04.04.1974
Neðri deild: 101. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3505 í B-deild Alþingistíðinda. (3129)
293. mál, fjáröflun til vegagerðar
Ingólfur Jónsson [frh.]:
Herra forseti. Ég átti dálítið eftir af ræðu minni, þegar umr. var frestað í dag. Ég lauk máli mínu, þar sem ég var að ræða um skatt af jeppabifreiðum, sem stundum hafa verið kallaðar landbúnaðarbifreiðar og voru skattfrjálsir þangað til núv. hæstv, ríkisstj. tók við völdum. Það var á hverju ári talað um að taka skatt af landbúnaðarbílum, en það dugði yfirleitt að mótmæla því, og það var ekki gert fyrr en núv. hæstv. ríkisstj. komst til valda. Nú er gert ráð fyrir því, að bændur geti fengið endurgreitt sem svarar helmingi gjaldsins.
Í frv. þessu er gert ráð fyrir, að skattur af jeppabifreiðum verði 27500 kr., það eru bifreiðar allt að 2 tonn, og auk þess aukagjald 8600 kr. Það er ekki tekið neitt fram um það, hvort það verður endurgreitt að helmingi til eða ekki, en ég geri ráð fyrir því, og þá er skatturinn rúmar 18 þús. kr. Ég geri ráð fyrir því, að það verði engin hrifning af því og verði reynt að koma þessu í það horf, sem áður var, vegna þess að þetta munar Vegasjóðinn sama sem ekkert um, og þessir bílar eru, má segja, utan vegakerfisins meginhluta ársins. Þess vegna er ekki sanngjarnt, að þeir borgi þennan þungaskatt og veggjald.
Það má sjá á fskj. með frv., hvernig tekjurnar verða og hvernig tekjurnar hafa verið. Bensíngjald samkv. 85. gr. l. nr. 80 1973 er nú 9.87 kr. á hvern lítra. Að óbreyttu þessu gjaldi hefur verið áætlað, að tekjur til ráðstöfunar til vegagerðar gæfu 954 millj. kr. árið 1974, en verði þetta frv. samþ., yrðu tekjurnar 1218 millj. kr., þannig að þótt þetta frv. yrði samþ., eru tekjurnar það litlar, sem bætast í Vegasjóðinn, að eftir verður að afla 1500–1600 millj. kr. til þess að geta staðið við áætlunina, sem samin var fyrir tveimur árum. Þungaskatturinn bætist að vísu þarna við, en það eru 287 millj. kr. að óbreyttum l., og við það bætast, ef þetta frv., verður samþ., 67 millj. kr. Ef þungaskatturinn verður samþykktur með þessu móti, er hann orðinn mjög tilfinnanlegur á nauðsynleg ökutæki eins og vörubifreiðar og hlýtur að leiða til þess, að allur flutningskostnaður á landi stórhækkar og gerir landbúnaði og þeim, sem nota samgöngur á landi, vitanlega miklu erfiðara fyrir en áður. Og eins og ég minntist á í dag, er ég hræddur um, að af þessari miklu hækkun á bensíninu, ef að lögum verður, leiði, að notkunin minnki frá því, sem verið hefur, og það sé mjög vafasamt, að tekjur Vegasjóðs aukist við þetta, Það er mjög alvarlegt mál, ef svo færi, að boginn væri svo spenntur með bensínverði, að notkunin minnkaði og tekjur Vegasjóðs jafnvel stæðu í stað þrátt fyrir mikla hækkun á bensínverði og þungaskatti: Þessi mikla hækkun á þungaskatti getur einnig leitt það í ljós, að menn láti afskrá bílana til þess að losna við að greiða gjald á vissum tímum ársins. Það yrði einnig til þess að minnka tekjurnar.
Ég tók ekki eftir því, að hæstv. fjmrh. gæfi yfirlit yfir fjárþörf og fjáröflun til vegáætlunar 1974 og 1975, enda er engin till. fram komin til endurskoðunar á vegáætluninni fyrir þessi tvö ár og þess vegna mjög erfitt fyrir alþm. að gera sér grein fyrir því, hvernig myndin í rauninni er. Vegna þess að þessa mynd vantar, tel ég ástæðu til — með leyfi hæstv, forseta — að lesa hér upp nokkuð úr grg., sem fylgir frv. og menn hafa e.t.v. áttað sig á, en ég tel ástæðu til þess að fara nokkrum orðum um og lesa hér upp úr þessari grg.
