04.04.1974
Neðri deild: 101. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3518 í B-deild Alþingistíðinda. (3133)

293. mál, fjáröflun til vegagerðar

Eyjólfur K. Jónsson:

Herra forseti. Ég hyggst aðeins ræða hér einn þátt þess máls, sem á dagskrá er, þátt, sem að vísu bæði hæstv. fjmrh. og eins hv. 5. þm. Austf. hafa nokkuð rætt hér. En eins og hv. þdm. vita, var hér strax á öðrum eða þriðja degi þingsins lagt fram frv. til laga um happdrættislán ríkissjóðs vegna framkvæmda við uppbyggingu Norðurlandsvegar, þar sem gert var ráð fyrir að bjóða út skuldabréf, 800 millj. kr., á næstu árum til þess að gera stórátak við þessa vegaframkvæmd. Þetta frv. hefur enn ekki fengist afgreitt úr n. Það fór til fjhn., en form. þeirrar n., hv. 5. þm. Austf., gat þess hér áðan, að nm. hefðu verið þeirrar skoðunar að láta afgreiðslu þessa frv. úr n. fylgja með vegáætlun og því frv. um fjáröflun til vegamála, sem nú er hér til umr. Út af fyrir sig höfum við flm. að sjálfsögðu ekkert við það að athuga, að málið sé leyst með einhverjum öðrum hætti en beinni samþykkt þessa frv. óbreytts.

Það gladdi mig mjög að heyra báða þessa hv. þm., 5. þm. Austf. og hæstv. fjmrh., lýsa því yfir, að þeir teldu, að haga ætti fjáröflun með happdrættislánum einmitt á þann veg, að um einskorðaða framkvæmd væri að ræða, því að menn væru fúsari til að kaupa bréf, þegar þannig væri um hnútana búið, en vera mundi, ef þeir hefðu á tilfinningunni, að féð rynni í einhverja allsherjarhít, einhvern sjóð, sem þeir vissu síðan ekki, hvernig varið yrði. Þessi yfirlýsing var mjög mikils virði og ekki þó síður hitt, sem hæstv. fjmrh. lagði á áherslu, að einmitt Norðurlandsvegurinn, vegurinn milli Reykjavíkur og Akureyrar, yrði fyrsta verkefnið samkv. þeirri heimild, sem um getur í 5. gr. þessa frv.

Ef svo fer, að hv. fjhn., sem væntanlega ræðir bæði þessi mál, frv. okkar um happdrættislán vegna norðurvegar og eins það mál, sem hér er til umr., gengur þannig frá hnútum, að féð verður tryggt og það verður fé, sem sérstaklega er ætlað til þessara framkvæmda, þá er auðvitað tilganginum náð og ekki ástæða til að fylgja fram samþykkt frv. okkar. En við munum auðvitað fylgjast með því, hver framvindan verður hjá n., enda er einn flm. þessa frv. okkar nm. Og svo kann að fara, að við teljum nauðsynlegt að bera fram brtt. við það mál, sem hér er til afgreiðslu og umr., og það mundu þá verða mun ítarlegri ákvæði í þeirri brtt. en eru nú í 13. gr.

Ég er ekki sömu skoðunar og hv. 5. þm. Austf., að heppilegt sé að undirstrika, að slík happdrættislán eigi að vera þáttur í vegáætlun. Það má vera, að það skipti ekki meginmáli, en ég held samt, að það verði að leggja á það mjög ríka áherslu við fólk út í frá, að það sé verið að verja þessu fé nákvæmlega til ákveðinnar framkvæmdar, og það kynni að rugla menn nokkuð í ríminu, ef þetta væri þáttur í vegáætlun, gagnstætt því, sem var með vegaframkvæmdirnar á Skeiðarársandi. En vera má, að mér skjátlist í þessu. Það kemur þá á daginn, þegar málið verður ítarlegar rætt, bæði í n. og eins í þessari hv. deild.

Ég ætlaði ekki að orðlengja um þetta mál. Ég ætlaði einungis að þakka hæstv. fjmrh. fyrir yfirlýsingar þær, sem hann hefur gefið og ég leyfi mér að skilja svo, að það mál muni ná heilt í höfn, sem við fluttum hér um stórátak við gerð Norðurlandsvegar. Við orðuðum 800 millj. kr. í okkar frv., en því miður er verðbólguþróun ör, og sjálfsagt þyrfti þessi upphæð að hækka, e.t.v. um 50% eða svo, á næstu árum, til þess að þetta átak yrði að fullu unnið. Auðvitað er það rétt, sem hér kom fram, að verulegt fjármagn fer í kjördæmi hæstv. fjmrh. Þar hefur raunar verið gert ráð fyrir mjög miklum framkvæmdum á næstu tveimur árum, og yfir því gleðst ég sannarlega. Ég get bætt því við, að sá vegarkafli á norðurveginum, sem einna verstur er, er einmitt Norðurárdalurinn. Ég vil, að mun meira fé fari einmitt í þetta ágæta kjördæmi, Vesturlandskjördæmi, vegna þess að það er til hagsbóta fyrir landslýð allan, kannske mest fyrir Norðlendinga, en auðvitað fyrir okkur öll. Ég endurtek þakkirnar.