04.04.1974
Efri deild: 98. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3477 í B-deild Alþingistíðinda. (3102)

300. mál, Ríkismat sjávarafurða

Jón Árm. Héðinsson:

Herra forseti. Ég ætla að fara hér nokkrum orðum um þetta frv. með hliðsjón af því, sem síðasti ræðumaður hefur sagt. Ég gæti stytt mál mitt allnokkuð.

Hér er vissulega hreyft máli, sem menn hefðu gengið út frá fyrir fram, að hefði fengið miklu vandaðri undirbúning, en raun ber vitni um, og til þess væri hvorki sparaður tími né fyrirhöfn að hafa samband við sem flesta í því efni og hafa um það staðfestar skriflegar heimildir, en ekki næstum því getsakir, eins og mér virðist koma fram í grg. E.t.v. liggur eitthvað skriflegt uppi í rn., en ég dreg það þó í efa, miðað við þær vissu staðreyndir, sem ég veit um í undirbúningi málsins, þar sem sagt er, að fundir hafi verið með vissum forsvarsmönnum stofnana. Ég kynnti mér það hjá einni, það má kalla það fund, en ekki meira. Get ég vitnað í það samtal, ef á þarf að halda í n., því að ég hef verið í þessari n., sem sér um þetta mál. En það var varla meira en nafnið tómt. Og ef annað hefur verið eftir því, þá er undirbúningurinn ekki nægilega góður.

Hvað sem því líður, er hér um svo mikilvægt mál að ræða, að það mun taka langan tíma í n. að fara í gegnum það og fá um það gott samkomulag, því að ég held, að við séum sammála hæstv. ráðh., að við þurfum að skapa hér, eins og hann orðaði það, „fullt svigrúm til endurskipulags“, en það verður ekki gert með slælegum vinnubrögðum. Ég er ekki að segja, að nm., sem ég þekki alla, séu ekki starfinu vaxnir, öðru nær, heldur er þetta það viðamikið mál, að til þess verður að gefa sér nægilegan tíma. Málið er það viðamikið, að það þýðir ekkert að kasta höndunum til þess, það er sama hver á í hlut í því efni. Ég vil vitna í 3. gr. gildandi laga. Þar segir svo:

„Sjútvrh, skal að fengnu áliti Fiskmats ríkisins, Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins og helstu samtaka útvegsmanna, sjómanna og eigenda fiskvinnslustöðva setja reglugerðir og erindisbréf um framkvæmd laga þessara“.

Það er sem sagt þegar í gildandi l. ákvæði um viðtækt samstarf þessara aðila, þ.e.a.s. þeirra, er afla fisksins, eiga tækin sem afla, taka á móti, vinna og handfjalla fiskinn frá fyrstu til síðustu handar, að víðtækt samstarf skuli vera á milli þessara aðila. Þetta er sá grunntónn, sem heilbrigt og gott fiskmat hlýtur að byggjast á að mínu mati. Ef það er ekki fyrir bendi og ef við förum það hratt, eins og einu sinni var sagt um svertingja, að sálin gleymist, þá er illa farið. Þá er eitthvað annað á bak við. Við verðum því að fara gætilega að í þessu efni,

Matsmaður kemur á stöð og metur framleiðslu í 1., 2. og 3. flokk. Hans niðurstaða ákvarðar mjög mikil verðmæti. Það getur oltið á hundruðum þúsunda, og það er auðvitað ekkert gaman fyrir manninn, sem fjallar um þetta að vera ekki viss í sinni sök. Þess vegna vil ég taka mjög undir orð síðasta ræðumanns, að nauðsynlegt er að tryggja þessum mönnum þá mestu mennt un, sem völ er á, og möguleika á að framkvæma starf sitt sem best.

Ég vil aðeins bæta því við, að við í n., sem fjöllum um lánasjóðinn, erum á því að taka inn til þessara manna, er halda áfram við Fiskvinnsluskólann, eðlilegt námslán, af því að það var drepið á það í ræðu hér áðan.

Ég veit ekki, hvort ég á að fara beint í hverja gr. fyrir sig í frv., það verður auðvitað gert í n.

Í 4. gr. er talað um að skipa sérstaka samstarfsnefnd. Ég hefði álitið með hliðsjón af gildandi 3. gr. l., að útvegsmönnum ætti ekki að gleyma í því efni. En hv. n., sem undirbjó frv., hefur ekki talið þá þess virði, það kemur alls ekki fram a. m.k., því að gr. er ótvíræð, þar er útvegsmönnum hreinlega gleymt og þá sjómönnum um leið. Það þarf ekkert að ræða við þá í slíkri samræmingarnefnd. Tel ég það alveg óverjandi, það skapar bara illindi og úlfúð. Ef sjómennirnir um borð hafa ekki traust til matsins og það raunar líka til þeirra, þá er upphafið illt og endirinn eftir því.