Þar segir, að frá því að vegáætlun fyrir árin 1974–1975 var samin í ársbyrjun 1972 hafi orðið mjög miklar hækkanir á framkvæmdakostnaði, og þarf ekkert að efa það. Við höfum orð hæstv. fjmrh. frá því í dag fyrir því, að hann áætlar, að kostnaðurinn hafi aukist á þessum tveimur árum um 96% og má segja allt að 100%, og hækki vísitalan 1. júní n.k. eins og áætlað er, má gera ráð fyrir, að vega- og brúargerðarkostnaður verði allt að því 110% hærri á næsta sumri en var 1972, þegar vegáætlunin var samin. Þetta er skelfileg þróun, sem öllum hlýtur að bregða í brún að sjá og hugsa til. Þegar svo er komið, er eðlilegt, að erfitt sé að afla þess fjár, sem þarf til þess að standa við áætlunina, En verði það ekki gert, þá verður dregið úr þessum nauðsynlegu framkvæmdum, sem menn hafa gert sér vonir um, að yrðu fljótt gerðar.
Gert er ráð fyrir, að heildarútgjöld vegna vegáætlunar 1974 muni nema 3500 millj. kr., ef staðið yrði við áætlunina. Ef hugsað er til þess að framkvæma áætlunina og þau verk, sem frestað var á s.l. ári, — á s.l. ári þótti nauðsynlegt að fresta framkvæmdum á því ári sem nam 300 millj. kr., verða það 3500 millj. kr., sem útgjöldin yrðu hjá Vegasjóði, með því að áætlunin væri óbreytt. En vitanlega hafa flestallir þm. reiknað með því, að við endurskoðun vegáætlunar eftir 2 ár væri hægt að fylla upp í eyður og bæta nýjum framkvæmdum við. En það lítur ekki út fyrir það, ef ekki standa vonir til, að hægt sé að afla þess fjár, sem þarf til þess, að staðið verði við áætlunina.
Hér eru áætlaðar heildartekjur Vegasjóðs á árunum 1974 og 1975 af mörkuðum tekjum samkv. frv. til l. um fjáröflun til vegagerðar, fjáröflun í fjárl. og innheimtu veggjalds. Í tekjuáætluninni er innheimta veggjalds, sem er 31.2 millj. árið 1974 og 91.3 millj. 1975. Það má merkilegt heita, að þetta veggjald skuli hafa slæðst hérna með. Ég hafði gert ráð fyrir því, að hæstv. ríkisstj. reyndi ekki að fá veggjald samþykkt að þessu sinni, vegna þess að það hefur áður verið fellt, og nú er þetta orðinn svo litill partur af heildarútgjöldum vegasjóðs, að það er því siður ástæða til að leggja áherslu á það nú en áður. Fyrst þegar veggjald var tekið af Reykjanesbraut, námu tekjur af veggjaldinu milli 5 og 6% af heildarútgjöldum Vegasjóðs, en samkv. þessum útreikningi verður þetta ekki nema 0.7% af heildarútgjöldum Vegasjóðs á árinu 1974. Samt telur hæstv. ríkisstj., að það svari kostnaði að flytja þetta deilumál inn í hv. Alþ., eins og málin þó standa.
Það er gert ráð fyrir, að ríkisframlag á árinu 1974 verði 262 millj. kr., lánsfjáröflun 100 millj. og markaðar tekjur, þ.e. þungaskattur, bensíngjald og g5mmigjald, 1659 millj. kr. Þetta gerir samtals 2052.7 millj. kr. Þá virðist mér, að vöntunin sé, þegar veggjaldið er dregið frá, 1484 millj. kr., — það er ekki nema 1480 millj., vegna þess að lánsfjáröflun, 100 millj., er komin þarna inn í dæmið, — en það má segja, að heildarfjárvöntunin væri 1580 millj. kr., þótt þetta frv. yrði samþykkt, sem enginn veit enn um raunverulega. En það er rangt, sem segir á einum stað í skýrslunni, að það séu 1400 millj., sem vantar. Þótt reiknað væri með veggjaldinu, eru það 1450 millj., og ef ekki er reiknað með veggjaldinu, eru það 1480 millj. Það er rétt að reikna líka með þeim 100 millj., sem ætlað er að taka að láni, en ekki hefur verið gert enn. Þá má segja, að þetta séu nær 1600 millj. kr.
