05.04.1974
Efri deild: 99. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3548 í B-deild Alþingistíðinda. (3153)
52. mál, Húsnæðismálastofnun ríkisins
Frsm. (Helgi F. Seljan):
Herra forseti. Frv. þetta var flutt í Nd, af þrem hv. þm. þar, og ástæður þess voru ærnar, þar sem fyrir lá ráðuneytisúrskurður um það, að íbúðarhús í sveitum gætu ekki fallið undir lög um heilsuspillandi húsnæði. Frv. þetta tekur af öll tvímæli þar um, hvort heldur lánin sem slík væru veitt af Stofnlánadeild landbúnaðarins eða af H^.ísnæðismálastofnun ríkisins. Þetta er því hið mesta réttlætis- og sanngirnismál, sem allir munu sammála um, að eigi fyllsta rétt á sér.
Félmn. hefur athugað frv., eins og það er komið frá Nd., og mælir einróma með samþykkt þess, en fjarverandi afgreiðslu málsins var Páll Þorsteinsson.