05.04.1974
Efri deild: 99. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3550 í B-deild Alþingistíðinda. (3156)
151. mál, skráning og mat fasteigna
Fjmrh. (Halldór E. Sigurðsson):
Herra forseti. Út af brtt. þeirri, sem hv. 6. þm. Sunnl. flytur á þskj. 674 og hann var að gera hér grein fyrir áðan, vil ég geta þess í sambandi við þetta frv., að sá aðili, sem m. a, fjallaði um undirbúning þess, var yfirfasteignamatsnefnd ríkisins. Í henni eiga sæti Gaukur Jörundsson, sem er form. n., Torfi Ásgeirsson og hv. 5. þm. Norðurl. v., Pálmi Jónsson. Ég hafði því talið, að þessum mönnum, a.m.k. tveimur af þeim, væri fulltrúandi til að gæta þeirra hagsmuna, sem hv. þm. taldi, að ekki hefði verið gætt í sambandi við þessa gr. frv. En með leyfi hæstv. forseta vil ég geta þess, hvað segir um þetta í aths. með frv., en þar segir svo um 16. gr. frv.:
„Efnislega svarar þessi gr. til 14. gr. gildandi l. Hin almenna regla um mat til gangverðs við kaup og sölu er óbreytt í frv. frá gildandi l. Er gert ráð fyrir, að mat þetta verði reist á bestu fáanlegri vitneskju um verð eigna við kaup og sölu. Gerð er þó till. um fasta reglu við mat hlunninda, sem miðast við margfeldi af árlegum nettóarði af þeim.
Að því er varðar bújarðir, er gert ráð fyrir, að þær séu metnar sem slíkar, svo lengi sem þær eru notaðar þannig, en ekki miðað við það verð, sem fá mætti fyrir þær við kaup og sölu, t.d. sumarbústaðaland. Meginreglan, sem frv. gerir till. um, er hins vegar, að við slíkt fáanlegt gangverð skuli miðað í mati, ef jarðir eru ekki notaðar til búskapar.“
Hér sýnist mér, að sé gerð skilgreining á því, sem átt er við í sambandi við þetta mat, og það skýrir því alveg megintilgang l. um hugsunina um mat á bújörðum, að það eigi ekki að fara að meta þær við gangverði, sem miðað er við laxveiði eða önnur slík hlunnindi, sem eru fjarri öllu því verðlagi, eða sumarbústaðalönd, sem eru fjarri öllu því verðlagi, sem gildir um jarðaverð almennt. Einnig er sú hugsun lögð þarna til grundvallar, að matið sé miðað við það, að hægt sé að reka búskap með eðlilegum hætti á þessum jörðum. Ég sé því ekki, að það væri betur farið að fella þessa gr. niður eða þann lið, sem að þessu lýtur, því að þá hlyti að koma upp sú spurning, hvort ætti að taka við mat jarða tillit til þess hluta jarða, sem seldur er undir sumarbústaðaland, eða sérstakra veiðilanda, eins og komið hefur fram hér í umr, áður fyrr. Ég sé því ekki ástæðu til, að þessi till. verði samþykkt, og tel hana skemma frv.
Hin till. er á þskj. 671 frá hv. þm. Halldóri Blöndal, og enda þótt hann sé skrefdrjúgur, hélt ég, að sá hv. þm. færi ekki að skipta sér af málum annarra kjördæma. Meginreglan í sambandi við niðurröðun á staðsetningu þeirra matsstofnana, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., er að miða við það, að það benti kjördæminu sem best til þeirrar sóknar, sem almennt er átt við, þegar farið er um kjördæmið allt. Ég vil geta þess, að allir almennir fundir, sem baldnir eru í Vesturlandskjördæmi, eru haldnir í Borgarnesi. Er sama, hvort um er að ræða stjórnmálaflokka eða aðra, vegna þess að það er skemmst að sækja úr kjördæminu í heild í Borgarnes. Þess vegna er þetta gert. Ég ætla ekki að fara að metast hér á um staði innan kjördæmisins, ég sé ekki ástæðu til þess, en þetta er miðað við þetta eitt, en ekki annarleg sjónarmið. Ég legg því eindregið til, að þetta fái að vera í friði í frv. eins og aðrir staðir, sem þar eru tilgreindir.