. mál, Ríkismat sjávarafurða
Sjútvrh. (Lúðvík Jósepsson):
Herra forseti. Með sérstöku bréfi, sem barst til sjútvrn. 5. okt. á s.l. hausti frá fjmrn. eða frá fjárlaga- og hagsýslustofnun þess rn., var rn. skrifað um sérstakar till., sem þessi stofnun fjmrn. og fjvn. vildu gera í sambandi við skipulag Fiskmats ríkisins og Síldarmats ríkisins.
Eins og fram kemur í grg. þessa frv., kom fram í þessu bréfi till., sem hljóðaði þannig: „Undirnefnd fjvn., sjútvn. og fjmrn., fjárlaga- og hagsýslustofnun hafa að undanförnu rætt skipulag og starfsemi Fiskmats ríkisins og Síldarmats ríkisins. Er niðurstaðan af þessum umr. sú, að brýn þörf sé á og tímabært að taka starfsemi þessara tveggja stofnana til endurskoðunar og breytinga. Er einkum tvennt, sem telja verður að endurskoðunin eigi að beinast að:
1) Innra skipulagi og starfsemi Fiskmatsins og
2) niðurlagningu Síldarmatsins og samruna þess við Fiskmatið.“
Í sjútvrn. hefur þetta mál verið til athugunar, bæði síðan þessi skrif komu til og áður, og hefur verið skoðun manna í rn., að rétt væri að stefna að því að leggja niður Síldarmat ríkisins sem sjálfstæða stofnun og sameina það Fiskmati ríkisins og gera þá gjarnan um leið almennar skipulagsbreytingar á fiskmatsmálunum.
Í framhaldi af þessu skipaði sjútvrn., 29. nóv. s.l., sérstaka þriggja manna n., sem var falið að takast á hendur þessa athugun, eða eins og segir í grg. frv., að n. átti:
„að taka til heildarathugunar skipulag og starfsemi Fiskmats ríkisins og semja frv. til l. um matsstofnun sjávarútvegsins, þar sem gengið skyldi út frá því, að Síldarmat ríkisins yrði lagt niður og starfsemi þess og starfsemi Fiskmats ríkisins felld inn í hina nýju stofnun.“
Í þessa n., sem skipuð var skv. ákvörðun rn., voru valdir 3 menn: Þórður Ásgeirsson skrifstofustjóri, í sjútvrn. var skipaður form. þessarar n. Í n. voru einnig Örn Marinósson deildarstjóri í fjmrn., fjárhags- og hagsýslustofnuninni og Jóhann Guðmundsson efnaverkfræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins. Þessum þrem mönnum var sem sagt falið að taka til endurskoðunar gildandi lög og reglur varðandi sérstaklega þessar tvær stofnanir, Fiskmat ríkisins og Síldarmat ríkisins, með það fyrir augum að vinna að því að sameina þessar stofnanir í einni stofnun, og þá yrði lagður grundvöllur einnig að almennri endurskipulagningu fiskmatsmálanna.
Það frv., sem hér liggur fyrir, er það, sem þessi n. samdi um málið. Það eru sem sagt þær till., sem hún gerir um væntanlegt skipulag þessara mála, sem tæki við af því, sem verið hefur. Má segja, að meginatriðin í þeim till., sem hér liggja fyrir, eru í rauninni tvö. Það er í fyrsta lagi að vinna að því að sameina þessar tvær matsstofnanir í eina og síðan að skapa nokkurn frekari grundvöll, til þess að hægt sé að vinna að umskipulagningu matsstarfanna almennt, þannig að allt það starfslið, sem vinnur að slíkum málum, geti nýst á sem allra bestan hátt.
Það kemur fram í grg. frv., að n. hafði haft samband við flesta þá aðila, sem hægt er með auðveldum hætti að leita til og þessi mál varða verulega, eða samtök þeirra aðila, og n. segir síðan í grg. um þetta á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:
„Er óhætt að fullyrða, að n. telur menn nánast á einu máli um, að sameina beri starfsemi Fiskmats ríkisins og Síldarmats ríkisins í einni stofnun. N. telur það einnig vera í samræmi við skoðun meiri hl. þeirra, sem hún ræddi við, að bæði Síldarmatið og Fiskmatið verði lögð niður og starfsemi þessara stofnana færð í nýja stofnun, sem tæki til allra sjávarafurða.“
Það er einmitt þetta, sem hér er lagt til. En það er eins og gjarnan, þegar fengist er við mál af þessari gerð, að þá eru samt ekki allir á einu máli. Sumum þykir það nokkuð gott, sem verið hefur, vilja ógjarnan hverfa frá því og óttast það, sem koma skal, aðrir hins vegar leita stíft eftir breytingum. Það hefur komið fram, að starfsmenn Fiskmats ríkisins hafa sent mér alllanga grg. eða aths. við frv. og þó einkum við grg. þá, sem fylgdi með frv. Það kemur þar greinilega í ljós, að þessir aðilar eru ekki á eitt sáttir með n., og tel ég rétt, að sú n., sem fær málið hér til athugunar í hv. d., kynni sér ítarlega skoðanir þessara manna, sem vissulega þekkja hér vel til, og kanni til hlítar hverra af þeirra aths. beri að taka tillit til. En frá mínu sjónarmiði er þetta mál það einfalt í sjálfu sér, að ég tel. að eins og skipulagsmálum þessa starfsþáttar hefur verið varið sé rétt að stefna að því að færa þetta allt í eina stofnun og það sé brýn þörf á því að umskipuleggja allmikið þessi störf, nýta þá starfsmenn á annan veg en hingað til hefur verið gert, sem vinna að þessum málum á vegum ríkisins að meira eða minna leyti. Sú mikla sundurgreining, sem hefur verið hjá okkur um langan tíma á matsmönnum í sambandi við hinar einstöku framleiðslugreinar, er vægast sagt vafasöm, og þegar eru komnir upp miklir annmarkar við að reka kerfið á óbreyttum grundvelli.
