04.04.1974
Sameinað þing: 74. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3542 í B-deild Alþingistíðinda. (3146)
263. mál, sala og kaup ríkisjarða
Skriflegt svar landbúnaðarráðherra við fyrirspurn Braga Sigurjónssonar um sölu og kaup ríkisjarða, á þskj. 464, afhent þm. 4. apríl.
1. Eins og meðfylgjandi skrár yfir kaup og sölur ríkisjarða bera með sér, hefur núverandi ríkisstjórn selt fjórum bændum jarðir, en 23 hafa verið seldar öðrum aðilum, aðallega sveitarfélögum. Söluverð jarðanna er tilgreint í skrá I.
2. Af bændum hafa verið keyptar 20 jarðir. Hafa þær allar verið keyptar samkvæmt ákvæðum í lögum um Jarðeignasjóð, sem samþykkt voru á Alþingi 1972, um kaup á jörðum þeirra bænda, sem ekki hafa tök á að sitja þær vegna áhvílandi skulda. Ein jörð hefur verið keypt af öðrum aðila, Rangársandi hf. Hún er nr. 9 í skrá II. Þar er enn fremur tilgreint kaupverð jarðanna.
3. Landnám ríkisins hefur keypt 6 jarðir. Eru þær taldar upp í skrá III. Þar munu verða stofnaðar graskögglaverksmiðjur.
4. Ríkisstjórnin hefur ekki hafnað kaupum á jörðum. Hins vegar hafa nokkrir bændur rætt hugsanlegar sölur á jörðum sínum til Jarðeignasjóðs og gert fyrirspurnir um söluverð og söluskilmála, án þess að úr kaupum hafi orðið.
I. Skrá yfir seldar ríkisjarðir júlí 1971- mars 1974.
Nafn jarðar
Seld samkv.lögum
Kaupandi
Verð kr
1.
Land Garðakirkju ásamt býlinu Bala, Garðahr., Gullbringusýslu
nr. 62 frá 20/5 1995 og nr. 66 frá 28/5 1969
Garðahreppur
3 403 900
2.
Brekka, Gerðahreppi, Gullbr.s.
nr. 64 frá 30/4 1973
Gerðahreppur
190 000
3.
Hrútsholt, Eyjahr., Hnappadalss.
nr. 102 frá 21/12 1962
Guðj. Magnúss., Bóndi, ábúandi jarðarinnar
400 000
4.
Straumfjarðartunga, Miklaholtshr., Snæfellsnessýslu
nr. 102 frá 21/12 1972
Ingólfur Pálss., bóndi,
ábúandi jarðarinnar
1 300 000
5.
Ytri-Bugur, Fróðárhr., Snæf.n.s.
nr. 6 frá 21/12 1972
Sig. Kristjónsson o.fl.
450 000
6.
Keflavík innri, Keflavík ytri, Dyngja, Klettsbúð, Munaðarhóll, Kjalvegur, Þæfusteinn, Ásgrímsbúð, Hallsbær, eyðijarðir og grasbýli í Neshreppi, Snæf.n.s.
nr. 55 frá 27/4 1967
Neshreppur
1 210 000
7.
Fjós, Laxárd., hr. Dalasýslu.
nr. 5 frá 21/12 1972
Laxárdalshreppur
2 100 000
8.
Háagerði, Dalvíkurhr., Eyjafj.s.
nr. 44 frá 16/4 1971
Dalvíkurhreppur
46 000
9.
Birningsstaðir, Reykd.hr., S-Þing
nr. 102 frá 1962
Þorm. Torfason, bóndi ábúandi jarðarinnar
155 000
10.
Þorsteinsstaðir, Sauðan., N-Múl.
nr. 9 frá 13/3 1792
Marinó og Kristbjörn Jóhannssynir, bændur
100 000
11.
Grenivík, Höfðabrekka, Svæði Grýtubakkahr., S-Þing
nr. 33 frá 24/4 1973
Grýtubakkahreppur
3 750 000
12.
Markúsarsel, Tunguhlíð, Geithellnahr., S-Múl.
nr. 37 frá 24/5 1972
Geithellnahreppur
124 000
13.
Brekkuborg, Breiðdalshr., S-Múl
nr. 9 frá 13/3 1972
Breiðdalshreppur
693 565
14.
Háls, Búlandshr., Kambshjáleiga, S-Múl.
nr. 10 frá 13/3 1972
Breiðdalshreppur
90 000
15.
Holt, Dyrhólahreppi, V-Skaft.
Nr. 36 frá 24/5 1972
Jóhanna Sæmundsd.
200 000
Kr.
14 212 465
II. Skrá yfir keyptar ríkisjarðir júlí 1971 – jan. 1974.
Heiti jarðar
Seljandi
kaupverð kr.
1.
Blábjörg, Geithellnahr., S-Múl
Þormóður Einarsson
1 800 000
2.
Efralón m. Y-Lóni, Sauðaneshr., N-Þing
Sigurður Jónsson
1 900 000
3.
Geirbjarnastaðir, Ljósavatnshr., S-Þing
Óttar Viðar
1 050 000
4.
Geitafell, Kirkjuhv.hr., V-Hún.
Eyjólfur Eyjólfsson
940 000
5.
Gilsárstekkur, Breiðd.hr., S-Múl
Bergur Karlsson
972 000
6.
Hafnarnes, Fáskrúðsfjarðarhr., S-Múl.
Jóhann Jónsson
360 000
7.
Hjartarstaðir, Eiðaþinghá, S-Múl.
Steinþór Magnússon
1 508 000
8
Kambssel, Geithellnahr., S-Múl.
Þórólfur Ragnarsson
600 000
9.
Ketilhúshagi, Rangárv.hr., Rang.
Rangársandur
4 150 000
10.
Kjörvogur, Árneshr., Strandas.
Guðjón Magnússon
650 000
11.
Klængshóll, Svarfaðrd.hr., Eyjafj.s.
Hermann Aðalsteinsson
900 000
12.
Kollsvík, Rauðasandshr., V-Barð.
Ingvar Guðbjartsson
700 000
13.
Melrakkanes, Geithellnahr., S-Múl.
Karl Sigurgeirsson
2 000 000
14.
Múli, Nauteyrarhr., N-Ís.
Ástþór Ágústsson
1 200 000
15.
Mýnes, Eiðaþinghá, S-Múl.
Einar Ö. Björnsson
1 500 000
16.
Sandvík, Bárðard.hr., S-Þing
Yngvi Gunnarsson
780 000
17.
Setberg, Skógarstr.hr., Snæf.
Jón Jónsson
1 900 000
18.
Sporður, Þorkh.hr., V-Hún.
Ágúst Jóhannsson
1 300 000
19.
Volasel, Bæjarhr., A-Skaft.
Benedikt Egilsson
1 550 000
20.
Þúfa, Ölfushr., Árness.
Sigurður Ragnarsson
2 000 000
21.
Þúfur, Hofshr., Skagafj.s.
Baldvin Jónsson
1 250 000
Samtals kr.
29 010 000
III. Skrá yfir jarðir keyptar af Landnámi ríkisins.
Heiti jarðar
seljandi
kaupverð kr.
Saltvík, Reykjahreppi, S-Þing
Reykjahreppur
3 300 000
Flatey I, Mýrahr., A-Skaft
Guðjón Jónsson
Flatey II — —
Páll Yngvarsson o.fl.
Flatey III — —
5 800 000
Heinaberg, — —
Oddi, — —
Benedikt Bjarnason o. fl.
350 000