Nú er vitanlega spurt: Hvernig ætlar ríkisstj. að útvega þetta fé? Hæstv. fjmrh. og hæstv. samgrh. hafa báðir gefið í skyn, að fresta yrði framkvæmdum, vegna þess að það væri ekki unnt að útvega allt það fjármagn, sem þarf til þess að standa við áætlunina.
Það er bagalegt, að till. til endurskoðunar á vegáætluninni skuli ekki hafa verið lögð fram, því að um leið og hún er lögð fram, hlýtur að koma yfirlit yfir það, hverju hæstv. ríkisstj. hugsar sér að fresta af framkvæmdum, ef það er ætlunin, og þá hlýtur einnig að koma fram, hvernig hæstv, ríkisstj. ætlar sér að útvega fé. Um þetta verður áreiðanlega spurt, þegar um — þessi frv., bæði þetta og það, sem rætt var í gær, verður fjallað, og engin ástæða til að ætlast til, að menn taki raunverulega afstöðu til þessara frv., fyrr en það liggur fyrir, fyrr en séð verður, hvernig heildarmyndin er.
Hæstv. fjmrh. sagði í dag, að ríkissjóður hefði tekið á sig þungan bagga með því að greiða afborganir og vexti af lánum. Mér virtist, og ég skrifaði það, að hæstv. ráðh, teldi, að það, sem ríkissjóður greiðir með framlögum á fjárlögum, og það, sem hann hefur tekið að sér af lánum, væri á 9. hundrað millj. kr. Ég skrifaði þetta. Mér dettur ekki í hug, að hæstv. ráðh. fari viljandi rangt með. En vegna þess að þetta kemur ekki heim við þær hugmyndir, sem ég hef, vildi ég gjarnan fá nánari skýringar á þessu. Hæstv. ráðh, sagði, að greiðslur vaxta og afborgana næmu á árinu 1974 525 millj. kr., en ég hef hugmyndir um það, að þetta sé ekki nema 351.1 millj. kr. Afborganir og vextir af lánum, sem voru til komin í árslok 1972, eru 281.4 millj. kr. Lán frá Alþjóðabankanum, sem síðar komu til, eru 9.7 millj. kr. Lán vegna Kópavogsbrautar, sem gert er ráð fyrir að komi á þessu ári, er 60 millj. kr. Auk þess er það ríkisframlag, sem greitt er á fjárlögum beint, 262 millj. kr. 262 millj. + 351 millj. gera 613 millj. kr. Ég skal alls ekki halda því fram, að þetta sé 100% rétt hjá mér eða að það sé örugglega rangt, sem hæstv. ráðh, sagði hér í dag, en þetta eru þær tölur, sem ég hef fyrir framan mig, og hæstv. ráðh. leiðréttir þetta annaðhvort í kvöld eða seinna. Ef hann ekki hefur pappírana hjá sér í kvöld, þá vænti ég, að það verði gert við 2. umr.
Það er áreiðanlegt, að þegar þetta frv. verður skoðað ofan í kjölinn, mun mönnum finnast ýmislegt fleira við það að athuga en það, sem ég hef hér til tínt bæði nú í kvöld og í dag. Það er sorglegt til þess að vita, að þótt þetta frv., sem felur í sér stórauknar álögur á umferðina, á landsmenn alla, verði lögfest, þá sér þess eiginlega engan stað í fjáröfluninni. Það eru ekki nema 300 millj. kr., af 1900 millj., sem vantar. Ég er alveg sannfærður um, að þm. allir, hvort sem þeir eru stuðningsmenn ríkisstj, eða ekki, hafa gert sér grein fyrir því, hversu illa við stöndum fjárhagslega, ekki aðeins í þessu máli, heldur yfirleitt. Það hlýtur að koma að því mjög fljótt, að sú mikla verðbólga, sem hefur verið nú tvö s.l. ár, fari að segja til sín. Það fer að koma að því, eins og maður sagði í dag, að botninn fer úr tunnunni. Verðbólgan hefur aukist um 110% á tveimur árum, ef reiknað er með júnívísitölunni. Byggingarkostnaður og allur framkvæmdakostnaður hefur hækkað um þetta, og það versta er, að samdráttur er á næsta stigi á mörgum sviðum og atvinnuöryggi er í hættu. Það er hætt við því, að þessi mikla verðbólga leiði til atvinnuleysis, og það er uggvænlegt til þess að hugsa.