Frá minni hálfu er ekki um það að ræða á neinn hátt að slá ryki á þá vinnu, sem unnin hefur verið af þeim matsstofnunum, sem við höfum haft til þessa, og þar hefur að sjálfsögðu borið langmest á starfi Fiskmats ríkisins. Ég tel, að þegar á heildina er litið, hafi þar verið unnið mjög þýðingarmikið verk og gagnlegt verk fyrir okkur. En breytingar í framleiðslukerfinu hafa orðið mjög miklar á undanförnum árum, og þær kalla á skipulagsbreytingar, ef vel á að standa að þessum málum. Það er því skoðun mín, að vinna beri að því að koma þessum málum sem mest í eina stofnun, sem síðan fái aðstöðu til þess að hreyfa allverulega til í þessu rekstrarformi, eins og það hefur verið, og reyna að koma þar hvoru tveggja: sparnaði, eftir því sem tök eru á, betri kjörum fyrir þá, sem við verkin vinna, en nú er í mörgum greinum og enn þá sterkara almennu eftirliti með framleiðslu afurða okkar.
Lagt er til í þessu frv., að sá háttur verði á hafður, að þessar tvær stofnanir, Fiskmat ríkisins og Síldarmat ríkisins, verði lagðar niður og ein ný byggð upp. Þó er hér á eðlilegan hátt fyrst og fremst um það að ræða, að þar sem meginstarfsemin hefur verið á vegum Fiskmats ríkisins, þá verði sú starfsemi og það skipulag, sem þar hefur verið, lagt fyrst og fremst til grundvallar. Störf Síldarmatsins hafa eðlilega verið mjög lítil nú síðustu árin, og horfir enn þá þannig, að þar verði um tiltölulega litið starf að ræða. Það ber þó að hafa það í huga, að þar var um þýðingarmikið starf að ræða, sem byggðist á gamalli reynslu og gamalli þjálfun og þekkingu þeirra, sem við þau verk hafa unnið. Þarf að gæta þess vel í sambandi við endurskipulagningu þessara mála, að við stöndum ekki uppi skyndilega með illa undirbúna eftirlitsmenn í þeirri grein, þegar á þeim þarf fyrst og fremst að halda. En ég sé enga ástæðu til þess að bíða með þau mál öll í því formi, sem þau eru nú, til þess eins að halda þar við gömlu nafni á Síldarmati ríkisins, sem í rauninni náði ekki nema til saltsíldarmatsins, því að önnur matsstörf varðandi síld og síldarframleiðslu voru komin til annarra.
Það hefur verið gengið út frá því í sambandi við samningu þessa frv., að forstöðumaður hinnar nýju matsstofnunar sé sérstaklega menntaður til að taka að sér þessi störf. Þetta er atriði, sem lengi hafa verið gerðar kröfur um og mikið rætt um. Ég tel það fyrir mitt leyti vissulega mjög mikilvægt, að forstöðumaður slíkrar stofnunar hafi almennt sérstaka menntun til þess að styðjast við varðandi þessi þýðingarmiklu störf. En þó verður einnig að hafa það í huga, að mikil reynsla er líka dýrmætur skóli, sem veitir mikla þekkingu varðandi þessi efni, og því tel ég líka rétt að hafa þann hátt á, sem gert er í 6. gr. frv., sem um þetta fjallar, að þar er miðað við það, að tiltekin menntun, sem talin er að sé mjög æskileg fyrir forstöðumann slíkrar stofnunar, skuli almennt veita forgangsrétt til starfsins, en binda sig ekki algerlega við það, heldur megi einnig taka tillit til annars.
Ég sé ekki ástæðu til þess að flytja hér langt mál í framsögu um þetta frv. Það fer héðan til n. til athugunar, og er sjálfsagt að taka þar við ábendingum um það, sem hefur mætti fara. Ég legg áherslu á, að n. ræði ýtarlega við þá, sem mest hafa haft með þessi mál að gera á undanförnum árum, og taki tillit til eðlilegra ábendinga þeirra. En það, sem hér er fyrst og fremst stefnt að og ég legg áherslu á að geti náðst með þessari lagasetningu, er þetta: að spara í rekstri, eftir því sem tök eru á, og að hægt sé með góðu móti að vinna að endurskipulagningu þessara mála, þannig að starfskraftar nýtist betur en nú er, og að hægt sé einnig að búa betur að þeim, sem við þessi mál starfa, en nú er í ýmsum greinum, þ.e. sem sagt, að það skapist fullt svigrúm til endurskipulagningar í sambandi við matsstörf og eftirlit með þessum þýðingarmiklu framleiðsluvörum okkar, sem svo mikið er í húfi, að vel takist til með framleiðslu á varðandi sölu okkar á erlendum mörkuðum.
Herra forseti. Ég legg síðan til, að frv. þessu verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. sjútvn. til fyrirgreiðslu.