05.04.1974
Efri deild: 99. fundur, 94. löggjafarþing.
Sjá dálk 3551 í B-deild Alþingistíðinda. (3158)

151. mál, skráning og mat fasteigna

Jón Árnason:

Herra forseti. Ég ætlaði ekki að taka til máls um þetta frv., en út af orðum hæstv, fjmrh. vil ég segja nokkur orð um þá till., sem hv. þm. Halldór Blöndal flutti. Ég vil taka það fram, að ég beindi þessum tilmælum til n, og óskaði eftir því, að hún gerði þessa breytingu á frv. Það var vegna eindreginna tilmæla heiman frá Akranesi, sem ég kom þessu á framfæri.

Það er mér ekki hugstætt að vera að metast um staði innan kjördæmisins. En það, sem liggur til grundvallar hjá Akurnesingum, er fyrst og fremst þetta, að þeir segja, að á Akranesi er jafnhá íbúatala og á öllum hinum þéttbýlissvæðunum í kjördæminu samanlagt: Búðardal, Borgarnesi, Stykkishólmi, Grundarfirði, Ólafsvík og Hellissandi.

Það segir sig sjálft, að í sambandi við þau störf, sem hér um ræðir, þ.e. fasteignamatið, þá mun sá maður, sem veitir því forstöðu, hafa mest verkefni á þeim stað, þar sem fjölmennið er mest, og það er Akranes.

Um annað, sem hæstv. ráðh. sagði, varðandi fundahöld í kjördæminu, þá hefur oltið á ýmsu með hina almennu stjórnmálafundi, hvar þeir séu haldnir. Við í Sjálfstfl. höfum haft þann hátt á, t.d. um okkar kjördæmisráðsfundi, að þeir eru haldnir til skiptis á hinum ýmsu stöðum í kjördæminu. Í ár er fundur á Akranesi, næsta ár í Búðardal eða Stykkishólmi og í Grundarfirði eða Borgarnesi næsta ár á eftir. Okkur þykir eðlilegt í sambandi við almenna stjórnmálafundi og annað þess háttar að hnika því til nokkuð eftir árum, þannig að allir séu við sama borð í þeim efnum, þegar þeir þurfa að ferðast á slíka sameiginlega fundi, sem haldnir eru fyrir kjördæmið allt.

Ég sé ekki ástæðu til að orðlengja frekar um málið eða þessa umræddu tillögu.