Í 5. gr. segir: „Ríkismat sjávarafurða skiptist í eftirtaldar deildir: Frysti- og hreinlætisdeild,“ — því ekki að segja hreinlætisdeild nr. eitt? Því er ekki sérákvæði um hana, vegna þess að hún er orðin undirstaðan undir því í dag, að við tryggjum góða vöru frá upphafi til enda? Og raunverulega er mat á fiski byggt á því, að menn fari vel með fiskinn og hreinlætis sé gætt allt frá fyrstu stund til síðustu stundar. Sú rangfærsla, sem kemur fram á bls. 5 í grg., að allt sé frá rótum „Tillögunefndar um hollustuhætti í fiskiðnaði“ runnið, er næsta furðuleg. N. hefur ekki lagt það á sig að kynna sér starfsemi Fiskmats ríkisins nægilega. Ég veit ekki betur en hreinlætis- og búnaðardeild hjá Fiskmati ríkisins hafi nú þegar starfað á þriðja ár eða eitthvað lengur, a.m.k. fyrsti vísir að þeirri deild, svo að ég skil ekki svona vinnubrögð, hreint út sagt.

Í gildandi l. stendur, ef ég man það rétt, í 4. gr.: „Ráðh. getur fjölgað deildum þegar þörf krefur.“ Þetta var þegar gert, eins og ég sagði, fyrir nær 3 árum, og hefur þessi deild þegar haft mikilvæg áhrif út um allt land til hins betra og unnið mikið starf. Og ég veit ekki annað en menn hafi verið ánægðir með að fá þessa menn í heimsókn. Þeir hafa komið kurteislega fram og leyst starf sitt vel af hendi. Sjálfsagt hafa þeir þurft að ýta við mörgum eins og gengur og gerist, stundum af hörku eða með því valdi, sem þeir hafa, þ.e. að hóta mönnum stöðvun. Það er leiðinlegt að þurfa að beita því, þó að það sé nauðsynlegt. En ég veit ekki til þess, að gífurlegur hávaði hafi verið út af starfsemi þessarar deildar vegna beitingar slíks valds. Hins vegar hafa þeir gefið mönnum umþóttunartíma og auglýst það rækilega, bæði í dreifibréfum og með öðrum hætti, að menn yrðu að standa klárir á því, að innan ákveðins tímabils yrðu þeir að hafa gert lágmarksumbætur hjá sér, svo að þeir gætu haldið fiskvinnsluleyfi sínu áfram.

Nefndin, sem er kölluð „Tillögunefnd um hollustuhætti í fiskiðnaði“ hefur sjálfsagt starfað vel og skilaði stórri bók um ýmislegt í þessu efni. En hún hefur ekki séð um framkvæmd þessara mála, ekki nema þá á mjög þröngu sviði, alls ekki almennt talað.

Varðandi 5. gr. vil ég telja eðlilegt að gera hér á þessa breyt. — Síðan mætti koma: „Frysti- deild“, — ef við teljum rétt að hafa hana eina sér. Frystingin er sjálfsagt það mikill þáttur í okkar framleiðslu, að eðlilegt sé að hafa frystar vörur í einni deild. Síðan kemur ferskfiskdeildin þar er sérskilið starfslið, og það er alveg eðlilegt. Síðan kemur salt- og skreiðardeild. En hvað varð þá af garminum honum Katli, sem allt snýst nú um, þ.e. saltsíldinni? Þá deild, sem þar hlýtur að koma inn, finn ég hreinlega ekki í frv. Nú er ég svo bjartsýnn, að ég tel, að við hljótum að fara að veiða síld og byrjum e.t.v. rólega í haust. Þá er það mín skoðun afdráttarlaust, að til þess að það fari ekki úr böndunum, þá er aðeins ein leið til, og það er að setja alla síld í kassa. Það verður erfitt að segja, að ákveðin skip skuli veiða síldina, en það er hægt að segja með það grundvallarsjónarmið í huga, að vel skal fara með síldina núna, að allir setji hana í kassa, alveg á sama hátt og enginn fær fiskvinnsluleyfi, nema fiskvinnslustöð fullnægi settu.m reglum, og sumum þykja þær reglur allharðar. Þess vegna teldi ég eðlilegt, að þarna væri 5. liður, a.m.k. þá undirliður í salt- og skreiðardeild, deild um síldina. Hún má a.m.k. ekki gleymast, verði sú þróun á, sem ég tel eðlilegt, og ég veit, að hæstv. ráðh. telur líka eðlilegt, að maður á vegum Fiskmats ríkisins hafi slíka þekkingu og hann sé svo hæfur starfskraftur að hann geti fjallað meira en eingöngu um einn þátt í matinu. Við væntum þess, að maður geti metið saltfisk og skreið fyrri hluta ársins og sá hinn sami hafi tök á því að ráða við saltsíld síðari hluta ársins, sem sennilega yrði þá frá miðjum sept. fram í des., ég reikna varla með lengri tíma. Síðan kæmi einhver útflutningur fram í fyrstu mánuði ársins, en varla ættu að verða árekstrar varðandi framkvæmd þessara mála á starfssviði mannsins.