Ég er viss um, að flestallir alþm. spyrja sem svo: Hvað er til ráða? Og ég er alveg sannfærður um, að flestallir alþm. gera sér grein fyrir því, að við svo búið má ekki standa öllu lengur. Það getur ekki verið, að hæstv. ríkisstj. eða stuðningsmenn hennar hugsi sem svo: þetta flýtur einhvern veginn, látum skeika að sköpuðu, flýtur á meðan ekki sekkur.
Hæstv. ríkisstj, hefur flotið á dýrtíðarflóðinu undanfarin ár. Það hefur verið mikið góðæri til lands og sjávar. Aflabrögð hafa verið í besta lagi, og verðlag útflutningsafurðanna hefur farið stöðugt hækkandi. Þess vegna hefur ríkisbúbúskapurinn gengið, og þess vegna hefur verið mikil atvinna í landinu þrátt fyrir verðbólguna. Ef áfram héldi, að aflabrögð yrðu meiri á árinu 1974 en 1972 og 1973 og áfram héldi verðhækkun á útflutningsafurðum, mætti vel vera, að hæstv. ríkisstj. gæti fleytt sér áfram eitt árið enn, þótt ekkert væri stjórnað og látið reka á reiðanum. En því miður lítur ekki út fyrir, að aflabrögð aukist á þessu ári frá fyrra ári, þótt þau verði vonandi góð á þessu ári. Það lítur ekki út fyrir, að þau aukist frá fyrra ári, og það litur ekki út fyrir, að verðlag afurðanna hækki frá því, sem það hefur verið, sem það þyrfti að gera, ef atvinnuvegirnir ættu að fljóta á verðbólgunni áfram, eins og gerst hefur tvö undanfarin ár.
Hæstv. ríkisstj. nægir ekki toppverð á afurðunum, henni nægir ekki toppaflabrögð. Hún þarf að fá með hverju ári sem líður nýjan topp ofan á toppinn, bæði í aflabrögðum og verðlagi, til þess að atvinnuvegirnir geti gengið eða þrifist. Nú, þegar menn búast við því, að verðlagið hætti að stíga, fari jafnvel að síga og aflabrögðin hætti að vaxa frá því, sem var árið áður, þá fara menn að óttast, að það komi samdráttur og þá komi stöðvun á ýmsum sviðum. Það mun kannske einhver hugsa sem svo, að þetta komi ekki beinlínis vegamálunum við, en eigi að síður hlýtur það að gera það. Fjáröflun til vegaframkvæmdanna kemur þessu vitanlega við, en árferðið er gott enn þá, og árferðið hefur verið gott fram að þessu. Þess vegna er það endurspeglun á stjórnarfarinu, ef ekki er möguleiki á því að halda í horfinu og vinna að þeirri vegáætlun, sem samin var fyrir tveimur árum.
Ég sé ekki ástæðu til við 1. umr. að hafa ræðu mína öllu lengri. Ég vil þó, áður en ég lýk máli mínu, enn árétta það og leggja áherslu á það, að hæstv, ríkisstj, komi sem fyrst með till. til endurskoðunar á vegáætluninni, sýni hv. Alþingi þær till., sem hún hefur að gera í þessu máli, um frestun framkvæmda, ef um það er að ræða, og nm fjáröflun. Þetta þarf að gerast, því að áður en það er lagt fram, er ekki við því að búast, að Alþingi geti afgr. þetta frv., sem við nú erum að ræða um.
Ég sé ekki ástæðu til, herra forseti, að hafa þessi orð fleiri á þessu kvöldi, þar sem tækifæri gefst til við 2, umr. að' ræða þetta mál nánar. Hv. fjh: og viðskn. fær þetta frv. til meðferðar frekar en samgn., geri ég ráð fyrir, og áður en málið verður afgr., hlýtur hæstv. ríkisstj. að þurfa að svara mörgum spurningum og leggja öll gögn fram.