Hvað um það, þá tel ég eðlilegt, að við gleymum nú ekki síldinni, af því að hún var orsök þess, að við í undirnefndinni fórum af stað með það að gera till. um, að málið yrði skoðað í heild. Og ég er alveg sammála hæstv, ráðh. í því efni. Ég er ekki að deila á hæstv. ráðh. með þessum orðum, ég er eiginlega að deila meira á n., sem undirbjó málið, af því að ég tel, að hún hafi verið of hroðvirk. Við þurfum að fá svigrúm til að móta hér eðlilega þróun, og lög, sem verða sett um þessa stofnun núna, gilda nokkur ár fram í tímann. Þau gefa ráðh., hver sem hann verður, svigrúm til að setja reglur, og það svigrúm á að vera mótað, eins og stendur í gildandi l., eftir umsögnum og álitsgerðum frá öllum aðilum, sem koma að fiski, bæði þeim, er afla og vinna fiskinn. Þetta tel ég mjög mikilvægt að ekki sé dregið úr gildi þess.

Svo er fjallað um skipan þessara mála, ráðningu og þess háttar. Það er sjálfsagt eðlileg þróun, að við krefjumst þess, að toppurinn, forstöðumaðurinn og svo næstu menn til hliðar við hann, hafi mikla og góða menntun. Ég tek undir þau orð ráðh., að löng starfsreynsla í þessu efni er líka góður skóli og gefur manninum mikið gildi.

16. gr. er um það vald, sem Fiskmat ríkisins þarf að hafa til að stöðva móttöku á fiski og gera þær ráðstafanir, sem það telur nauðsynlegar, svo að áframhaldandi vinnsla eða sala á afurðum eigi sér ekki stað, ef tilteknum skilyrðum er ekki fullnægt. Ég hefði persónulega talið, að þegar slíkar aðgerðir eiga sér stað, þá sé þeim, er tekur ákvörðun um það, gert að skyldu að skila þegar í stað skriflegri skýrslu um málið, bæði til þess, er verður fyrir stöðvuninni, og einnig til forstöðumanns ríkismatsins. Það getur vel verið, að það hafi verið venja að gera það, en það kemur fram þarna, að maðurinn gæti einfaldlega gert þetta í símtali eða einhvern veginn öðruvísi. En út af því, hvað hér gæti verið um mikið verðmæti að ræða og kannske málaferli, sem af leiddi, þá er rétt að kveða svo á, að þetta sé gert skriflega. Það getur vel verið, að það sé nóg að taka þetta fram í reglugerð, en ég vil bara benda á það, að þegar um slíka ákvörðun er að ræða, er rétt að hafa það skjalfest.

Í sjálfu sér er þetta frv. það keimlíkt og að sumu leyti á stórum köflum svipað eða eins og gildandi lög, að ekki þarf að fjalla mikið um frv. lið fyrir lið, og það tók hæstv. ráðh. fram. Það, sem við erum kannske að kýta hér um, er í fyrsta lagi undirbúningurinn að því og í hvaða átt við erum að fara. Ég tel, að við eigum ekki að kasta fyrir róða þeirri stofnun, er kallast Fiskmat ríkisins. Það er ekki það, sem leysir okkar vanda, heldur á að tala við þá menn, sem þar starfa og hafa starfað lengi, leita ráða hjá þeim og einnig þeim, er eiga afurðirnar, og það gæti vel verið forsenda fyrir góðri endurskipulagningu, að um þetta væri haldin ákveðin ráðstefna. Þetta er það viðamikið mál og þetta er það viðkvæmt mál, að það væri ekki óskynsamlegt, held ég, að það væru boðaðir til ákveðnir menn, 30–40 menn sem fjölluðu um málið og settu fram sjónarmið sín, og síðan yrði það tekið saman og rætt rækilega í þrengri hópi.

Hvað telja menn vera að núv. mati? Það kemur hér fram og er út af fyrir sig merkileg staðhæfing, að sumum finnist matið hafa harla lítið gildi og nánast ekki neitt, — orðrétt, með leyfi forseta:

„Þá hefur sú skoðun verið útbreidd, að freðfiskmat, sem Fiskmat ríkisins annast, sé í núverandi mynd lítils virði og beri að leggja það niður.“

Þegar svona orð eru sett í þskj. og það sem aths. við stjfrv., þá viljum við fá eitthvað meira í hendurnar. Þetta er einhver sú þyngsta ásökun, sem ég hef séð í þskj. þau sjö ár, sem ég hef setið hér á Alþ., og er þó stundum sagt hér mikið. En þeir menn, sem láta þetta fara frá sér, verða að hafa eitthvað meira í höndunum en munnlegt mat eða munnlegan vitnisburð þeirra aðila, er meta starfsemi Fiskmatsins svo, því að Fiskmat ríkisins er sá aðili, sem skrifar undir gögn um flokkun og verðmætisgildi á okkar afurðum, og ef þessi undirritun og þau gögn, sem fylgja með okkar vörum úr landinu, eru einskis virði og pípið eitt, þá er áreiðanleg ástæða til að athuga málið og það mjög fljótt. Ég mun leggja á það áherslu í n., að þessum orðum verði fundinn staður og það verði bent á þá menn, sem þora að standa við það, að þetta sé rétt frá sagt. Það er ekki hægt að ganga fram hjá þessu máli, því að ég held, að þessir fiskmatsmenn séu ekkert verri né ósjálfstæðari í hugsun en aðrir og þeir meti og starfi eftir bestu getu.

Ég hef lítils háttar staðið í fiskvinnslu s.l. 12 ár, og þeir, sem hafa heimsótt mig, og þeir, sem ég hef haft samskipti við hafa verið vanda sínum vaxnir að mínu mati. Ég hef þurft að standa í því sem starfsmaður sjútvrh. á sínum tíma að stöðva skip hér í höfninni og lenda í hörku við þá menn en það leystist farsællega, og hafa ekki verið illindi út af því síðan. Ég held, að matið hafi rökstutt sínar gerðir. Þess vegna undirstrika ég það, að það þarf að vera skrifleg greinargerð, sem fylgi strax í kjölfar slíkrar valdbeitingar, og þá á það að vera eðlilegur gerningur að taka slíka ákvörðun, þegar mennirnir hafa til þess þekkingu og reynslu. — þetta eru það stór orð hér, að ég segi það fyrir mig persónulega, að ég tel, að þeim verði að finna stað.

Það kemur síðar fram í aths. frá þessari n., er undirbjó frv., og hæstv. ráðh, drap á það, að óhætt mun að fullyrða, að n. telur menn nánast á einu máli um, að sameina beri starfssvið Fiskmats ríkisins og Síldarmats ríkisins. Um þetta held ég, að ekki sé nokkur minnsti ágreiningur. Ég held, að þetta geti skeð með eðlilegri deildaskiptingu, eins og hefur átt sér stað, og hæstv. ráðh, geti að fengnum ákveðnum umsögnum um málið komið þessari breyt. á hljóðalaust og án vandræða. Ég trúi ekki öðru. Og ég er sammála því að við þurfum að hafa kostnað við þessa stofnun í lágmarki, eins og við aðrar ríkisstofnanir. Það er okkar skylda að gera það, og ég trúi því ekki, að forsvarsmenn Fiskmats ríkisins vilji ekki hlusta á ábendingar frá fjárveitingavaldinu eða beiðni í þá átt, að starfsemi, sem þar á sér stað, verði með þeim hætti, að sem minnstur kostnaður sé fyrir ríkissjóð, — ég trúi ekki öðru en þeir séu opnir fyrir slíkum ábendingum. Það á ekkert skylt við það að telja nauðsyn að kollvarpa öllu því kerfi, sem þeir hafa starfað við í fjöldamörg ár.

Aths. mínar við þetta frv. hafa fyrst og fremst beinst að því undirbúningsstarfi, sem hér átti sér stað, vegna þess að ég held, að það hafi ekki verið unnið nógu gaumgæfilega. E.t.v. hefur n. verið gefinn of skammur tími til að starfa. Ég er ekki að ásaka þessa menn um frumhlaup af ásettu ráði, en svo mikið er víst, að þeir hafa sett þarna fram mjög ákveðna skoðun um starfsemi Fiskmats ríkisins, sem þarf að gefa nánari gaum að í n., sem fær málið til meðferðar hér í hv. deild.